Lestin

Margerite Duras, umhverfiskvíði, Robyn


Listen Later

Efni Lestarinnar í dag: Á Frönsku kvikmyndahátíðinni sem nú stendur yfir í Háskólabíói er sýnd myndin La Douleur, eða Kvölin, en hún byggir á samnefndri sögu eftir franska nýsögu-höfundinn Marguerite Duras. Sögusvið bókarinnar er París í júní árið 1944. Aðalpersóna er hún sjálf og segir sagan frá því þegar þáverandi eiginmaður hennar, Robert Antelme, rithöfundur og forystumaður í andspyrnuhreyfingunni, var handtekinn og fluttur í útrýmingabúðir. Marguerite berst við óttann um að heyra aldrei frá honum aftur. Frásagnir byggja á meintri dagbók sem Duras segist hafa skrifað á þessum tíma. Lestin skoðar La Douleur og frásagnarstíl Duras í þætti dagsins. Rætt verður við Torfa Tulinius, prófessor í íslenskum miðaldafræðum við Háskóla Íslands, en hann þekkir vel til verka Duras. Einnig verður í Lestinni í dag rætt við Sólu Þorsteinsdóttur menningarfræðing um umhverfiskvíða og fleira sem tengist orðræðunni um áhrif loftslagsbreytinga, en hún skrifaði meistararitgerð sem nefnist: ,,Fögur orð og fyrirheita duga okkur ekki lengur." Íslensk loftslagsorðræða greind í ljósi kenninga um loftsslagssinnuleysi." Og hugað verður að nýrri tónlist í þætti dagsins: Sænska súperpoppskvísan Robyn gaf út sína áttundu breiðskífu seint á síðasta ári, eftir átta ára hlé. Robyn verður fertug í sumar, en er búin að vera poppstjarna frá því áður en hún komst á unglingsaldur, þó hún hafi fyrst virkilega fundið fjölina sína fyrir rúmum áratug. Sérgrein hennar er hárnákvæma og ljúfsára melankólían sem gefur annars venjulegu popplagi þessa auknu vigt sem það þarf til að lifa lengur og dýpra í meðvitund aðdáenda en ella. Davíð Roach Gunnarsson segir frá Robyn og plötunni Honey í Lestinni í dag.
Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

LestinBy RÚV

  • 4.8
  • 4.8
  • 4.8
  • 4.8
  • 4.8

4.8

5 ratings


More shows like Lestin

View all
Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

473 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

146 Listeners

Þarf alltaf að vera grín? by Þarf alltaf að vera grín?

Þarf alltaf að vera grín?

215 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

23 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

20 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

71 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

27 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

21 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

LANGA - hlaðvarp by Snorri Björns

LANGA - hlaðvarp

4 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners