Efni Lestarinnar í dag: ,,Miklu valdi fylgir mikil ábyrgð,'' segir köngulóamaðurinn, en ofurhetjan er meðal fjölmargra hugarsmíða myndasöguhöfundarins Stans Lee. Lee lést í gær, 95 ára að aldri. Hans verður minnst í Lestinni í dag. Heimildarmaður er Hugleikur Dagsson, teiknimyndahöfundur með meiru. Einnig verður í Lestinni í dag rætt við kvikmyndaleikstjórann Grím Hákonarson um heimildamyndina Litlu Moskvu sem frumsýnd verður á morgun en hún fjallar um Neskaupstað og það hvernig bærinn hefur breyst í tímans rás, frá því að sósíalistar réðu ríkjum í bænum og til dagsins í dag. Sósíalistar komust til valda í bænum árið 1946 og stýrðu bænum í 52 ár, í myndinni er sú saga rakin og skoðuð frá ólíkum sjónarhornum. Í pistli sínum í dag skoðar Tómas Ævar Ólafsson plötuna African Rhythms frá 8. áratug síðustu aldar en á plötunni fléttast saman straumar úr mörgum áttum, allt frá sagnfræðilegri endurskoðun til skáldaðra handanheima í geimnum. Og Halldór Armand Ásgeirsson rithöfundur flytur pistil í Lestinni á þriðjudegi.
Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson