Lestin

Lestin

Download on the App Store

All Lestin episodes

  • Grammy-verðlaunin, Hatari, Russian Doll, Berlinale
    Efni Lestarinnar í dag: Það var mikið um dýrðir í Staples Center í Los Angeles í nótt þar sem Grammy-verðlaunin voru afhent með pompi, prakt og fullt, fullt af pæjum. Konur komu sáu og sigruðu í flestum stóru flokkunum og sömuleiðis sem skemmtikraftar kvöldsins þar sem þær voru í yfirgnæfandi meirihluta. Í Lestinni í dag verður fjallað um Grammy-verðlaunin og rýnt í há- og lágpunkta hátíðarinnar. Fyrra undanúrslitakvöld fyrir Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva í Tel Aviv í maí fór fram um helgina. Tvö lög komust áfram, Eitt andartak, í flutningu Heru Bjarkar og Hatrið mun sigra í flutningi Hatara, þessi lög tryggðu sér sæti í úrslitum Söngvakeppninnar árið 2019. Það er óhætt að segja að atriði Hatara hafi vakið mikla athygli, rýnt verður í atriðið í Lestinni í dag. Ásgeir H Ingólfsson segir frá mongólskum hirðingjum, amerískum kvikmyndagagnrýnendum og úkraínsku hungursneiðinni í pistli frá kvikmyndahátíðinni í Berlín sem stendur nú sem hæst, þar sem spurningar vakna meðal annars um framtíð blaðamennsku. Og bandarísku sjónvarpsþættirnir Russian Doll eru einhverjir frumlegustu og skemmtilegustu þættir síðustu missera og bjóða áhorfendum að uppgötva eitthvað nýtt við hvert enduráhorf. Áslaug Torfadóttir fjallar um þættina í Lestinni í dag.
    Umsjón: Anna Marsibil Clausen og Eiríkur Guðmundsson
    55 min
  • Staða prentverks á Íslandi, Beirút, Toro Y Moi og Chillwave-stefna
    Efni Lestarinnar í dag: Á morgun verður opnuð í Listasafni Íslands sýningin Beirút, Beyrut, Beyrouth, Beyrout þar sem saga félagslega flókins samfélags verður dregin fram og skoðuð með skerpu og hlýju. Heiti sýningarinnar vísar til þess menningarlega fjölbreytileika sem Líbanon og Austurlönd nær búa yfir en þau eiga sér langa sögu sem fjöltyngt fjölmenningarsvæði. Fjallað verður um þessa áhugaverðu sýningu í Lestinni í dag. Einnig verður í þættinum hugað að stöðu prentverks á Íslandi, Hallgrímur Helgason rithöfundur lýsti í viðtali við Lestina á dögunum áhyggjum sínum af því að Íslendingar væru hættir að prenta bækur. Gestur þáttarins í dag verður Haukur Már Haraldsson, hann er menntaður setjari, hefur fengist við blaðamennsku, ritstjórn, útlitshönnun og kennslu, og er höfundur bókarinnar Frá Hólum til Reykjavíkur - Fyrstu 300 árin í prentsögu Íslendinga, sem kom út árið 1992. Haukur talar um stöðuna eins og hún er nú, og merka prentsögu Íslendinga. Og á dögunum kom út sjötta hljóðversplata bandaríska tónlistarmannsins Toro Y Moi, hún nefnis Ytri friður, Outer Peace. Toro þessi framreiðir lágstemmt grúví raftónlist og kom upp úr senu sem hefur verið kölluð Chillwave, og var áberandi seint á óþekka áratugnum (noughties, fyrsta áratug þessara aldar). Davíð Roach Gunnarsson fjallar um plötuna Outer Peace og fræðir hlustendur um Chillwave-stefnuna í Lestinni í dag.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    55 min
  • Hljómplötusafn Sigurjóns Samúelssonar, USEE STUDIO, Simone de Beauvoir
    Í Lestinni í dag verður meðal annars fjallað um hljómplötusafn Sigurjóns Samúelssonar, bónda á Hrafnabjörgum við Ísafjarðardjúp. Sigurjón hóf hljómplötusöfnun um miðja síðustu öld, hann andaðist árið 2017 og skildi eftir sig merkilegt safn hljómplatna, alls um það bil 7000 plötur, sem nú hefur verið afhent Landsbókasafni Íslands. Af því tilefni verður opnuð í Þjóðarbókhlöðunni í dag sýning sem helguð er safni Sigurjóns, komið verður við í Þjóðarbókhlöðunni í þætti dagsins og rætt við Ólaf Engilbertsson og Bryndísi Vilbergsdóttur. Halla Hákonardóttir og Helga Björg Kjerúlf eru hönnuðirnir á bakvið USEE STUDIO en hönnunarstofan sendi nýverið frá sér fatalínuna Egaleo. Línan er þróuð og unnin út frá róttækum sjálfbærum sjónarmiðum, til að mynda er megin efniviður flíkanna gamlir efnalagerar og rekjanlegur lífrænn bómull. Þær Halla og Helga framleiddu línuna í Grikklandi, en Aþena hefur að geyma ríka textíl- og fata- framleiðslusögu sem hefur orðð undir eftir að evrópsk framleiðsla fluttist að mestu til Suðaustur-Asíu, vegna ódýrs vinnuafls þar. Þær Halla og Helga segja hlustendum Lestarinnar nánar frá fatalínunni Egaleo í þætti dagsins. Marta Sigríður Pétursdóttir fjallar í þættinum í dag um kvikmyndirnar Tryggð eftir Ásthildi Kjartansdóttir, þýsku nornamyndina Hakazussa eftir Lukas Feigelfeld, og Transit eftir Christian Petzold, en tvær síðarnefndu myndirnar eru sýndar á Þýskum kvikmyndadögum sem nú standa yfir í BíóParadís. Og Karl Ólafur Hallbjörnsson fjallar í pistli sínum um franska heimspekinginn Simone de Beauvoir og bók hennar, Pyrrhos og Kíneas, sem var hennar fyrsta heimspekiverk, kom út árið 1944, Móheiður Hlíf Geirlaugsdóttir þýddi ritið á íslensku, og kom þýðing hennar út í Lærdómsritaröð Hins íslenska bókmenntafélags á síðasta ári.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    55 min
  • The Specials, andfætlur hugans,
    Lestinni í dag verður meðal annars fjallað um ensku hljómsveitina The Specials sem stofnuð var í Coventry á Englandi árið 1977 og naut á sínum tíma töluverðra vinsælda fyrir tónlist sem kennd er við tónlistarstefnuna ska. Á föstudag kom út fyrsta plata hljómsveitarinnar í tæp tuttugu ár, hún nefnist Encore og hefur hlotið góðar viðtökur. Rætt verður í þættinum í dag við Kjartan Guðmundsson blaðamann um The Specials og tónlistarstefnuna ska sem á rætur að rekja til Jamaika. Aftarlega í hugum okkar búa furðuverur sem við verðum lítið vör við nema við sérstakar aðstæður. Í pistli sínum í dag velti Tómas Ævar Ólafsson fyrir sér svokölluðum andfætlum hugans og tengir þær við flugþreytu, ofskynjanir og trúarbrögð. Og Halldór Armand Ásgeirsson rithöfundur flytur pistil í Lestinni á þriðjudegi.
    Umsjón: Anna Marsibil Clausen og Eiríkur Guðmundsson
    55 min
  • Á Ísland að taka þátt í Eurovison?, Ofurskálin, A Very English Scandal
    Efni Lestarinnar í dag: Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva verður haldin í Tel Aviv í Ísreal í maí. Íslendingar verða sem kunnugt er á meðal þátttakenda í keppninni, en ekki eru allir á eitt sáttir með það að keppnin skuli vera haldin í Ísrael í ljósi framferði þeirra gagnvart Palestínumönnum til margra ára. Fyrir helgi barst til dæmis yfirlýsing frá fimmtíu þekktum breskum listamönnum sem hvöttu til þess að keppnin yrði haldin annarsstaðar, af pólitískum ástæðum, við getum ekki litið framhjá kerfisbundnum mannréttindabrotum Ísraelsmanna í Palestínu, segir meðal annars í yfirlýsingunni. Breska Ríkisútvarpið, BBC, hefur svarað áskorun listamannanna á þann veg að Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva sé ekki með nokkrum hætti pólitískur viðburður og feli hvorki í sér pólitísk skilaboð ná baráttu. Íslendingar taka eins og áður segir þátt í keppninni og hér, líkt og víðar, hafa heyrst gagnrýnisraddir þeirra sem segja að við eigum að hundsa keppnina í Ísrael. Undirskriftum hefur verið safnað og tónlistarfólk hvatt til þess að við sniðgöngum keppnina. Á meðal þeirra er tónlistarmaðurinn Páll Óskar Hjálmtýsson, sem verður gestur Lestarinnar í dag, ásamt Skarphéðni Guðmundssyni, dagskrárstjóra sjónvarps. Íslenskir aðdáendur amerísks fótbolta vöktu í alla nótt til að fylgjast með New England Patriots bera sigur af hólmi í viðureign gegn Los Angeles Rams í Ofurskálinni svokölluðu. Leikurinn reyndist einstaklega óspennandi. Hann var sá stigalægsti frá upphafi Ofurskálarinnar og aðeins eitt snertimark var skorað allan tímann en leikurinn var þó hátíð miðað við hálfleiksskemmtiatriði hljómsveitarinnar Maroon Five. Mikill styr hefur staðið um téð skemmtiatriði síðastliðna mánuði og reyndist NFL-deildinni erfitt að manna gleðskapinn. Fjölmargir listamenn höfnuðu þátttöku af stuðningi við Colin nokkur Kaepernick, sem var ekki vært innan NFL-deildarinnar eftir að hann neitaði að standa hnarreistur við flutning á bandaríska þjóðsöngnum við upphaf leikja. Fjallað verður um þjóðerniskennd og rasisma, sniðgöngu listamanna á Ofurskálinni og þá listamenn sem hefðu betur sniðgengið, í Lestinni í dag. Og Áslaug Torfadóttir fjallar í Lestinni í dag um bresku sjónvarpsþættina A very English Scandal sem byggja á samnefndri bók eftir enska rithöfundinn og blaðamanninn John Preston.
    Umsjón: Anna Marsibil Clausen og Eiríkur Guðmundsson
    55 min
  • Pálmar, merkingamunur orðanna gleðikona og gleðimaður, SOPHIE
    Lestinni í dag verður meðal annars rætt við Ólöfu K. Sigurðardóttur, safnstjóra Listasafns Reykjavíkur, um list í almennings rými, tilefnið er uppsetning á listaverkinu Pálmar eftir þýsku listakonuna Karin Sander sem áformað er að koma fyrir í nýju hverfi, Vogabyggð, í Reykjavík, en óhætt er að segja að málið sé mjög umdeilt. Þriðja hefti Ritsins 2018 er komið út og er þemað að þessu sinni kynbundið ofbeldi. Það ofbeldi á sér ýmsar birtingarmyndir og af nógu að taka vilji menn skoða það með fræðilegum augum eins og skýrt kemur fram í inngangi þemaritstjóra heftisins. Í grein sinni rýnir Guðrún Þórhallsdóttir, dósent í íslenskri málfræði við Háskóla Íslands, í sögulega þróun orðanna gleðimaður og gleðikona. Guðrún tekur sér far með Lestinni í dag og fræðir hlustendur nánar um rannsókn sína. Og á síðasta ári kom út plata með þeim einkennilega titli Oil of Every Pearl's Un-Insides, með skosku raftónlistartranskonunni SOPHIE. Hún hún vakti fyrst athygli árið 2013 með laginu BIPP og sem hluti af útgáfu og tónlistarhreyfingu sem kallast PC Music, og aðhyllist mjög einkennandi fagurfræði, tónlist sem er fake, en fagnar því í stað þess að fela. Davíð Roach Gunnarsson segir frá Sophie og PC Music í Lestinni í dag.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    52 min
  • Hallgrímur Helgason, The Favourite, Reykjavík Record Shop
    Í Lestinni í dag verður meðal annars rætt við Hallgrím Helgason rithöfund sem í gær tók við íslensku bókmenntaverðlaununum fyrir skáldsögu sína Sextíu kíló af sólskini. Marta Sigríður Pétursdóttir fjallar um kvikmyndina The Favorite eftir gríska leikstjórann Yorgos Lanthimos, einnig verður í þættinum í dag fjallað um stjórnskipulag fyrirtækja og alræði forstjórans, og Lestin brunar líka niður í miðborg Reykjavíkur og kemur við í Reykjavík Record Shop, mælir sér mót við Reyni Berg Þorvaldsson, sem svarar spurningunni: Hvað eiga hlustendur að setja á fóninn í kvöld?
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    55 min
  • Morðið á Dag Hammarskjöld, umræða um HIV, stjörnustríðsmyndir, landamæ
    Efni Lestarinnar í dag: Um helgina var frumsýnd á Sundance-kvikmyndahátíðinni ný heimildamynd um morðið á Dag Hammarskjöld, framkvæmdastjóra Sameinuðu þjóðanna, í Ródesíu árið 1961. Á meðal þess sem fram kemur í myndinni er að dauðasveit frá Suður-Afríku hafi vísvitandi dreift HIV-smiti í sunnanverðri Afríku á níunda og tíunda áratugnum, þetta fullyrðir fyrrverandi yfirmaður í sveitinni. Heill her rannsóknarblaðamanna hefur undanfarin sex ár unnið að myndinni undir forystu danska leikstjórans Mads Brügger og sænska rannsóknarblaðamannsins Göran Björkdahl. Í Lestinni í dag verður rætt við Viðar Hákon Gíslason, hljóðmann, sem vann að gerð þessarar athyglisverðu myndar. „Mesti óvinur mannkyns, hórsótt eða eyðni?" er yfirskrift fyrirlesturs Ástu Kristínar Benediktsdóttur íslenskufræðings og Hafdísar Erlu Hafsteinsdóttur sagnfræðings. Í Lestinni í dag ræða þær hvernig orðræða um kynvillu eða samkynhneigð sem smitandi, erlenda úrkynjun, birtist í umræðum um HIV og eyðni og hvernig hún mótaði baráttu samkynhneigðra og hinsegin fólks fyrir lagalegu og félagslegu jafnrétti. Í pistli sínum í dag veltir Tómas Ævar Ólafsson fyrir sér fortíðarþrá og Stjörnustríði. Væntingar aðdáenda til nýrra stjörnustríðsmynda byggja á ljúfsárri fortíðarþrá og þar af leiðandi er nánast ómögulegt að koma til móts við þær. Bankað verður uppá hjá danska heimspekingnum Søren Kierkegaard í viðleitni til að skilja þetta tilfinningaþrungna ástand Stjörnustríðs-sagnaheimsins. Og Halldór Armand Ásgeirsson rithöfundur flytur pistil í Lestinni á þriðjudegi og fjallar í dag um landamæri.
    Umsjón: Anna Marsibil Clausen og Eiríkur Guðmundsson
    55 min
  • Róttæk list, nánd og breytingar í kvikmyndaheiminum, Horror Noire, Der
    Í Lestinni í dag verður meðal annars fjallað að gefnu tilefni um list sem ögrar, list sem fer yfir einhver ákveðin mörk, siðferðileg eða menningarleg, og bregður ljósi á þau mörk um leið. Gestir Lestarinnar í dag verða listfræðingarnir Jón Proppé og Ólafur Gíslason. Með vefvæðingu sjónvarpsþáttagerðar færist í hana aukinn hiti. Veraldarvefurinn er laus við margar þær siðgæðishömlur sem sjónvarpsstöðvar búa við og efnisveitur á borð við Netflix geta því leyft sér fleiri og jafnvel grafískari kynlífssenur en áhorfendur eiga að venjast. Á tímum #metto hreyfingarinnar er meiri meðvitund um framleiðslu þessa atriða og fólkið sem í þeim leikur. Þannig hafa gamanþættir Netflix, Sex Education, svokallaðan nándarráðgjafa í setti hjá sér, til að sjá til að allt fari vel fram. Í Lestinni í dag verður fjallað um slíka nánd og breytingar í kvikmyndaheiminum, og rætt við leikkonuna Önnu Hafþórsdóttur. Heimildarmyndin Horror Noire verður frumsýnd á streymisveitunni Shudder í febrúar og hefur myndin strax vakið mikla athygli og umtal. Horror Noire segir sögu blökkumanna í bandarískum hryllingsmyndum frá upphafi og er fyrirbærið skoðað út frá fræðilegu og sögulegu sjónarmiði. Lestin á stefnumót við framleiðenda myndarinnar, Ashlee Blackwell, og rætt verður við hana um svartar hryllingsmyndir, sem hafa nú verið festar í sessi í Hollywood. Og stelpurnar í Derry, í Norður-írsku sjónvarpsþáttaröðinni Derry Girls, kalla ekki allt ömmu sína þrátt fyrir að hafa meiri áhyggjur af strákum, prófum og partýum en sprengjuhótunum og átökum kaþólikka og mótmælenda í vel heppnuðum gamanþáttum á Netflix. Áslaug Torfadóttir segir frá í þættinum í dag.
    Umsjón: Anna Marsibil Clausen og Eiríkur Guðmundsson
    55 min
  • Jonas Mekas, endurkoma blekpennans, The Internet
    Í Lestinni í dag verður meðal annars fjallað um litáíska kvikmyndaleikstjórann og ljóðskáldið Jonas Mekas, sem andaðist í New York í gær, 96 ára að aldri. Mekas var oft kallaður guðfaðir bandarískrar framúrstefnukvikmyndagerðar en hann flutti ungur til New york og varð mikilvægur þátttakandi í listasenu borgarinnar á sjöunda áratugnum. Mekas var meðal annars þekktur fyrir ,,dagbókarmyndir sínar," og starfaði með fjölda heimsþekktra listamanna á borð við Salvador Dali, Andy Warhol, John Lennon, og Allen Ginsberg. Lestin minnist þessa merka listamanns í dag, gestur þáttarins verður Helga Rakel Rafnsdóttir, kvikmyndaleikstjóri. Ritföng hafa ekki verið jafn vinsæl á síðustu árum og þau voru hér áður fyrr. Blað og penni hafa lotið í lægra haldi fyrir tölvuskjá og lyklaborði enda hefur bróðurpartur daglegra skrifa færst yfir á stafrænt form. New York Times greindi hins vegar nýlega frá því að sala og vinsældir blekpenna hefðu færst í aukana á síðustu árum og ýjað er að eins konar endurkomu sjálfblekunganna. Fyrirbærið verður skoðað nánar í þætti dagins og rætt verður við Árna Sigurðsson, sérlegum áhugamann um blekpenna. Og tónlist kemur við sögu í Lestinni í dag. Platan Hive Mind eftir RogB hljómsveitina The Internet erfist í beinan svartan karl- og kvennlegg frá fönk- og sálarhetjum fortíðarinnar, og svo er sáldrað veglega yfir með tilraunakenndari nútímakryddum. Davíð Roach Gunnarsson segir hlustendum upp og ofan af Internetinu, The Internet, í þættinum í dag.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    53 min