Efni Lestarinnar í dag: Pete Shelley, höfuðpaur bresku hljómsveitarinnar Buzzcocks andaðist í byrjun desembermánaðar, 63ja ára að aldri. Buzzcocks var ein aðal pönksveitin á gullöld stefnunnar í Bretlandi en sveitin var þekkt fyrir einlæga og skemmtilega tónlist. Stiklað verður á stóru í þættinum dag um feril þessa merka söngvara, Pete Shelley, og rætt við Einar Örn Benediktsson tónlistarmann, sem þekkti vel til Shelley og ólst upp við tónlist hans. Marta Sigríður Pétursdóttir rýnir í kvikmyndirnar Spiderman: Into the Spiderverse, nýjustu aðlögunina á ævintýrum köngulóarmannsins, og First Reformed, sálfræðitrylli eftir leikstjórann og handritshöfundinn Paul Schrader með Ethan Hawke í aðalhlutverki. Karl Ólafur Hallbjörnsson fjallar í pistli sínum í dag um ferðalög og útþrá íslensku þjóðarinnar. Og tunglið kemur við sögu í þættinum í dag, að gefnu tilefni.
Umsjón: Eiríkur Guðmundsson