Lestin

Lestin

Download on the App Store

All Lestin episodes

  • All Saints, tölvur & tækni, My Friend Dahmer, Barry,
    Í Lestinni í dag verður meðal annars hugað að stúlknasveitum, raðmorðingjum, leigumorðingjum, tölvum og tækni.
    Tölvur og tækni hafa á undanförnum áratugum orðið allt að því nauðsynlegur hluti af allri tónlistarsköpun. Nú er svo komið að nánast öll popptónlist er að stórum hluta rafræn, hönnuð og unnin í stafrænu umhverfi. Á sama tíma getur almenningur auðveldlega orðið sér út um hugbúnað og tæki sem gerir fólki kleift að skapa tónlist í fartölvunni sinni sem hljómar eins og það allra besta í tónlistarheiminum.
    Við ræðum um tengsl tækni og tónlistar í fortíð, nútíð og framtíð við Steinunni Arnardóttur, verkfræðing og tónlistarkonu, sem stýrir hugbúnaðarþróun hjá þýska tónlistartæknifyrirtækinu Native Instruments. Á strætisvögnum Lundúnarborgar má nú sjá augl singaskilti með skilaboðunum: All Saints hættu aldrei nokkurn tímann að hugsa um þig. Plaggið er hluti af kynningarherferð fyrir nýja breiðskífu frá einni ástsælustu stúlknasveit tíunda áratugarins, All Saints. Við skoðum væntanlega plötu og feril bresku sveitarinnar í þætti dagsins.
    Áslaug Torfadóttir, sjónvarpsrýnir Lestarinnar, rýnir að vanda í nýja sjónvarpsþætti hér á mánudegi í Lestinni. Í dag tekur hún fyrirþættina Barry en þeir fjalla um leigumorðingja í tilvistarkreppnu. Úr leigumorðingjum förum við síðan yfir í raðmorðingja. Kvikmyndin My Friend Dahmer fjallar nefnilega um heimsþekkta raðmorðingjann Jeffrey Dahmer, sem varð sautján ungmennum að bana á tíunda áratugnum. Hún einbeitir sér þó ekki að morðunum heldur skoðar uppvaxtar ár hans og glímir við spurninguna um hvort hægt sé að hafa samúð með raðmorðingja. Tómas Ævar Ólafsson skoðar myndina nánar í þætti dagsins.
    57 min
  • Fótboltafantasíur og Hraðlest
    Það er heimsmeistaramót í knattspyrnu og Halldór Armand Ásgeirsson rithöfundur er í byrjunarliði Lestarinnar. Í pistli sínum í dag fjallar Halldór um fantasíur heimsbyggðarinnar um íslenska knattspyrnulandsliðið og varar fólk við að festast í hlekkjunum sem draumar annarra geta verið.
    En það er hraðlest í dag og að venju verður farið um víðan völl: Alræðistilburðir í Rússlandi, náttúruvín, sjónvarpsþættirnir The Alienist, þjóðernishyggja, verðlaunavæðing menningarlífsins, Beyoncé og Jay-Z í Louvre, fjallkonan í dragi, danskur málari á ferð um Ísland og textagreining á íslensku rappi.
    Lag dagsins er Osundi Owendi með nígeríska highlife-tónlistarmanninum Chief Stephen Osita Osadebe
    55 min
  • Vegurinn til helsis, K.óla og Secret Solstice
    Augu heimsins beinast að Rússlandi um þessar mundir. En af nokkrum ástæðum. Margir búast eflaust við að ég tali hér um Heimsmeistaramótið í knattspyrnu sem nú fer fram þar í landi - en aðrir vegna þess að heimsmeistaramótið í breyttum stjórnmálum hefur nú staðið yfir í landinu í 8 ár.
    Það er að minnsta kosti niðurstaða bandaríska sagnfræðingsins Timothy Snyders en hann gaf á dögunum út nýja bók sem ber nafnið Road to Unfreedom, eða Vegurinn til helsis. Í bókinni fer Snyder, fremur myrkur í máli, djúpt ofan í saumana á alræðistilburðum Rússlands og pólitísk áhrif sem færast frá austri til vestur. Við rýnum í bók Snyders í Lestinni í dag með Sigurbjörgu Sigurgeirsdóttur, doktor í stjórnsýslufræðum við Háskóla Íslands.
    Tónlistarhátíðin Secret Solstice verður sett í dag í fimmta skiptið. Í Laugardalnum koma fram tugir tónlistarmanna úr ótal áttum næstu fjóra daga og Davíð Roach Gunnarsson stiklar á því stærsta í dagskránni og fjallar um átta atriði sem Lestin mælir sérstaklega með.
    Tónlistarkonan Katrín Helga Ólafsdóttir, sem kemur fram undir listamannanafninu K.óla vakti áhuga Lestarstjóra þegar hún spilaði á tónleikum á Húrra á dögunum. Berskjaldað og gáskafullt tilraunakennt rafpopp sem má vel mæla með. Katrín Helga tekur sér far með Lestinni í dag.
    57 min
  • Johannes Larsen, þjóðernishyggja og verðlaunavæðing menningarinnar
    Ný heimildarmynd um ferðir danska myndlistarmannsins Johannes Larsens um íslenskar söguslóðir verður frumsýnd á Íslandi á morgun þann 21. júní í Norræna húsinu. Það er danski kvikmyndasmiðurinn Erik Skibsted sem í samvinnu við rithöf­undinn Vibeke Nør­gaard Nielsen fest ferðalögum Larsens á filmu. Larsen ferðaðist um slóðir Íslendinga sagna á árunum 1927 og 1930. Höfundarnir sýna myndina í Norræna húsinu og færa hana Íslendingum að gjöf á aldarafmæli fullveldis­ins. Nielsen skrifaði um Larsen og ferðir hans í bókinni Listamaður á söguslóðum en hún kom út í íslenskri þýðingu Sigurlín Sveinbjarnardóttur árið 2015.Sigurlín fékk far með Lestinni í dag. Hún byrjaði á því að segja okkur hvernig hún kom að verkefninu.
    Um þessar mundir veifa Íslendingar sem og margir aðrir þjóðfána sínum, syngja þjóðsönginn og hrópa slagorð til stuðnings samlöndum sínum á fótboltavöllum í Rússlandi. Í pistli sínum í dag fjallar Karl Ólafur Hallbjörnsson, að gefnu tilefni, um hugtakið þjóðernishyggja og misvarhugaverðar birtingarmyndir hennar.
    Ýmiskonar verðlaun fyrir listir og menningu verða sífellt meira áberandi í íslensku og alþjóðlegu menningarlífi. Ferilskrár listamanna eru lítið meira en upptalning á öllum þeim verðlaunum sem þeir hafa hlotið eða verið tilnefndir til. Listamaður sem ekki fær verðlaun er varla maður með mönnum. En af hverju hefur þessi tilhneiging orðið svo áberandi á undanförnum áratugum, hver er ástæðan fyrir þessari verðlaunavæðingu íslensks menningarlífs. Við pælum í verðlaunavæðingu með Jóni Karli Helgasyni, bókmenntafræðingi, og Margréti Kristínu Sigurðardóttur, formanni menningarráðs.
    57 min
  • Beyoncé & Jay Z á Louvre, XXXTentacion, hrun í Hörpu og náttúruvín
    Tónlistahjónin Beyoncé og Jay Z læddust heldur betur upp að heiminum um helgina, eins og venjan er orðin í tónlistarheimi samtímans. Þau gáfu út sameiginlega 9 laga plötu undir listamannaheitinu The Carters og er það fyrsta platan sem þau gefa út í heild. Um helgina frumsýndu þau nýtt tónlistarmyndband við lagið heitir Apeshit og myndbandið heldur betur eitthvað fyrir augað en myndbandið er tekið upp á hinu víðfræga Louvre safni í París. Í Lestinni í dag rýnum við í nýtt tónlistarmyndband hjónanna Beyoncé og Jay Z og sláum á þráðinn til Æsu Sigurjónsdóttur, dósent í listfræði við Háskóla Íslands um þetta listræna myndband.
    Rapparinn XXXtentacion var skotinn til bana í Florida á mánudag, aðeins 20 ára að aldri. Hann var ein skærasta stjarna hinnar svokölluðu Soundcloud-rappsenu - ágengrar, lyfjaðrar og tilfinningaþrunginnar jaðarrapptónlistar. Það sem spilaði þó ekki síður hlutverk í frægð rapparans var ótrúleg hegðun hans, vímuefnaneysla, geðsjúkdómar og ógeðfellt ofbeldi sem hann var sekur um. Við ræðum við Þórð Inga Jónsson, tónlistarmann, um stuttan og stormasaman feril XXXtentacion.
    Og Halldór Armand Ásgeirsson rithöfundur flytur sinn vikulega pistil. Í dag rifjar Halldór upp atburðarásina í Hörpu í maí og hvernig hinn heilagi andi efnahagshrunsins lifir ennþá góðu lífi.
    Náttúruvín eru nýjasta tíska meðal fagurkera sem vilja gera vel við sig í mat og drykk. Í hugum margra þeirra markar náttúruvín afturhvarf til víngerðar eins og hún var stunduð um árþúsundir áður en hún úrkynjaðist um miðja síðustu öld, þegar víngerð fór að verða stöðluð og menn tóku að bæta við ýmsu aukaefnum til að ná sem mestri stjórn á afurðinni. Náttúruvín bjóða þessari hefð birginn og það hefur vakið úlfúð. Þetta er jú ekki bara meinlaus spurning um smekk, heldur stríðsyfirlýsing á hendur víniðnaðar sem lýtur ströngum reglugerðum og veltir mörghundruð milljörðum króna á ári hverju í skjóli þeirra. Hafa talsmenn náttúruvína eitthvað til síns máls eða eru berin bara súr? Við spáum í hinar nýju þrúgur reiðinnar í þættinum í dag.
    57 min
  • Rappráðstefna í Veröld, The Alienist og Fjallkonan í dragi
    Í tilefni af 100 ára afmæli fullveldis Íslands var efnt til ráðstefnu um rapp og hipp hopp í Veröld - húsi Vigdísar. Þar var fjallað um rapp sem listform og danskir og íslenskir listamenn munu koma fram. Ráðstefnan breyttist síðan í tónleika þar sem bæði íslenskir og danskir rapparar tróðu upp. Við segjum örlítið frá efni fundarins og veltum fyrir okkur íslensku rappi, hvað eru íslenskir rapparar að segja?
    The Alienist eru nýir spennuþættir sem gerast í New York um aldamótin 1900 þar sem sturlaður raðmorðingi gengur laus. Áslaug Torfadóttir hætti sér í heimsókn og rýnir í þættina í dag.
    Þjóðhátíðardagur Íslendinga, 17. júní, var í gær. Hátíðarhöld fóru fram um land allt venju samkvæmt og rigningin buldi að hefðbundnum sið. Á Austurvelli voru ræður í pontu, skátar báru fána, Jón Sigurðsson hylltur og Fjallkona klæddi sig skautbúningi og flutti ljóð - Sigrún Edda Björnsdóttir flutti ljóð eftir Lindu Viljhjálmsdóttur. Fjallkonan var þó ekki ein. Í fyrsta sinn í sögunni voru fjallkonurnar í hátíðarhöldum í Reykjavík tvær talsins og önnur þeirra var í dragi. Dragdrottningin Gógó Starr segir langþráðan draum hafa ræst þegar hún brá sér í hlutverk fjallkonunnar og leiddi skrúðgöngu niður í Hljómskálagarðinn. Gógó Starr er gestur Lestarinnar í dag.
    57 min
  • Hraðlest:
    Beðmál í borginni, Anthony Bourdain, Arrested Development, drengur með hjálm, Chanel Monet, Erna Hlöðversdóttir, Glenn Branca, Snorri Hallgrímsson, Kids see ghosts og pólitískur margbreytileiki.
    Það er HM, augu heimsins beinast að Rússlandi. Halldór Armand Ásgeirsson rithöfundur kemur inn á sérstaklega í tilefni mótsins og fjallar í pistli sínum um ofmetna hæfileika leikmanna og mikilvægi góðra ákvarðanna.
    57 min
  • Harlem endurreisnin, Kanye West & Kid Cudi, drengur með hjálm.
    Harlem endurreisnin í Bandaríkjunum var pólitísk og félagsleg hreyfing sem hófst á 3. áratug 20. aldar. Þetta var stór og áhrifamikil listahreyfing; rithöfundar, tónlistarmenn og aðrir listamenn af afrísk-amerískum uppruna spruttu fram og tjáðu og túlkuðu breytta stöðu svartra með sínum eigin hætti. Við rifjum upp umfjöllun Lestarinnar um þetta merkilega tímabil með Hólmfríði Garðarsdóttur, prófessor í spænsku við Háskóla Íslands. Í síðustu viku kryfjaði Davíð Roach Gunnarsson tvær fyrstu af þeim fimm plötum sem ódæli snillingurinn Kanye West hefur dundað sér við að taka upp á búgarði sínum í Wyoming og koma út með viku millibili um þessar muyndir. Í dag rýnir hann í þriðju plötuna sem kom út í síðustu viku, samstarfsverkefni Kanye og Kid Cudi; Kids See Ghosts. Síðastliðinn sunnudag var bein útsending hér á Rás 1 af fjölum Tjarnarbíós þar sem verkið Hjálmurinn flutt, en verkið var hluti af Listahátíð. Hjálmurinn er eftir rithöfundinn Finn-Ole Heinrich og textanum fylgir tónlist eftir nútímatónskáldið Söruh Nem tsov. Sagan fjallar um lítinn dreng með hjálm og frásögn hans af því hvernig það kom til að hann fór að ganga með hjálm til. Á sviðinu í Tjarnarbíó var hljómsveitin Adapter og sögumaður verksins var Guðmundur Felixson. Guðmundur var gestur lestarinnar.
    57 min
  • Janelle Mone & vélmenni, líkamleiki, Snorri Hallgrímsson
    Snorri Hallgrímsson, tónskáld og framleiðandi, gefur frá sér sína fyrstu sóló breiðskífu á föstudaginn. Þó platan sé hans fyrsta þá hefur tónlist hans slípast í gegnum margra ára reynslu af kvikmyndatónsmíðum. Snorri er gestur okkar í þætti dagsins. Þarf lífvera að vera mennsk til að njóta réttinda? Hvers konar réttindi fylgja meðvituðum smíðisgripum mannsins á borð við gervigreind, klónað fólk og vélmenni? Í Metropolis seríu sinni glímir tónlistarkonan Janelle Monáe við réttindamál vélmenna í martraðarkenndri framtíðarsýn. Og við höldum áfram hugleiða um mannslíkamann, en í pistli sínum í dag fjallar Karl Ólafur Hallbjörnsson um líkamleika og miðlun samfélagslegra sýndarmynda. Hann spyr: Hvernig lærum við að skilja líkamann gegnum samfélagsmiðla?
    57 min
  • Sex and the City, Singapúr og sokkar, Glenn Branca
    Í Lestinni í dag verður meðal annars hugað að menningarfyrirbæri sem á um
    þessar mundir 20 ára útgáfuafmæli, einnig verður hugað að bandarísku tónskáldi
    sem lést fyrir rúmum mánuði, og fundi alþjóðlegra leiðtoga sem fór fram í nótt að
    íslenskum tíma. Nú eru tuttugu ár frá því sjónvarpsþættirnir, og menningarfyrirbærið, Sex and the
    City, eða Beðmál í borginni, hófu göngu sína. Við rifjum upp þættina í dag og
    spyrjum: Eiga þeir erindi í okkar samtíma? Heimildarmenn okkar verða Alexandra
    Ýr van Erven og Hrefna Björg Gylfadóttir. Í pistli sínum í dag fjallar Halldór Armand Ásgeirsson um leiðtogafundinn í
    Singapúr og flugvélar fullar af sokkum. Þórður Ingi Jónsson fer síðan yfir ævi og feril bandaríska tónskáldsins Glenn
    Branca en hann lést úr krabbameini í hálsi í maímánuði, 69 ára að aldri. Branca
    spilaði lykilrullu í hinni svokölluðu no wave listasenu sem spratt upp í New York
    seint á áttunda áratugnum og var þekktur fyrir drunandi gítarorkestrur þar sem
    hann ýtti hljóðfærinu að ystu mörkum.
    57 min