Nútímamaðurinn býr við meira áreiti en nokkur skepna í jarðsögunni og upplifir æ sjaldnar algjöra þögn. Þróunarlíffræðingar hafa bent á að heili mannskepnunnar sé hreinlega ekki fær um að takast á við slíkt yfirflæði upplýsinga. Þagnarathvörf og kyrrðarvökur, þar sem fólk kemur saman og þegir, njóta því sífellt meiri vinsælda í dag. Rætt verður við Ástu Arnadóttur, jógakennara, sem hefur stundað og staðið fyrir kyrrðarvökum í tvo áratugi. Og við rýnum í naíf, tvívíð málverk kanadísku utangarðslistakonunnar Maud Lewis í þætti dagsins, en vinsældir hennar náðu nýjum hæðum þegar út kom ævisöguleg kvikmynd um listakonuna á síðasta ári. Morðið á ítalska fatahönnuðinum Gianni Versace vakti heimsathygli árið 1997 en hann var myrtur fyrir utan heimili sitt í Miami af ókunnugum manni. Nú hefur ofurframleiðandinn Ryan Murphy gert leikna þáttaröð um atburðina sem leiddu að morðinu. Áslaug Torfadóttir skoðar málið í þætti dagsins. „Fyrir mörgum er pítsan sérstakt hugðarefni og jafnvel nokkurs konar þráhyggja. Í dag er ekki óalgengt að fjárfesta í pítsustein eða stáli eða rækta súrdeigsmóður sérstaklega fyrir pítsudeigið eða að panta sérstaka tómata beint frá Ítalíu og up að dyrum o.s.frv“ Tómas Ævar Ólafsson veltir fyrir sér hvað góð pítsla þarf að uppfylla? Hann spyr: Hver er munurinn á venjulegri pítsu og ekta pítsu? Hann hringir til Ítalíu og ræðir við mann sem þekkir góðar pítsur.