Lestin

Mark Hollis, Green Book, tilvist, mannleiki og hið ómannlega


Listen Later

Lestin minnist í dag enska tónlistarmannsins Marks Hollis sem andaðist á mánudag, 64ra ára að aldri. Hollis var forsprakki hljómsveitarinnar Talk Talk sem naut mikilla vinsælda en ekki síður virðingar á níunda áratug síðustu aldar. Hljómsveitin var starfrækt í tíu ár og gaf á ferli sínum út fimm plötur, á þeim tíma þróaðist tónlistin frá aðgengilegu synta-poppi til tilraunakenndrar tónlistar þar sem saman komu áhrif úr ýmsum áttum, meðal annars frá jazztónlist og klassískri tónlist. Síðustu tvær plötur hljómsveitarinnar hafa löngum þótt marka upphaf tónlistarstefnu sem kennd er við post-rokk, plöturnar voru lítt til vinsælda fallnar á sínum tíma, en hafa í seinni tíð verið hafnar til skýjanna af tónlistaráhugafólki út um allan heim. Mark Hollis gaf út eina sólóplötu árið 1998, plötu sem margir hafa miklar mætur á, en yfirgaf síðan sviðsljósið. Í Lestinni í dag verður fjallað um feril Marks Hollis og hljómsveitarinnar Talk Talk, gestir þáttarins verða tónlistarmennirnir Borgar Magnason og Úlfur Eldjárn. Marta Sigríður Pétursdóttir kvikmyndarýnir fjallar um kvikmyndina Green Book eftir bandaríska kvikmyndaleikstjórann Peter Farrelly, en myndin var valin besta mynd ársins á Óskarsverðlaunahátíðinni sem fram fór um helgina. Og Karl Ólafur Hallbjörnsson fjallar í pistli sínum í dag um tilvistina, mannleika og hið ómannlega.
Umsjón: Eiríkur Guðmundsson.
...more
View all episodesView all episodes
Download on the App Store

LestinBy RÚV

  • 4.8
  • 4.8
  • 4.8
  • 4.8
  • 4.8

4.8

5 ratings


More shows like Lestin

View all
Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

474 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

146 Listeners

Þarf alltaf að vera grín? by Þarf alltaf að vera grín?

Þarf alltaf að vera grín?

215 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

23 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

24 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

20 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

71 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

27 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

21 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

LANGA - hlaðvarp by Snorri Björns

LANGA - hlaðvarp

4 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

28 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

10 Listeners