Lestin

Lestin

Download on the App Store

All Lestin episodes

  • Mark Hollis, Green Book, tilvist, mannleiki og hið ómannlega
    Lestin minnist í dag enska tónlistarmannsins Marks Hollis sem andaðist á mánudag, 64ra ára að aldri. Hollis var forsprakki hljómsveitarinnar Talk Talk sem naut mikilla vinsælda en ekki síður virðingar á níunda áratug síðustu aldar. Hljómsveitin var starfrækt í tíu ár og gaf á ferli sínum út fimm plötur, á þeim tíma þróaðist tónlistin frá aðgengilegu synta-poppi til tilraunakenndrar tónlistar þar sem saman komu áhrif úr ýmsum áttum, meðal annars frá jazztónlist og klassískri tónlist. Síðustu tvær plötur hljómsveitarinnar hafa löngum þótt marka upphaf tónlistarstefnu sem kennd er við post-rokk, plöturnar voru lítt til vinsælda fallnar á sínum tíma, en hafa í seinni tíð verið hafnar til skýjanna af tónlistaráhugafólki út um allan heim. Mark Hollis gaf út eina sólóplötu árið 1998, plötu sem margir hafa miklar mætur á, en yfirgaf síðan sviðsljósið. Í Lestinni í dag verður fjallað um feril Marks Hollis og hljómsveitarinnar Talk Talk, gestir þáttarins verða tónlistarmennirnir Borgar Magnason og Úlfur Eldjárn. Marta Sigríður Pétursdóttir kvikmyndarýnir fjallar um kvikmyndina Green Book eftir bandaríska kvikmyndaleikstjórann Peter Farrelly, en myndin var valin besta mynd ársins á Óskarsverðlaunahátíðinni sem fram fór um helgina. Og Karl Ólafur Hallbjörnsson fjallar í pistli sínum í dag um tilvistina, mannleika og hið ómannlega.
    Umsjón: Eiríkur Guðmundsson.
    55 min
  • Elstu ljósmyndir Íslands, Studio Sol, Halldór Armand
    Í Lestinni í dag verður meðal annars hugað að elstu ljósmyndum okkar Íslendinga, „ógeðslegu samfélagi“ innan gæsalappa, og hinu guðlega, hinu forna og hinu kvenlega. & again it descends to the earth, og aftur stígur það niður til jarðar, er yfirskrift sýningar listakonunnar Kathy Clark sem hefst í Stúdíó Sol um helgina. Í innsetningunni vinnur listakonan með hið forna, guðlega og kvenlega, allt í nýju sýningarrými Dariu Andrews sem jafnframt er heimili hennar. Lestin lítur við í Studio Sol í dag. Nú eru 180 ár frá því að Dagúerreótýpan var kynnt heiminum - með þeirri tækni breiddist ljósmyndin út meðal almennings og síðan þá hefur miðillinn hægt og rólega þróast yfir í það sem við þekkjum mætavel í dag - meðal annars þessa laufléttu myndavél í snjallsímum okkar. Í þætti dagsins verður hugað að því hvernig við lesum í og nálgumst ljósmyndir almennt. Við heimsækjum Ljósmyndasafn Íslands, stofnun sem hefur að geyma sex og hálfa milljón ljósmynda úr íslensku þjóðlífi, og má rekja elstu ljósmynd okkar Íslendinga til sirka 1850. Meira um það hér á eftir.
    Halldór Armand Ásgeirsson rithöfundur fjallar um hvort og þá hvers vegna Ísland er „ógeðslegt samfélag“?
    Umsjónarmenn: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Anna Marsibil Clausen.
    55 min
  • Að eigna sér baráttu annarra - Hatari í Eurovision, Óskarsverðlaunin,
    Efni Lestarinnar í dag: Framlag Íslands í Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva, sem fram fer í Tel Aviv í Ísrael í maí, verður valið á laugardag. Óhætt er að segja að lag Hatara, Hatrið mun sigra, hafi vakið mesta athygli af þeim fimm lögum sem koma til greina. Sitt sýnist hverjum um lagið og atriðið, sem og það hvort yfir höfuð sé rétt að taka þátt í keppninni, í ljósi ítrekaðra mannréttindabrota Ísraelsstjórnar í samskiptum hennar við Palestínumenn. Á föstudag birtist í Stundinni grein eftir Nínu Hjálmarsdóttur, sviðslistakonu, listgagnrýnanda og framleiðanda, sem ber yfirskriftina: ,,Að eigna sér baráttu annarra - Hatari í Eurovision." Í greininni segist Nína meðal annars ekki efast um að meðlimir hljómsveitarinnar séu einlægir í stuðningi sínum við málstað Palestínu, en hún heldur því fram að með gjörningi sínum vinni þeir gegn málstaðnum, þeir eigni sér baráttu annarra. Og hún staðhæfir að mikill meirihluti Palestínumanna (rithöfundar, listamenn, menningarstofnanir meðtalin) líti svo á að það besta sem fólk og stofnanir frá öðrum þjóðum geti gert til að hjálpa, sé að sniðganga Ísrael, þar með talið menningarviðburði. Meðlimir Hatara hafa sagt að fráleitt sé að taka þátt í Söngvakeppni sem haldin er í ríki sem traðkar á mannréttindum, en úr því sem komið sé, verði Íslendingar að nýta dagskrárvald sitt til að vekja athygli á pólitísku inntaki keppninnar og framgöngu Ísraelsríkis. Í Lestinni í dag verður rætt við Þórunni Ólafsdóttur sem starfað hefur að mannúðarmálum í Palestínu og víðar, um ýmsar hliðar þessa flókna máls. Óskarsverðlaunin voru afhent Kaliforníu í nótt. Aldrei þessu vant var enginn kynnir á hátíðinni en að öðru leyti gekk lífið nokkurn veginn sinn vanagang; fötin voru fín, ræðurnar voru tilfinningaþrungnar og einhver datt af sviðinu. Lestin rennir í hápunkta Óskarsins með aðstoð Ingu Söru Guðmundsdóttur, Óskarssérfræðings Rúv Núll. Og ekkert lát virðist á vinsældum ofurhetja ýmiss konar en systkinin í The Umbrella Academy slá nýjan tón með því að setja fjölskylduerjur og systkinaríg í forgrunn í þessum skemmtilegu þáttum sem sýndir eru á Netflix. Áslaug Torfadóttir fjallar um The Umbrella Academy í Lestinni í dag.
    Umsjón: Anna Marsibil Clausen og Eiríkur Guðmundsson.
    55 min
  • Bauhaus, Roy Anderson, The Roots
    Efni Lestarinnar í dag: Á þessu ári eru hundrað ár liðin frá því að hinn áhrifamikli skóli Bauhaus var stofnaður í Weimar í Þýskalandi. Þar var lögð áhersla á að sameina margar greinar, arkitektúr, hönnun og iðngreinar. Stofnandi skólans var þýski arkitektinn Walter Gropius og var hann starfræktur í þremur borgum á árunum 1919 til 1933, og hafði mikil víða um heim. Í Lestinni í dag verður fjallað um sögu, hugmyndafræði og áhrif Bauhaus, gestir þáttarins verða þau Harpa Þórsdóttir, safnstjóri Listasafns Íslands, og Aðalsteinn Ingólfsson, listfræðingur. Norræn kvikmyndahátíð hefur göngu sína í Norræna húsinu í dag og stendur yfir til sunnudags. Þema hátíðarinnar í ár er húmorískur realismi og sænski kvikmyndaleikstjórinn Roy Anderson. Fjallað verður um Anderson í þætti dagsins og rætt við Arnbjörgu Mariu Danielsen, dagskrárstjóra Norræna hússins. Og á laugardaginn verða tuttugu ár liðin frá útgáfu plötunnar Things Fall Apart, allt sundrast - sem er krúnudjásnið í höfundarverki rappsveitarinnar The Roots - og Lestin fagnar því af lífs og sálar kröftum. Platan sækir titil sinn í bók nígeríska höfundarins Chinua Achebe og var tekin upp í Electric Lady-hljóðveri Jimi Hendrix, og stendur fyllilega undir sögulegu vigtinni sem því fylgir. Davíð Roach Gunnarsson fræðir hlustendur um Things Fall Apart og The Roots í Lestarferð dagsins.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson.
    55 min
  • Derek Jarman, Alita, Ken Nordine, stórsagnig og frásagnir
    Efni Lestarinnar í dag: Í gær voru 25 ár liðin síðan breski kvikmyndagerðarmaðurinn Derek Jarman lést af völdum HIV. Í þættinum í dag verður rifjuð upp áhrifarík bók eftir þennan merka listamann. Marta Sigríður Péturdóttir fjallar um bandarísku kvikmyndina Alita: Battle Angel sem er byggð á vinsælli Manga-teiknimyndasögu eftir japanska listamanninn Yukito Kishiro. Um er að ræða cyber-pönk vísindaskáldsögutrylli úr smiðju kanadíska leikstjórans James Cameron, sem framleiðir myndina og skrifar handritið en leikstjórnin er hins vegar í höndum bandaríska kvikmyndaleikstjórans Roberts Rodriguez. Bandaríska ljóðskáldið, þulurinn og djasstónlistarmaðurinn Ken Nordine er látinn, hann andaðist á laugardaginn, 98 ára gamall. Nordine er talinn einn besti þulur frá upphafi í útvarpi og sjónvarpi. Hann var frægur fyrir auðþekkjanlega og djúpa bassarödd sína sem margir þekktu í gegnum auglýsingar og stiklur, sem og djasstónlist hans, sem kennd var við orðadjass. Þórður Ingi Jónsson fjallar um líf og störf þessa merka manns í þættinum dag. Og Karl Ólafur Hallbjörnsson fjallar í pistli dagsins um frásagnir, stórsagnir og póstmódernisma.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson.
    55 min
  • Brun Ganz, fjölmiðlafrumvarp, Sergo Bisquets
    Efni Lestarinnar í dag: Svissneski leikarinn Bruno Ganz andaðist á föstudag, 77 ára gamall. Ganz var einhver þekkasti kvikmyndaleikari Evrópu, átti að baki feril sem spannaði hálfa öld, í leikhúsi, kvikmyndum og sjónvarpi. Á ferli sínum lék hann í ríflega hundrað kvikmyndum og var margverðlaunaður. Þekktastur var Ganz fyrir hlutverk sín í myndum á borð við Himinn yfir berlín, eftir þýska kvikmyndaleikstjórann Wim Wenders, frá árinu 1987, og Downfall frá árinu 2004, þar sem Ganz lék Adolf Hitler afar eftirminnilega. Ganz verður minnst í Lestinni í dag, gestir þáttarins verða Friðrik Þór Friðriksson kvikmyndaleikstjóri og Hjálmar Sveinsson borgarfulltrúi. Fjölmiðlar um allan heim eiga undir högg að sækja en líklega er það ekkert nýtt. Valgerður Jóhannsdóttir, aðjúnkt í blaða- og fréttamennsku tekur sér far með Lestinni í dag og fer yfir fjölmiðlafrumvarp menntamálaráðherra um stuðning við einkarekna fjölmiðla, og svarar spurningum um það hvers vegna það kann að vera þarft og af hverju svo margir forráðamenn einkarekinna fjölmiðla fetta fingur út í það. Í pistli sínum í dag leiðir Tómas Ævar Ólafsson hugann að Holu íslenskra fræða vestur á melum í Reykjavík og spyr hvort endilega þurfi að byggja þetta blessaða Hús íslenskra fræða. Og Halldór Armand Ásgeirsson rithöfundur flytur að venju pistil í Lestinni á þriðjudegi, og fjallar í dag um fótboltamann og afdrífaríka ákvörðun sem hann tók í gær.
    Umsjón: Anna Marsibil Clausen og Eiríkur Guðmundsson.
    55 min
  • Dj flugvél og geimskip, Herdís Stefánsdóttir, Berlinale, Luther
    Í Lestinni í dag verður meðal annars rætt við dj flugvél og geimskip, sem er listamannsnafn Steinunnar Harðardóttir, en hún sendi á dögunum frá sér sína þriðju plötu, sem ber heitið Our Atlantis! Steinunn er nýkomin úr tónleikaferðalagi um Evrópu og heldur útgáfutónleika í Iðnó á miðvikudag, Steinunn verður gestur Lestarinnar í dag. Önnur tónlistarkona kemur við sögu í þættinum í dag, en ferill Herdísar Stefánsdóttur kvikmyndatónskálds tók skyndilegan og óvæntan vaxtarkipp á síðasta ári þegar hún var beðin um að semja tónlist fyrir Warner Brothers-kvikmyndina The Sun is Also a Star. Á þeim tíma var Herdís einnig að upplifa persónulegan vaxtarkipp, aðallega um sig miðja þar sem hún bar barn undir belti; var komin 30 vikur á leið. Í þættinum í dag verður rætt við Herdísi um feril hennar, frá rafpoppi sveitarinnar East of My Youth, inn í heim kvikmyndanna, og um skörun tveggja stærstu verkefna hennar til þessa. Einnig verður hugað að kvikmyndum í þættinum í dag, en kvikmyndahátíðinni í Berlín lauk núna um helgina og í pistli frá hátíðinni segir Ásgeir H Ingólfsson frá sigurmyndinni, Samheiti, sem fjallar um Ísraelsmann í Frakklandi og erfitt samband hans við föðurlandið. Einnig fjallar Ásgeir um hneykslismál sem skekur frönsku kirkjuna, ferðasögu ensku tónlistarkonunnar P.J. Harvey um Afganistan, Kósóvu og Washington, og rússneska barnahermenn í fyrri heimstyrjöldinni. Og Áslaug Torfadóttir fjallar í dag um bresku sjónvarpsþáttaröðina Luther.
    Umsjón: Anna Marsibil Clausen og Eiríkur Guðmundsson.
    55 min
  • Margerite Duras, umhverfiskvíði, Robyn
    Efni Lestarinnar í dag: Á Frönsku kvikmyndahátíðinni sem nú stendur yfir í Háskólabíói er sýnd myndin La Douleur, eða Kvölin, en hún byggir á samnefndri sögu eftir franska nýsögu-höfundinn Marguerite Duras. Sögusvið bókarinnar er París í júní árið 1944. Aðalpersóna er hún sjálf og segir sagan frá því þegar þáverandi eiginmaður hennar, Robert Antelme, rithöfundur og forystumaður í andspyrnuhreyfingunni, var handtekinn og fluttur í útrýmingabúðir. Marguerite berst við óttann um að heyra aldrei frá honum aftur. Frásagnir byggja á meintri dagbók sem Duras segist hafa skrifað á þessum tíma. Lestin skoðar La Douleur og frásagnarstíl Duras í þætti dagsins. Rætt verður við Torfa Tulinius, prófessor í íslenskum miðaldafræðum við Háskóla Íslands, en hann þekkir vel til verka Duras. Einnig verður í Lestinni í dag rætt við Sólu Þorsteinsdóttur menningarfræðing um umhverfiskvíða og fleira sem tengist orðræðunni um áhrif loftslagsbreytinga, en hún skrifaði meistararitgerð sem nefnist: ,,Fögur orð og fyrirheita duga okkur ekki lengur." Íslensk loftslagsorðræða greind í ljósi kenninga um loftsslagssinnuleysi." Og hugað verður að nýrri tónlist í þætti dagsins: Sænska súperpoppskvísan Robyn gaf út sína áttundu breiðskífu seint á síðasta ári, eftir átta ára hlé. Robyn verður fertug í sumar, en er búin að vera poppstjarna frá því áður en hún komst á unglingsaldur, þó hún hafi fyrst virkilega fundið fjölina sína fyrir rúmum áratug. Sérgrein hennar er hárnákvæma og ljúfsára melankólían sem gefur annars venjulegu popplagi þessa auknu vigt sem það þarf til að lifa lengur og dýpra í meðvitund aðdáenda en ella. Davíð Roach Gunnarsson segir frá Robyn og plötunni Honey í Lestinni í dag.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson.
    55 min
  • Floni, Le Grand Bain, Vice, J Dilla, lýðræðishugtakið
    Tónlistarmaðurinn Floni vakti fyrst athygli innan hiphop og rappsenunnar með útgáfu fyrstu breiðskífu sinnar árið 2017. Í síðustu viku gaf hann út aðra breiðskífu sína, Floni 2. Lestin kynnir sér plötuna nánar í þætti dagsins - Floni tekur sér far með Lestinni og leyfir hlustendum að skyggnast inn í hugarheim sinn og tónlistarsköpun. Marta Sigríður Pétursdóttir fjallar um opnunarmynd Franskrar kvikmyndahátíðar, Le Grand Bain, Að synda eða sökkva, gamanmynd sem fjallar um átta miðaldra karlmenn í tilvistarkreppu sem stunda samhæfða sundfimi og stefna á heimsmeistaramót. Marta fjallar einnig um kvikmyndina Vice eftir leikstjóra kvikmyndarinnar The Big Short, Adam McKay, mynd sem fjallar um ævi og störf valdamesta varaforseta Bandaríkjanna, Dick Cheney. Bandaríski upptökustjórinn, taktsmiðurinn og rapparinn J Dilla hefði orðið 45 ára á dögunum en hann lést árið 2006. Dilla hefur verið kallaður Mozart rappsins en aðdáendur hans og fylgjendur fagna svokölluðum Dilla degi þann 6. febrúar. Stiklað verður á stóru um feril J Dilla og rætt við Magnús Tryggvason Eliassen, trommara í Dillalude, íslenskri hljómsveit sem tileinkuð er meistaranum. Og Karl Ólafur Hallbjörnsson fjallar í pistli dagsins um mörk lýðræðishugtaksins og hvort unnt sé að víkka þau út og gera hið efnahagslega að hinu pólitíska.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    55 min
  • Pólitík í Söngvakeppninni, hljóðmengun, Albert Finney
    Efni Lestarinnar í dag: Pólitískar stimpingar eru nær óumflýjanlegar þegar fulltrúar 42 þjóðríkja koma saman enda er yfirleitt eitthvert hitamál á borðinu í kringum Söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva. Réttindi hinsegin fólks, átök á Krímsskaga og þjóðarmorð eru allt dæmi um málefni sem sett hafa svip sinn á keppnir fortíðar og eins þykir mörgum mikið fara fyrir frændhyglinni í kosningunum um besta lagið. Í ár er pólitíkin komin til Íslands jafnvel áður en sjálf aðalkeppnin hefst. Lagið "Hatrið mun sigra" er komið í lokaumferð Söngvakeppni sjónvarpsins en það vísar í deilur Ísraela og Palestínumanna. Í Lestinni í dag er rætt við sérfræðinga FÁSES - Félag áhugamanna um söngvakeppni evrópskra sjónvarpsstöðva - um pólitík í söngvakeppninni og það hvort fleiri mótmælalög finnist í erlendum undankeppnum þetta árið. Í pistli sínum í dag hlustar Tómas Ævar Ólafsson á Reykjavíkurborg og veltir því fyrir sér hvort finna megi þögnina sjálfa innan borgarmúranna. Er þagnarvænt í Reykjavík eða er hljóðmengunin búin að leggja höfuðborgina undir sig, spyr Tómas í dag. Halldór Armand Ásgeirsson rithöfundur flytur pistil í Lestinni á þriðjudegi og enska leikarans Alberts Finney verður minnst, en hann andaðist í síðustu viku, 82ja ára gamall.
    Umsjón: Anna Marsibil Clausen og Eiríkur Guðmundsson
    55 min