Lestinni í dag verður meðal annars fjallað um ensku hljómsveitina The Specials sem stofnuð var í Coventry á Englandi árið 1977 og naut á sínum tíma töluverðra vinsælda fyrir tónlist sem kennd er við tónlistarstefnuna ska. Á föstudag kom út fyrsta plata hljómsveitarinnar í tæp tuttugu ár, hún nefnist Encore og hefur hlotið góðar viðtökur. Rætt verður í þættinum í dag við Kjartan Guðmundsson blaðamann um The Specials og tónlistarstefnuna ska sem á rætur að rekja til Jamaika. Aftarlega í hugum okkar búa furðuverur sem við verðum lítið vör við nema við sérstakar aðstæður. Í pistli sínum í dag velti Tómas Ævar Ólafsson fyrir sér svokölluðum andfætlum hugans og tengir þær við flugþreytu, ofskynjanir og trúarbrögð. Og Halldór Armand Ásgeirsson rithöfundur flytur pistil í Lestinni á þriðjudegi.
Umsjón: Anna Marsibil Clausen og Eiríkur Guðmundsson