Efni Lestarinnar í dag: Íslendingar eru ekki þeir einu sem fagna stórafmæli í ár. Á meðan þjóðin fagnar 100 ára fullveldi fagna Pólverjar 100 ára sjálfstæði. Að gefnu tilefni hafa þær Marta Magdalena og Justyna, pólskar konur sem eru búsettar hér á landi, gefið út tímaritið ROK með það að markmiði að brúa bilið milli Íslendinga og Pólverja enda nú um 10% landsmanna af pólskum uppruna. Lestin kynnir sér tímaritið ROK nánar í þætti dagsins. Marta Sigríður Pétursdóttir fjallar í dag um kvikmyndina Roma eftir mexíkóska leikstjórann Alfonso Cuarón. Og Karl Ólafur Hallbjörnsson fjallar um tölvuleiki og íþróttir í pistli dagsins.
Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson