Efni Lestarinnar í dag: Þórður Sævar Jónsson segir frá skáldsögunni Hawkline-skrímslið eftir bandaríska rithöfundinn Richard Brautigan, en bókin er nýlega komin út í íslenskri þýðingu Þórðar. Bandaríski rapparinn og söngkonan Lauryn Hill túrar nú um heiminn í tilefni 20 ára afmæli fyrstu og einu sólóplötu sinnar; The Miseducation of Lauryn Hill. Platan sló í gegn á sínum tíma og er löngum orðin klassík í sögu hiphopsins. Í Lestinni í dag verður fjallað um eitt lag af plötunni í þætti dagsins; lag sem skiptir tónlistarkonuna miklu máli enda lag sem fjallar um fæðingu Zions, fyrsta barns hennar og Rohans Marley. Marta Sigríður Pétursdóttir, kvikmyndarýnir Lestarinnar, fjallar í dag um nýja heimildarmynd eftir Grím Hákonarsonar, Litlu Moskvu, sem fjallar um Neskaupsstað og ítök sósíalista og Alþýðubandalagsins þar í 52 ár. Og Karl Ólafur Hallbjörnsson fjallar í pistli sínum í dag um tímaflakk og hugtök tímans.
Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson