Lestin

Lestin

Download on the App Store

All Lestin episodes

  • Búsáhaldabyltingin, popúlismi, Munstur, Shoplifters
    Efni Lestarinnar í dag: Hljómsveitin og fjöllista-tvíeykið Munstur gaf út sína fyrstu breiðskífu 15. janúar. Platan ber heitið MMMM og er nú aðgengileg á Spotify, liðsmenn bandsins, Kristinn Arnar Sigurðsson og Atli Arnarsson, fræða hlustendur nánar um plötuna í þætti dagsins. Marta Sigríður Pétursdóttir fjallar í dag um kvikmyndina Shoplifters, eða Búðaþjófa, eftir japanska leikstjórann Hirokazu Kore-eda. Einnig verður þess minnst í Lestinni í dag að um þessa dagana eru tíu ár liðin frá búsáhaldabyltingunni, í janúar árið 2009. Og Karl Ólafur Hallbjörnsson fjallar í pistli dagsins um popúlisma, eða lýðskrum.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    55 min
  • Mary Oliver, Womens March, La Borde og Ör
    Efni Lestarinnar í dag: Um helgina fór kvennagangan "The Women's March" fram í þriðja skipti. Gangan sú var fyrst farin árið 2017, daginn eftir að Donald Trump Bandaríkjaforseti sór embættiseið. Viðburðurinn varð að stærstu einstöku mótmælum í sögu Bandaríkjanna, þar sem konur og stuðningsmenn þeirra úr öllum ríkjum fordæmdu orð, gjörðir og stefnumál nýja þjóðhöfðingjans í garð kvenna og annarra undirokaðra hópa. En jafnvel þá, í fyrstu göngunni, var komið babb í bátinn. Í Lestinni í dag verður fjallað um hvernig sameiningartáknið kvennagangan leiddi til sundrungar. Lestin minnist einnig í dag bandaríska skáldsins Mary Oliver, sem andaðist í síðustu viku. Oliver, sem var fædd árið 1935, var á meðal virtustu og vinsælustu ljóðskálda Bandaríkjanna. Magnús Sigurðsson ritöfundur hefur þýtt ljóð eftir þessa merku skáldkonu, og hann verður gestur Lestarinnar í dag. Í pistli sínum í dag leitar Tómas Ævar Ólafsson að tilgangi lífsins á geðsjúkrahúsinu La Borde og í skáldsögunni Ör eftir Auði Övu Ólafsdóttur. Og Halldór Armand Ásgeirsson rithöfundur ávarpar hlustendur að venju í Lestinni á þriðjudegi.
    Umsjón: Anna Marsibil Clausen og Eiríkur Guðmundsson
    54 min
  • Pawel Adamowicz, blóðrauður tunglmyrkvi, Caroline Calloway, Dirty John
    Efni Lestarinnar í dag: Pawel Adamowicz, borgarstjóri í G-dansk í Póllandi, var borinn til grafar um helgina, en hann andaðist á mánudag eftir að hafa orðið fyrir hnífstunguárás á góðgerðarsamkomu, þar sem hann flutti ávarp, á sunnudag fyrir rúmri viku. Þúsundir manna komu saman í G-dansk um helgina til að kveðja borgarstjórann og heiðra minningu hans, og þjóðarsorg var lýst yfir í Póllandi. Adamowicz hafði verið borgarstjóri í G-dansk í rúm tuttugu ár, eða frá árinu 1998, hann var frjálslyndur í skoðunum, og hafði meðal annars gagnrýnt mjög stjórnarflokkinn í landinu, sem kennir sig við Lög og réttlæti, hann var andvígur áherslu núverandi valdhafa í Póllandi á þjóðernishyggju og hafði staðið vörð um réttindi innflytjenda og samkynhneigðra á tímum sem einkennast af íhaldsemi og þjóðernishyggju. Lestin minnist Adamowicz í dag, og rýnir í voðaverkið G-dansk fyrir rúmri viku, gestur þáttarins verður Pawel Bartoszek, borgarfulltrúi og fyrrverandi alþingismaður. Í nótt átti sér stað stór stund í lífi stjörnuspekúlanta, magnþrungið sjónarspil þar sem himintunglin röðuðust einhvern veginn hárrétt svo út varð blóðrauður tunglmyrkvi. Rætt verður í Lestinni í dag við Sævar Helga Bragason um tunglmyrkva næturinnar, en einnig verður rýnt í ýmsar þjóðsögur og mýtur sem tengjast ,,blóðmánanum." Caroline Calloway, sem hefur verið kölluð fyrsti Instagram-áhrifavaldurinn, sætir nú mikilli gagnrýni eftir að notandi á Twitter sakaði hana um svik. Calloway seldi upp á fjölda fjögurra stunda námskeiða í „sköpun“ og rukkaði hvern þáttakanda um andvirði 20.000 króna. Nína Richter segir nánar frá í Lestinni í dag. Og Áslaug Torfadóttir fjallar í dag um bandarísku sjónvarpsþættina Dirty John.
    Umsjón: Anna Marsibil Clausen og Eiríkur Guðmundsson
    55 min
  • Helgi Grímsson, Leshringurinn 101, James Blake, eggið og #10yearchalle
    Efni Lestarinnar í dag: Eftir tæpan mánuð fer af stað nýr leshringur í Borgarbókasafninu; Leshringurinn 101. Á fyrsta starfsári hringsins verða lesnar bækur sem allar gerast í miðbæ Reykjavíkur; Sólskinshestur eftir Steinunni Sigurðardóttur, Konur eftir Steinar Braga, smásögur eftir Ástu Sigurðardóttur og Táningabók eftir Sigurð Pálsson. Umsjónarmaður er Guðrún Baldvinsdóttir, verkefnastjóri á safninu en rætt verður við hana í Lestinni í dag, og rýnt nánar í fyrirbærið leshringur. Einnig verður komið við í Gallerí göngum í Háteigskirkju en þar stendur nú yfir sýningin Málað með þræði og orðum, þar sem Helgi Grímsson sýnir útsaumsmyndir og ljóð. Hljómsveitin kef lavík er einstakt fyrirbæri á íslensku tónlistarsenunni. Í tónlist sinni kanna þeir ystu mörk sjálfseyðandi karlmennsku þúsaldarkynslóðarinnar með augum sem eiga sér ekki hliðstæðu. Hljómsveitin heldur tónleika á Kex hostel á laugardag, og af því tilefni verður rifjuð upp umfjöllun Davíðs Roach Gunnarssonar um kef lavík í Lestinni í dag. Og enski tónlistarmaðurinn James Blake kemur við sögu í þættinum í dag, en á morgun kemur út hans fjórða breiðskífa sem nefnist Assume Form. Nína Richter verður einnig gestur okkar, hún segir okkur fréttir af vefnum og samfélagsmiðlum
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    55 min
  • Hræðsla við myndavélina, Tommasi, heimspekilegt sjónarhorn kvikmynda
    Efni Lestarinnar í dag: Honoré de Balzac, einn merkasti rithöfundur 19.aldar, var logandi hræddur við ljósmyndavélina. Hann taldi líkamann samsettan úr lögum draugalegra smásæja himna sem myndavélin gæti lagt hald á, aðskilið og fjarlægt. Hann óttaðist sumsé að ljósmyndin gæti rænt hann hluta af sjálfinu. Ljósmyndun hefur breyst töluvert á síðustu tveimur öldum - með hliðsjón af Instagram og sjálfu-kúltúr samtímans verður spurt í Lestinni í dag hvort hræðsla skáldsins hafi kannski ekki verið alveg ástæðulaus. Tómas Stankiewicz hefur verið að gera það gott bæði hér heima og erlendis en hann gerir tónlist undir nafninu Tommasi. Ásamt því að vinna með tónlistarfólki frá þekktum plötuútgáfum eins og Brainfeeder og Stones Throw er hann með sinn eiginn útvarpsþátt á tónlistarstöðinni virtu, NTS Radio, sem starfrækt er í Lundúnum, Los Angeles, Shanghai og Manchester. Tómas er mikill áhugamaður um svokallaða safnatónlist, sem hann segir frá í þættinum í dag. Og Karl Ólafur Hallbjörnsson fjallar í pistli dagsins um heimspekilegt sjónarhorn kvikmyndarinnar.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    55 min
  • Ljóðasetur Íslands, endalok heimsins, nýyrði í íslenskum handbolta, sj
    Í Lestinni í dag verður meðal annars rætt við Þórarin Hannesson, stofnanda og forstöðumann Ljóðaseturs Íslands, sem starfrækt er á Siglufirði en aðsókn þar hefur stóraukist að undanförnu, eftir að breska ferðaskrifstofan Super Break fór að bjóða upp á beint flug frá Bretlandi til Akureyrar yfir vetrartímann. Erlendir ferðamenn sýna íslenskri ljóðlist mikinn áhuga og heimsækja setrið þar sem þeir fræðast um ljóðlistina og hlusta á ljóð. Á tímum loftslagsbreytinga, kjarnavopna og misskiptingar virðist vera auðveldara að hugsa sér endalok heimsins heldur en endalok kapítalismans. Handbolti kemur að gefnu tilefni við sögu í Lestinni í dag, rætt verður við Guðmund Marínó Ingvarsson sem hefur fjallað um nýyrði í íslenskum handbolta. Og Halldór Armand Ásgeirsson rithöfundur flytur pistil í Lestinni á þriðjudegi og fjallar í dag um sjálfsstjórnarforrit og dómsdag.
    Umsjón: Anna Marsibil Clausen og Eiríkur Guðmundsson
    55 min
  • Seinkun klukkunnar, Marie Kondo og tiltekt, Escape at Dannemora
    Í Lestinni í dag verður meðal annars fjallað um tímann, en það hefur varla farið framhjá neinum að undanfarið hafa menn mjög rætt um það hvort seinka eigi klukkunni á Íslandi. En hvernig hugsum við um tímann og hvernig skiljum við hann? Viðmælandi þáttarins verður Eyja Margrét Brynjarsdóttir heimspekingur, sem skrifað hefur um tímann og eðli hans. Þessa dagana svolgra áhorfendur um allan heim í sig Netflix-þætti minimalisma-sérfræðingsins Marie Kondo um tiltekt. Okkur finnst fæstum gaman að þrífa, en af hverju finnst okkur þá gaman að horfa á aðra gera það? Meira um þetta í Lestinni í dag. Og Áslaug Torfadóttir fjallar í dag um bandarísku sjónvarpsþættina Escape at Dannemora, sem bandaríski leikarinn Ben Stiller leikstýrir, þar sem í aðalhlutverkum eru meðal annarra Benicio del Toro, Patricia Arquette og Paul Dano.
    Umsjón: Anna Marsibil Clausen og Eiríkur Guðmundsson
    55 min
  • Giacomo Leopardi, Eurosonic, Khruangbin
    Giacomo Leopardi var ítalskt ljóðskáld, ritgerðahöfundur og heimspekingur. Það er gjarnan talað um hann sem eitt af höfuðskáldum Ítala á 19. öld, og sagt að ekkert ítalskt skáld hafi verið jafn ástælt meðal þjóðar sinnar og Leopardi. Hann er kallaður skáld bölsýnisins, klökkvaskáld, enda myrkrið, nóttin, endalok, dauði og tilgangsleysi fyrirferðarmikil þemu í kvæðaskap hans og skrifum. Við æltum að fjalla um eina af ritgerðum hans í þætti dagsins, hún nefnist Samtal Náttúrunnar og Íslendingsins, og er að finna í þekktu Siðferðispistla-safni Leopardis. Ólafur Gíslason listfræðingur þýddi ritgerðina og hann verður gestur Lestarinnar í dag.
    Tónlistarhátíðin Eurosonic fer fram í Groningen í Hollandi í næstu viku. Þetta er tónlistarráðstefna og hátíð þar sem helstu útvarpsstöðvar og fulltrúar tónlistarhátíða víðsvegar um Evrópu koma saman til að ráða ráðum sínum og kynnast nýrri og athyglisverðri tónlist frá hinum ýmsu evrópulöndum. Sigtryggur Baldursson er framkvæmdastjóri ÚTÓN - Útflutningsskrifstofu íslenskrar tónlistar - hann verður gestur okkar hér rétt á eftir.
    Og tónlist kemur meira við sögu í þættinum í dag. Hljómsveitin Khruangbin er skipuð þeim Mark Speer, Lauru Lee, og Donald Johnson, hljóðfæraskipan er hefðbundin, gítar, bassi og trommur, en hljómsveitin er þó eins langt frá staðlaðri rokkhljómsveit og hugsast getur. Á plötunni Con Todo El Mundo leggja þau heiminn að fótum sér í útsýnisferð um exótískar strandir og eyðimerkur, og tilbiðja grúvið á öllum áningarstöðum. Davíð Roach Gunnarsson segir frá Khruangbin í Lestinni í dag.
    55 min
  • Pete Shelley, Spiderman, First Reformed, ferðalög og útþrá
    Efni Lestarinnar í dag: Pete Shelley, höfuðpaur bresku hljómsveitarinnar Buzzcocks andaðist í byrjun desembermánaðar, 63ja ára að aldri. Buzzcocks var ein aðal pönksveitin á gullöld stefnunnar í Bretlandi en sveitin var þekkt fyrir einlæga og skemmtilega tónlist. Stiklað verður á stóru í þættinum dag um feril þessa merka söngvara, Pete Shelley, og rætt við Einar Örn Benediktsson tónlistarmann, sem þekkti vel til Shelley og ólst upp við tónlist hans. Marta Sigríður Pétursdóttir rýnir í kvikmyndirnar Spiderman: Into the Spiderverse, nýjustu aðlögunina á ævintýrum köngulóarmannsins, og First Reformed, sálfræðitrylli eftir leikstjórann og handritshöfundinn Paul Schrader með Ethan Hawke í aðalhlutverki. Karl Ólafur Hallbjörnsson fjallar í pistli sínum í dag um ferðalög og útþrá íslensku þjóðarinnar. Og tunglið kemur við sögu í þættinum í dag, að gefnu tilefni.
    Umsjón: Eiríkur Guðmundsson
    55 min
  • Houllebecq, Bara góðar, Gil-Scott Heron
    Í Lestinni í dag verður meðal annars sagt frá nýjustu skáldsögu franska rithöfundarins Michels Houllebecqs, Seratonin, sem kom út á föstudag, og hefur nú þegar vakið mikla athygli. Einni verður rætt við þær Karen Björgu Þorsteinsdóttur og Maríu Guðmundsdóttur, en þó það muni 58 árum á þeim í aldri eru þær eru báðar hluti af uppistandshópnum Bara góðar sem fram kemur í Þjóðleikhúskjallaranum nú í janúar. ,,Byltingin verður ekki endursýnd. Byltingin verður í beinni. Byltingunni verður ekki sjónvarpað.“ Rappaði Gil-Scott Heron árið 1970 og hélt því fram að allar tilraunir til að fara í auglýsingahlé, endurspila ákveðin atriði eða lýsa byltingunni yrðu lufsulegar og misstu marks í fjölmiðlinum. Í pistli sínum í dag skoðar Tómas Ævar Ólafsson byltingarviðburði í sjónvarpi og spyr hvort byltingunni geti, eftir allt saman, verið sjónvarpað. Og Halldór Armand Ásgeirsson rithöfundur flytur pistil í Lestinni á þriðjudegi.
    Umsjón: Anna Marsibil Clausen og Eiríkur Guðmundsson
    55 min