Lestin

Lestin

Download on the App Store

All Lestin episodes

  • Stjörnuspá, Homecoming, Bertolucci
    Efni Lestarinnar í dag: Stjörnuspeki og stjörnufræði; greinar af sama meiði í skilningi hugmyndasögunnar. Stjörnufræðin byggist á vísindalegum staðreyndum, stjörnuspekin... ekki, en það breytir því þó ekki að stjörnuspár eru vinsælt lestrarefni víða um veröld. Stjörnuspeki og spá verður skoðuð nánar í þætti dagsins. Spurt er: Hvers vegna höfum við svo mikinn áhuga á stjörnuspeki? Og hvað segir það um mannveruna? Rætt verður við Sigríði Klingenberg og fræðst nánar um iðju stjörnuspákonunnar. Ítalski kvikmyndaleikstjórinn Bernardo Bertolucci andaðist í Róm í morgun, 77 ára gamall. Bertolucci var einn af risum ítalskrar kvikmyndagerðar, þekktur fyrir myndir á borð við Last Tango in Paris og The Last Emperor, en sú síðarnefnda landaði hvorki fleiri né færri en níu óskarsverðlaunum árið 1987. Lestin rifjar upp feril Bertoluccis, og rætt verður við Ásgrím Sverrisson kvikmyndaleikstjóra. Og í þættinum í dag verður einnig haldið áfram að fá fólk til mæla með bókum sem tala inn í okkar samtíma, með einum eða öðrum hætti, mæla með bókum sem við eigum að lesa hér og nú. Í dag er röðin komin að Þóru Arnórsdóttur sjónvarpskonu. Hlustendur heyra í þættinum í dag hvaða bók varð fyrir valinu hjá henni, og hvers vegna. Og Áslaug Torfadóttir fjallar í dag um bandarísku sjónvarpsþættina Homecoming, eða Heimkomu.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    55 min
  • Rottuleiðir, Gusgus, Snorri Sturluson og Guðmundur Kamban
    Efni Lestarinnar í dag: The Ratline er ný hlaðvarpsþáttaröð frá breska ríkisútvarpinu, BBC. Yfirskrift þáttar hljóðar einhvern veginn svona: nasistar, njósnarar, ást, dauði, leyndardómar og lygar. Í þessari tíu þátta seríu er kafað ofan í sögu Ottos von Wächter, háttsetts liðsforinga í SS-sveitunum, sem náði að flýja réttarhöldin í Nürnberg. Wachter nýtti sér flóttakerfi sem kom fjölda stórglæpamönnum nasista undan réttvísinni, sér í lagi til Suður-Ameríku. Flóttakerfi þetta er gjarnan nefnt rottuleiðir (Ratline). Nánar verður fjallað um fyrirbærið í þætti dagsins með hjálp sagnfræðingsins Þórs Whitehead, sem og hlaðvarpssþáttaröðina The Ratline frá BBC. Einnig verður rætt við Jón Karl Helgason, prófessor við íslensku- og menningardeild Háskóla Íslands, en í erindi sem hann heldur í Reykholti um helgina mun hann leitast við að tengja saman dauða skáldanna Snorra Sturlusonar og Guðmundar Kambans, og virða um leið fyrir sér hugsanleg tengsl þeirra við árið 1918 og skrif Sigurðar Nordals. Erindið nefnir Jón: „Eigi skal höggva: Jeg er ligeglad“. Lausbeislaðar hugleiðingar um fullveldið og karlveldið. Hljómsveitin Gusgus er danstónlistarmekka, tekknó-ráðuneyti og æðsta húsið í íslenskri danstónlist. Gusgus lék fyrir tveimur fullum húsum í Eldborgarsal Hörpu síðasta laugardagskvöld og útsendari Lestarinnar var á svæðinu.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    50 min
  • Richard Brautigan, Lauryn Hill, tímaflakk, Litla Moskva,
    Efni Lestarinnar í dag: Þórður Sævar Jónsson segir frá skáldsögunni Hawkline-skrímslið eftir bandaríska rithöfundinn Richard Brautigan, en bókin er nýlega komin út í íslenskri þýðingu Þórðar. Bandaríski rapparinn og söngkonan Lauryn Hill túrar nú um heiminn í tilefni 20 ára afmæli fyrstu og einu sólóplötu sinnar; The Miseducation of Lauryn Hill. Platan sló í gegn á sínum tíma og er löngum orðin klassík í sögu hiphopsins. Í Lestinni í dag verður fjallað um eitt lag af plötunni í þætti dagsins; lag sem skiptir tónlistarkonuna miklu máli enda lag sem fjallar um fæðingu Zions, fyrsta barns hennar og Rohans Marley. Marta Sigríður Pétursdóttir, kvikmyndarýnir Lestarinnar, fjallar í dag um nýja heimildarmynd eftir Grím Hákonarsonar, Litlu Moskvu, sem fjallar um Neskaupsstað og ítök sósíalista og Alþýðubandalagsins þar í 52 ár. Og Karl Ólafur Hallbjörnsson fjallar í pistli sínum í dag um tímaflakk og hugtök tímans.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    55 min
  • Kvikmyndaheimur nasista, Orgón lækningar, kvikmynd dagsins
    Efni Lestarinnar í dag: Heimildarmyndin Hitler's Hollywood fjallar um kvikmyndaheim nasista frá árinu 1933 til ársins 1945 og það hvernig nasistar földu áróður sinn oft og tíðum í Hollywood-legu léttmeti. Þórður Ingi Jónsson segir frá myndinni í Lestinni í dag. Heimildarmaður hans verður Benedikt Hjartarson, prófessor við Háskóla Íslands. Veturinn er kominn og híðishegðun mannsins nú auðséðari en áður. Á tímum sem þessum er gott að verja kvöldstund fyrir framan sjónvarpsskjáinn með eina vel valda kvikmynd í tækinu. Lestin kynnir nýjan vetrardagskrárlið í þætti dagsins þar sem þáttarstjórnendur fá gesti til að mæla með kvikmyndum til að horfa á. Spurt er: Hvaða kvikmynd eigum við að horfa á í kvöld? Og hvers vegna. Í dag er það Una Björg Magnúsdóttir, listakona, sem velur mynd. Í byrjun 20. aldar taldi sálgreinandinn Wilhelm Reich sig hafa náð að mæla sjálfa lífsorkuna og gaf henni hið fallega nafn, Orgón. Í pistli sínum í dag skoðar Tómas Ævar Ólafsson þessi djörfu gervivísindi og veltir fyrir sér hvort eitthvað vit sé að finna í Orgón lækningum. Og Halldór Armand Ásgeirsson rithöfundur flytur pistil í Lestinni á þriðjudegi.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    51 min
  • Alexander McQueen, Bodyguard
    Efni Lestarinnar: McQueen nefnist ný heimildarmynd um breska listamanninn Alexander McQueen. Myndin er sýnd á hátíðinni FFF - Fashion Film Festival sem fer fram í Bíó Paradís dagana 20.-24. nóvember. Að gefnu tilefni verður fjallað um líf og list McQueens í þætti dagsins. Viðmælendur verða Álfrún Pálmadóttir og Ása Bríet Brattaberg, umsjónarkonur Fashion Film Festival. Og í þættinum í dag verður einnig haldið áfram að fá fólk til mæla með bókum sem tala inn í okkar samtíma, með einum eða öðrum hætti, mæla með bókum sem við eigum að lesa hér og nú. Í dag er röðin komin að Guðrúnu Nordal, forstöðumanni Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum. Og bresku sjónvarpsþættirnir Bodyguard hafa verið mikið á milli tannana á fólki undanfarið enda þykja þeir einhverjir þeir mest spennandi sem komið hafa fram lengi. Áslaug Torfadóttir fjallar um þættina í Lestinni í dag.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    55 min
  • Íslenskur vestri, Bang Gang, Wu Tang Clan, Blindspotting
    Í Lestinni í dag verður meðal annars rætt við Barða Jóhannsson tónlistarmann sem fagnar um þessar mundir afmæli þriggja platna með hljómsveitinni Bang Gang. Af því tilefni verður efnt til boðs í Rokksafni Íslands í Hljómahöll í Reykjanesbæ á morgun. Þar verður nýtt myndband Bang Gang frumsýnt, hljómsveitin Bang Gang tekur nokkur af bestu lögum sveitarinnar, auk þess sem Rokksafni Íslands verður formlega afhend stytta af Barða sem upprunalega var framleidd og sýnd í Triennale sem er hönnunarsafn í Milano á Ítalíu. Styttan er komin til landsins og kemur til með að standa í Rokksafni Íslands. Barði verður gestur Lestarinnar í dag. Kári Valtýsson, lögmaður, sendi frá sér sína fyrstu skáldsögu á dögunum. Sagan nefnist Hefnd og fjallar um Íslending sem gerist byssubófi í villta vestrinu í Bandaríkjunum um miðja nítjándu öld. Kári verður gestur Lestarinnar í dag. Marta Sigríður Pétursdóttir fjallar í dag um kvikmyndirnar Blindspotting og The Girl in the Spider's Web. Og hugað verður að merkilegri plötu: Wu-Tang Clan er rapp-stórveldi, hip hop-heimsálfa, fatalína, íkonógrafía, lífstíll, fagurfræði og söguheimur út af fyrir sig. En allt hófst það með plötu sem kom út fyrir aldarfjórðungi síðan, Enter The Wu Tang (36 chambers). Davíð Roach Gunnarsson spilar Wu Tang Clan í hljóðkerfi lestarinnar í dag og hækkar svo um munar.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    55 min
  • Listaverk og fjöldaframleiðsla, Jóel Pálsson, Instagram
    Efni Lestarinnar í dag: Jóel Pálsson saxófónleikari gefur á morgun út plötuna Dagar koma en hún inniheldur lög sem samin voru við ljóð nokkurra íslenskra samtímaskálda. Jóel heldur ásamt fríðu föruneyti útgáfutónleika í Norræna húsinu á morgun, og hann verður gestur Lestarinnar í dag. Fyrr í vikunni var rætt í Lestinni við liðskonur rappsveitarinnar CYBER, þær Sölku Vals og Jóhönnu Rakel, um nýja plötu sveitarinnar. Fleira var rætt sem ekki komst fyrir í þeim þætti. Og í dag heyra hlustendur brot úr spjallinu; rætt var um skáldaðar persónur og sjálf, væntingar og Instagram-kúltúr samtímans. Karl Ólafur Hallbjörnsson fjallar í heimspekipistli í dag um verufræðilega skilgreiningu listaverka, áru þeirra og fjöldaframleiðslu. Og hlustendur kynnast bandaríska myndlistarhópnum og hljómsveitinni The Residents, og forsprakka hennar, tónlistarmanninum Hardy Fox.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    55 min
  • Stan Lee, Litla Moskva, African Rhythms
    Efni Lestarinnar í dag: ,,Miklu valdi fylgir mikil ábyrgð,'' segir köngulóamaðurinn, en ofurhetjan er meðal fjölmargra hugarsmíða myndasöguhöfundarins Stans Lee. Lee lést í gær, 95 ára að aldri. Hans verður minnst í Lestinni í dag. Heimildarmaður er Hugleikur Dagsson, teiknimyndahöfundur með meiru. Einnig verður í Lestinni í dag rætt við kvikmyndaleikstjórann Grím Hákonarson um heimildamyndina Litlu Moskvu sem frumsýnd verður á morgun en hún fjallar um Neskaupstað og það hvernig bærinn hefur breyst í tímans rás, frá því að sósíalistar réðu ríkjum í bænum og til dagsins í dag. Sósíalistar komust til valda í bænum árið 1946 og stýrðu bænum í 52 ár, í myndinni er sú saga rakin og skoðuð frá ólíkum sjónarhornum. Í pistli sínum í dag skoðar Tómas Ævar Ólafsson plötuna African Rhythms frá 8. áratug síðustu aldar en á plötunni fléttast saman straumar úr mörgum áttum, allt frá sagnfræðilegri endurskoðun til skáldaðra handanheima í geimnum. Og Halldór Armand Ásgeirsson rithöfundur flytur pistil í Lestinni á þriðjudegi.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    55 min
  • CYBER, Ferðabók Eggerts & Bjarna, Wanderlust, Iceland Airwaves
    Efni Lestarinnar í dag: Rappsveitin CYBER gaf út nýverið út nýja breiðskífu. Platan nefnist Bizness og er fjórða útgefna efni sveitarinnar. Platan verður skoðuð nánar í þætti dagsins, rætt verður við tvær liðskonur bandsins, þær Sölku Vals og Jóhönnu Rakel. Í þættinum verður einnig haldið áfram að fá fólk til mæla með bókum sem tala inn í okkar samtíma, með einum eða öðrum hætti, mæla með bókum sem við eigum að lesa hér og nú. Í dag er röðin komin að Andra Snæ Magnasyni, rithöfundi. Fólk er oft tilbúið til þess að leggja ýmislegt á sig til þess að bjarga hjónabandinu. Bresku sjónvarpsþættirnir Wanderlust fjalla um hjónin Joy og Alan sem leita nýstárlegra leiða til þess að finna neistann á ný. Áslaug Torfadóttir fjallar um Wanderlust í Lestinni í dag. Og tónlistarhátíðin Iceland Airwaves var haldin um helgina, en henni lauk á laugardag. Spurt verður í þættinum, hvernig tókst til að þessu sinni.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    55 min
  • Hvíta albúmið, Serbneskir kvikmyndadagar, Iceland Airwaves
    Efni Lestarinnar í dag: Þann 22. nóvember næstkomandi verða 50 ár liðin frá útgáfu Hvíta Albúmsins með Bítlunum. Á morgun kemur út viðhafnarútgáfa sem hefur að geyma endurhljóðblandanir og fjölmargar upptökur frá gerð plötunnar sem ekki hafa heyrst áður. Platan hefur löngum þótt endurspegla með dularfullum hætti tíðaranda hins viðburðaríka árs, 1968, og nú er skrifað um það að hún tali líka með beinum hætti inn í okkar samtíma, árið 2018. Í Lestinni í dag verður fjallað um Hvíta albúmið, gestur þáttarins verður Einar Már Guðmundsson, rithöfundur. Serbneskir menningardagar verða haldnir í Bíó Paradís um helgina. Þetta er í annað sinn sem hátíðin er haldin hér á landi og er hún nú tileinkuð serbneskri kvikmyndagerð. Svetlana Markovic, fræðir hlustendur nánar um hátíðina, Serbnesku menningarmiðstöðina á Íslandi, sem og serbneska kvikmyndagerð, í þætti dagsins. Og hugað verður að tónlistarhátíðinni Iceland Airwaves sem hófst í gær, Davíð Roach Gunnarsson gefur skýrslu.
    Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson
    55 min