Lestin

Lestin

Download on the App Store

All Lestin episodes

  • Golden Globe, þjóðsögur og ævintýri, Sorry For Your Loss, Hitlers Holl
    Golden Globe kvikmyndaverðlaunahátíðin fór fram í Hollywood í nótt, og þar kom ýmislegt á óvart. Við skoðum markverðustu tíðindin í Lestinni í dag.
    Við ætlum líka í þætti dagsins að fjalla um Jón Árnason þjóðsagnasafnara og bókavörð, en í ágúst á þessu ári, nánar tiltekið þann 17. ágúst, verða 200 ár liðin frá fæðingu hans. Ýmislegt verður gert til að minnast Jóns á þessu ári, ráðstefnuhald og fleira, gestur okkar verður Vilhjálmur Bjarnason fyrrverandi Alþingismaður, en hann er mikill áhugamaður um það mikilvæga starf sem Jón Árnason vann á sinni tíð, þegar hann safnaði þjóðsögum sem komu út í tveimur bindum í Leipzig á árunum 1862 og 1864, undir yfirskriftinni Íslenskar þjóðsögur og æfintýri, og síðar í sex bindum í Reykjavík á árunum 1954-1961.
    Áslaug Torfadóttir fjallar í sjónvarpspistli dagsins um þáttaröðina Sorry for your Loss sem frumsýnd var í september og hefur vakið mikla athygli gagnrýnenda. Sorry for your loss eru dramaþættir um sorgina sem hafa vakið bæði athygli og aðdáun og hægt er að horfa á ókeypis á facebook. Meira um það í þættinum í dag.
    Og heimildarmyndin Hitler's Hollywood fjallar um kvikmyndagerð nasista á árunum 1933 til 1945 og það hvernig nasistar földu áróður sinn oftar en ekki í Hollywood-legu léttmeti. Þórður Ingi Jónsson segir frá myndinni í Lestinni í dag. Heimildarmaður hans verður Benedikt Hjartarson bókmenntafræðingur og prófessor við Háskóla Íslands. Fjallað verður um áróður og fjölmiðlalæsi í þættinum í dag.
    55 min
  • Tóbakspípur, dáleiðsla, Marie Davidson
    Efni Lestarinnar í dag: Ása Dýradóttir, listakona og bassaleikari Mammút, kynnti nýlega nýtt verkefni. Verkefnið nefnist LoTide en þar vinnur hún með allt að 400 ára gömul tóbakspípubrot úr Thames ánni. Lestin heimsækir Ásu Dýradóttur í þætti dagsins og kynnir sér umrædd tóbakspípubrot nánar. Alþjóðlegi dáleiðsludagurinn er á morgun, og af því tilefni verða dáleiðslutæknar með opið hús milli klukkan 17 og 19 á Stórhöfða 15 í Reykjavík þar sem gestir verða fræddir um dáleiðslu og það sem í henni felst. Hlustendur fræðast um dáleiðslu í þættinum í dag, gestur Lestarinnar verður Jón Víðis Jakobsson, dáleiðslutæknir. Og kanadíska teknóskáldkonan Marie Davidson framleiðir prósaljóð fyrir dansgólfið og takta fyrir tilvistarkreppur, um leið og hún afhjúpar myrkari kima plötusnúða- og klúbbamenningar samtímans með nístandi íróníu. Hennar fjórða skífa, Working Class Woman, kom út síðastliðið haust við standandi lófaklapp gagnrýnenda. Davíð Roach Gunnarsson segir frá Marie Davidson og tónlist hennar hljómar í hljóðkerfi Lestarinnar.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    55 min
  • Áramót, Tími til að segja bless, Mortal Engines
    Á meðal efnis í Lestinni í dag: Sýningin Tími til að segja bless verður sett á svið í Þjóðleikhúskjallaranum föstudaginn 4. janúar. Verkið á að vera einhvers konar mótsvar við kapítalísku þunglyndi. Höfundur verksins, Lóa Björk Björnsdóttir, verður gestur Lestarinnar í dag. Spurt er á nýju ári: Hvað er kapítalískt þunglyndi? Marta Sigríður Pétursdóttir fjallar um kvikmyndina Mortal Engines eftir nýsjálenska leikstjórann Christian Rivers. Og Karl Ólafur Hallbjörnsson fjallar í fyrsta pistli sínum á nýju ári um áramót, endurtekningu og hugsun hins nýja.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    53 min
  • Jane Austen og ferð lesandans, stytting vinnuvikunnar
    Í Lestinni í dag verður meðal annars hugað að tveimur vinsælum hugðarefnum; styttingu vinnuvikunnar og Jane Austen. Vinsældir bresku skáldkonunnar hafa verið töluverðar á síðustu 150 árum, en þó sérstaklega miklar á síðustu tveimur áratugum. Í bókinni „Jane Austen og ferðalag lesandans“ kannar Alda Björk Valdimarsdóttir, dósent í almennri bókmenntafræði við Háskóla Íslands, hvernig ímynd Austen lifir áfram og þá einkum innan þriggja bókmenntagreina sem löngum hafa verið tengdar konum; þ.e. í ástarsögum, skvísusögum og sjálfshjálparritum. Alda Björk verður gestur Lestarinnar í dag. Krafan um styttingu vinnuvikunnar er að verða stöðugt meira áberandi og verður eitt helsta keppikefli verkalýðshreyfingarinnar í komandi kjaraviðræðum. Í Lestinni í dag veltum við fyrir okkur af hverju við vinnum átta klukkustundir á dag og hvort styttri vinnudagur sé mögulegur og æskilegur. Gestur þáttarins er Guðmundur D. Haraldsson, meðlimur í Öldu, félagi um lýðræði og sjálfbærni.
    Umsjónarmenn: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Kristján Guðjónsson
    54 min
  • Sarah Bernhardt, Jólaplata Phil Spector
    Efni Lestarinnar í dag: Sarah Bernhardt var ekki aðeins frægasta leikkona Frakka á 19. öld heldur þekktasta leikkona heims á sínum tíma. Áhrifamikil list og fjölskrúðugt, ævintýralegt líf hennar hefur mótað þá goðsagnakennda mynd sem við þekkjum í af henni í dag, enda stundum kölluð hin guðlega Sarah Bernhardt. Goðsögn hennar lifir í skrifum, sögubókum, bíómyndum, styttum, á plakötum, og á Youtube en hér á Íslandi lifir nafn hennar kannski einna helst sem heiti á smáköku, í ljúffengu Sörunum. En hvers vegna eru kökurnar skírðar í höfuðið á Söruh Bernhardt? Þetta er saga sem á rætur að rekja til upphafs 9. áratugarins. Lestin skoðar málið nánar í þætti dagsins. Heimildamaður verður Ástríður Guðmundsdóttir. Einnig verður í þættinum í dag rifjuð upp hljómplatan A Christmas Gift for You from Phil Spector, sem margir telja einhverja bestu jólaplötu allra tíma. Platan kom út árið 1963 og lifir góðu lífi enn þann dag í dag.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    49 min
  • Roma, ROK, tölvuleikir og íþróttir
    Efni Lestarinnar í dag: Íslendingar eru ekki þeir einu sem fagna stórafmæli í ár. Á meðan þjóðin fagnar 100 ára fullveldi fagna Pólverjar 100 ára sjálfstæði. Að gefnu tilefni hafa þær Marta Magdalena og Justyna, pólskar konur sem eru búsettar hér á landi, gefið út tímaritið ROK með það að markmiði að brúa bilið milli Íslendinga og Pólverja enda nú um 10% landsmanna af pólskum uppruna. Lestin kynnir sér tímaritið ROK nánar í þætti dagsins. Marta Sigríður Pétursdóttir fjallar í dag um kvikmyndina Roma eftir mexíkóska leikstjórann Alfonso Cuarón. Og Karl Ólafur Hallbjörnsson fjallar um tölvuleiki og íþróttir í pistli dagsins.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    55 min
  • Bestu plötur ársins, Little Drummer Girl, Guðrún Hannesdóttir
    Efni Lestarinnar í dag: Undanfarna daga hafa tónlistarfjölmiðlar um allan heim verið að gera upp árið og birta lista yfir þær plötur og útgáfur sem hafa staðið upp úr á árinu 2018. Í Lestinni í dag verður rennt yfir árslistana og skoðað hvaða plötur og listamenn skjóta upp kollinum hvað víðast, bestu poppplötur ársins 2018.
    Í þættinum í dag verður einnig haldið áfram að fá fólk til mæla með bókum sem tala inn í okkar samtíma, með einum eða öðrum hætti, mæla með bókum sem við eigum einhverra hluta vegna að lesa hér og nú. Í dag er röðin komin að Sigurbjörgu Þrastardóttur rithöfundi, hún velur bók og rökstyður val sitt.
    Áslaug Torfadóttir fjallar um bresk-bandarísku sjónvarpsþættina Little Drummer Girl sem byggja á samnefndri skáldsögu eftir breska rithöfundinn John le Carré, og hlotið hafa góðar viðtökur.
    Umsjón: Kristján Guðjónsson og Eiríkur Guðmundsson
    55 min
  • Afsakanir, Susan Sontag, Bagdad brothers, myndlistarmarkaðir
    Hljómsveitin Bagdad brothers hefur vakið athygli að undanförnu fyrir tónlist sína og á dögunum hlaut hljómsveitin Kraums-verðlaunin fyrir plötuna Jæja. Þeir Bjarni Daníel Þorvaldsson og Sigurpáll Viggó Snorrason verða gestir Lestarinnar í dag. Myndlistarmarkaður í Ásmundarsal verður heimsóttur, en slíkir jólamarkaðir verða, að því er virðist, fleiri og vinsælli með ári hverju. Sigurður Atli Sigurðsson, myndlistarmaður og markaðshaldari, svarar því hvort myndlistin hafi tekið við af bókinni sem menningarlegasta gjöfin undir íslenska jólatrénu. Á Afsökunum, annarri sólóplötu Auðar, er að finna ástarsorg, maníu, eiturlyfjaneyslu og geðrof yfir spólgröðum gítargrúvum og dúnmjúkum RogB tónum. Platan er mikil framför frá hans fyrstu og ein sú allra besta á íslenska tónlistarárinu. Davíð Roach Gunnarsson fjallar um plötuna í Lestinni í dag. Einnig verður í þætti dagsins fjallað um bandaríska rithöfundinn Susan Sontag og túlkun listaverka.
    Umsjón: Kristján Guðjónsson og Eiríkur Guðmundsson
    50 min