Lestin

Lestin

Download on the App Store

All Lestin episodes

  • Paul Virilio, Saga tveggja borga, rapp frá L.A., Succession
    Franski heimspekingurinn Paul Virilio er látinn, 86 ára að aldri. Virilio var áhrifamikill hugsuður þegar kemur að menningarlegri greiningu á háhraða samfélagi samtímans, tækni, nýmiðlum, arkitektúr og stríði. Björn Þór Vilhjálmsson, lektor í almennri bókmenntafræði og kvikmyndafræði við Háskóla Íslands, tekur sér far með Lestinni í dag, en hann þekkir vel til verka Virilio.
    Einnig verður rætt við Þórdísi Bachmann sem þýtt hefur eitt af stórvirkjum heimsbókmenntanna, skáldsöguna Tale of two Cities eða Sögu tveggja borga eftir enska rithöfundinn Charles Dickens.
    Tónleikaröðin Ham on Everything er eitt helsta batteríið í rappsenu Los Angeles en margar stórstjörnur rappsins hafa fetað sín fyrstu fótspor á sviði þar. Kvöldin eru vanalega haldin í vöruhúsum eða gömlum samkomuhúsum með stuttum fyrirvara. Rætt verður við Adam Weiss, einn stofnanda Ham on Everything-kvöldanna, um rappsenuna í Los Angeles.
    Og fjallað verður um sjónvarp í Lestinni á mánudegi: Roy-fjölskyldan í sjónvarpsþáttunum Succession þarf sannarlega á sálfræðingi að halda enda hefur græðgi og valdafíkn fyrir löngu eitrað fjölskylduböndin. Áslaug Torfadóttir heimsækir fjölskylduna í pistli sínum í dag.
    57 min
  • Hraðlest: Andi, Útey, Nietzsche, bíó, styttur, endurupptaka, Aphex Twi
    Lestin leggur af stað 17:03. Hraðlest á föstudegi, við sögu í þættinum koma meðal annars Sigtryggur Ari Jóhannsson og Aphex Twin, kvikmyndirnar Útey 22. júlí og Marta Sigríður Pétursdóttir, Andi, Guðjón Bjarnason og stytturnar á Indlandi, Arnar Eggert Thorodden og Spirit of Eden, kvikmyndin Sorry to bother you og Boots Riley, Tómas Ævar Ólafsson, Friedrich Nietzsche og Lína Langsokkur, og Snorri Páll Jónsson Úlfhildarson og Guðmundar- og Geirfinnsmálið.
    Umsjón: Kristján Guðjónsson og Eiríkur Guðmundsson
    57 min
  • Stærsta stytta í heimi, Hafdís Bjarnadóttir, Útey, Kanema og enduruppt
    Um þessar mundir er verið að reisa tvær himinháar styttur í Indlandi, styttur sem verða þegar þær eru tilbúnar stærstu styttur heims. Stytturnar gegna pólitísku hlutverki og eru langt frá því óumdeildar í landinu. Lestin brunar alla leið til Indlands í dag og skoðar stórar styttur, ferðafélaginn er Guðjón Bjarnason, arkitekt og myndlistarmaður, sem þekkir vel til indversks samfélags.
    Marta Sigríður Pétursdóttir fjallar um heimildamyndina Söng Kanemu eftir Önnu Þóru Steinþórsdóttur, sem vann áhorfenda- og dómnefndarverðlaun á heimildamyndahátíðinni Skjaldborg sem fram fór í sumar, og kvikmyndina Útey: 22. júlí, eftir norska kvikmyndaleikstjórann Erik Poppe.
    Guðmund­ar- og Geirfinns­málið kemur við sögu í þættinum í dag, mál sem heltók íslenskt samfélag á áttunda áratugnum og hafa áhrif þess verið mikil, og birtingarmyndur verið mýmargar í íslenskri menningu. Í fjórum pistlum í septembermánuði fjallar Snorri Páll Jónsson Úlfhildarson um þetta alræmdasta sakamál Íslandssögunnar í skáldskap - og sem skáldskap. Snorri flytur þriðja pistil sinn um þetta efni í dag og rýnir nú í endurupptöku málsins í síðustu viku.
    Og rætt verður við tónlistarkonuna Hafdísi Bjarnadóttir, nýtt verk eftir hana, Romsa, verður frumflutt á tónleikum tónlistarhópsins Stirni Ensemble í Hafnarborg á sunnudag, en verkið byggist á útvarpsauglýsingum og veðurfréttum.
    57 min
  • And-kapítalísk grínmynd, Talk talk, Jesús og Good girls
    “Er þetta yfirgengilegasta and-kapítalíska mynd allra tíma?“ Þannig var spurt í grein breska dagblaðinu The Guardian í síðasta mánuði en umfjöllunarefnið var kvikmyndin Sorry to bother you. Þetta er fyrsta kvikmyndin eftir tónlistarmanninnn og aktívistann Boots Riley og hefur hún vakið verðskuldaða athygli. Ragnar Egilsson, kvikmyndaáhugamaður, kemur í þáttinn í dag og ræðir um myndina og nýja bylgju hip-hop súrrealisma sem skekur kvikmyndaheiminn. Á sunnudag voru 30 ár liðin frá útkomu hljómplötunnar Spirit of Eden með bresku hljómsveitinni Talk Talk. Platan markaði tímamót á ferli hljómsveitarinnar, en á henni mátti heyra mun tilraunkenndari tónlist en á fyrri plötum sveitarinnar. Platan fékk blendnar viðtökur á sínum tíma, en þykir nú með merkari plötum níunda áratugarins. Lestin heimsækir aldingarðinn, Spirit of Eden hljómar í þættinum dag. K
    arl Ólafur Hallbjörnsson spyr í pistli sínum í dag: Hvað myndi Jesús gera? og fjallar um anda kristninnar. Og hugað verður að sjónvarpi: Settlegar úthverfahúsmæður fá meira í sinn hlut en þær ætluðu sér þegar þær ákveða að ræna matvörubúð í hverfinu. Áslaug Torfadóttir rýnir í sjónvarpsþættina Good Girls.
    Umsjón: Kristján Guðjónsson og Eiríkur Guðmundsson
    57 min
  • Lýsing, Andi, Nietzsche og Britney Spears
    Raftónlistarmaðurinn Andi gaf nýlega út sína aðra breiðskífu, Allt í einu. Tónlistin er melódísk raftónlist sem vísar í íslenska dægurtónlist níunda áratugarins jafnt sem ítaló-diskó - og hefur því verið kölluð íslandó-diskó. Andi tekur sér far með Lestinni í dag.
    Við veltum líka fyrir okkur lýsingu, ljósabúnaði og mikilvægi þess að vera vel upp lýstur.
    Harkaleg og tilgangslaus heimssýn þýska heimspekingins Friedrich Nietzsche er enn að plaga okkur í dag og sérstaklega unga karlmenn á tilvistarlegu mótþróaskeiði. Hættulegur misskilningur á þessari heimspeki getur átt sér stað sem dregur lesendur ofan í svað tómhyggjunnar. Tómas Ævar Ólafsson skoðar hugmyndir Nietzches um tómhyggjuna og ofurmennið í Lestinni í dag.
    Og Halldór Armand Ásgeirsson rifhöfundur flytur pistil í Lestinni á þriðjudegi.
    Umsjón: Kristján Guðjónsson og Eiríkur Guðmundsson
    57 min
  • Aphex Twin, hagkerfi hinna heimakæru, Happy og borgarsamfélagið
    Breski raftónlistarmaðurinn Aphex Twin gaf á föstudag út EP-plötuna Collapse. Það sætir ævinlega tíðindum þegar plata kemur frá þessum einstaka listamanni, sem margir telja einhvern frumlegasta raftónlistarmann samtímans. Lestin rýnir í plötuna í dag og gestur þáttarins verður Sigtryggur Ari Jóhannsson, blaðamaður, ljósmyndari og tónlistarmaður.
    Tilkoma borgarsamfélagsins hefur gjörbreytt allri tilveru mannsins á undanförnum öldum. Lestin brunar inn í stórborgina með Hólmfríði Garðarsdóttttur ritstjóra nýjasta tölublaðs Ritsins - tímarits Hugvísindasviðs, en að þessu sinni er þema ritsins ógnir og undur borgarsamfélagsins.
    Við heyrum líka um hvernig æ fleiri ungmenni nenna ekki út úr húsi í Bandaríkjunum og markaðinn sem er að spretta upp í kringum þessi letidýr, það sem kallað er í nýlegri blaðagrein "hagkerfi hinna heimakæru."
    Áslaug Torfadóttir rýnir í sjónvarp eins og ævinlega í Lestinni á mánudögum, í dag fjallar hún um sjónvarpsþáttaröðina Happy.
    57 min
  • Hraðlest: Lof mér að falla, Mac Miller, Nike-auglýsing, Somnium, fjárl
    Lestin leggur af stað laust eftir klukkan fimm og það er hraðlest í dag! Við sögu koma meðal annars: Theresa Himmer og Johannes Kepler, Paul McCartney og nýja platan hans, Halldór Armand Ásgeirsson og ný auglýsing frá Nike, María Guðmundsdóttir, konur og tölvuleikir, Kate Bush og textarnir, Heimir Bjarnason og rapparinn Mac Miller, Marta Sigríður Pétursdóttir og Lof mér að falla, Gauti Kristmannsson og George Monbiot, Snorri Páll Jónsson Úlfhildarson og Guðmundar - og Geirfinnsmálið, og fjárlögin.
    Umsjón: Kristján Guðjónsson og Eiríkur Guðmundsson
    57 min
  • Norður-amerísk ljóð, Mac Miller, aYia og Guðmundar- og Geirfinnsmálið
    Það ríkir mikil eftirvænting fyrir fyrstu breiðskífu drungarafsveitarinnar Ayia. Fyrsta myndband sveitarinnar við lagið Sparkle kom út í vikunni og í kvöld stígur sveitin á stokk í Iðnó og mun leika plötuna í heild sinni. Í Lestinni í dag verður rætt við einn meðlim þessarar huldusveitar.
    Rætt verður við Magnús Sigurðsson rithöfund sem sendi nýlega frá sér bókina Að lesa ský en hún hefur að geyma safn ljóða frá Bandaríkjum Norður-Ameríku sem Magnús hefur þýtt.
    Lestin minnist einnig rapparans Mac Miller sem lést í síðustu viku, aðeins 26 ára gamall. Heimir Björnsson, framhaldsskólakennari og rappari, tekur sér far með Lestinni og rifjar upp stuttan en farsælan feril tónlistarmannsins.
    Guðmund­ar- og Geirfinns­málið kemur við sögu í þættinum dag, mál sem heltók íslenskt samfélag á áttunda áratugnum og hafa áhrif þess verið mikil, og birtingarmyndur verið mýmargar í íslenskri menningu. Í fjórum pistlum í septembermánuði fjallar Snorri Páll Jónsson Úlfhildarson um þetta alræmdasta sakamál Íslandssögunnar í skáldskap - og sem skáldskap.
    Og gamall ítalskur baráttusöngur, í nýjum búningi, hljómar í Lestinni í dag.
    57 min
  • Nýtt bókaforlag, skuldir, loftslagsbreytingar og sundraður heimur
    Nú á dögunum kom út skáldsagan Skotheld eftir Birgittu Björgu Guðmarsdóttir. Bókin er sú fyrsta sem kemur út hjá nýstofnuðu bókaforlagi Kallíópa, en yfirlýst markmið útgáfunnar er að hjálpa ungum rithöfundum að koma verkum sínum út. Stofnandi forlagsins, hin 20 ára gamla Tanja Rasmussen, tekur sér far með Lestinni í dag. Rætt verður við Gauta Kristmannsson, prófessor í þýðingafræðum við Háskóla Íslands um grein eftir breska rithöfundinn og aktívistann George Monbiot, sem birtist á vef breska blaðsins The Guardian í síðustu viku, þar sem hann fjallar um það hvað við getum gert til að bjarga jörðinni. Karl Ólafur Hallbjörnsson fjallar í dag um hugtök skuldar og skyldu í ljósi skrifa þýska heimspekingsins Friedrichs Nietzsches. Og í Lestinni í dag verður líka fjallað um samfélög sem líða undir lok og heimum sem sundrast.
    Umsjón: Kristján Guðjónsson og Eiríkur Guðmundsson
    57 min
  • Vanilla Ice, Konur í tölvuleikjum, Gulleggið og gerviaugu réttlætisins
    Skortur á fjölbreytni hefur lengi verið vandamál í tölvuleikjum. Stelpur skortir fyrirmyndir í bransanum, of fáir tölvuleikir höfða til kvenna og umhverfið er jafnvel kvenfjandsamlegt. Þessu öllu vill María Guðmundsdóttir breyta. María, sem er stofnandi tölvuleikjafyrirtækisins Parity, tekur sér far með Lestinni í dag.
    Kvikmyndin Cool as Ice frá 1990 var tilraun Hollywood til að græða á rapparanum Vanilla Ice en hún er almennt talin ein versta mynd allra tíma. Hún er þó orðin að költ-klassík í dag og nú stendur til að endurútgefa myndina í lúxusútgáfu.
    Í þættinum í dag verður fjallað um sjarmerandi lélegar kvikmyndir og stjörnuhrap Vanilluíssins alræmda. Einnig verður sagt frá Gullegginu, frumkvöðlakeppni sem ætluð er ungu fólki en verkefnið er nú að fara af stað í tólfta sinn, Melkorka Sigríður Magnúsdóttir verkefnisstjóri verður gestur Lestarinnar í dag. Textar ensku tónlistarkonunnar Kate Bush koma við sögu að gefnu tilefni.
    Og Halldór Armand Ásgeirsson rithöfundur flytur að venju pistil í Lestinni á þriðjudegi, og fjallar í dag um það þegar réttlætið setur upp gerviaugu, og nýja auglýsingu fyrir strigaskó.
    Umsjón: Kristján Guðjónsson og Eiríkur Guðmundsson
    57 min