Lestin

Lestin

Download on the App Store

Lestin episodes

  • Eldgosadagbækur, fyrirboðar um eldgos, Purrkur Pillnikk
    Það er hafið eldgos á Reykjanesskaga! Seint í gærkvöldi hófst eldgos rétt fyrir norðaustan Grindavík. Frá því að bærinn var rýmdur höfum við reglulega fengið að fylgjast með tilfinningum og hversdagslífi þriggja Grindvíkinga. Teresa, Siggeir og Andrea sendu okkur hljóðdagbækur eftir að gosið hófst.
    Kona ælir yfir allan bílinn sinn, önnur byrjar á túr, sú þriðja getur ekki svæft börnin sín. Þetta er aðeins örfá dæmi um þá fyrirboða sem fólk upplifði í gær í aðdraganda eldgossins. Lóa Björk veltir fyrir sér fyrirboðum.
    Hin goðsagnakennda pönksveit Purrkur Pillnikk kom aftur saman á dögunum og spilaði á tónleikum í Smekkleysu til að fagna útgáfu á heildarsafni sveitarinnar. Sævar Andri Sigurðarson var ekki fæddur þegar hljómsveitin spilaði síðast en fann samt til nostalgíu þegar hann mætti á tónleikana.
    55 min
  • IceGuys, gamlar jólabækur, bókstafurinn Ð
    IceGuys seldu upp þrenna tónleika í Kaplakrika um helgina og eiga vinsælasta lagið í dag. Er IceGuys markaðsstönt eða brandari sem gekk of langt? Þeir Jón Jónsson og Hannes Þór Helgason, leikstjóri þáttanna um IceGuys voru gestir Lestarinnar í dag.
    Una María Magnúsdóttir, grafískur hönnuður, veltir fyrir sér letri, sérstöfum og bókakápum.
    Við förum í heimsókn í Bókina á Hverfisgötu og heyrum hvaða gömlu jólabækur seljast. Og hvort jólabókaflóðið nái inn fyrir dyr fornbókabúða.
    55 min
  • Netflix-tölfræði, Mengi 10 ára, Dream Scenario rýni
    Á dögunum gaf Netflix streymisveitan áhorfstölur út í fyrsta sinn. Hrafn Jónsson, kvikmyndagerðarmaður, rýnir í Netflix-tölfræði eða skort á henni. Og við veltum því fyrir okkur hvers vegna það er svona erfitt að nálgast áhorfstölur eftir tilkomu streymisins.
    Kolbeinn Rastrick rýnir í nýja mynd frá framleiðslufyrirtækinu A24, myndina Dream Scenario í leikstjórn hins norska Kristoffer Borgli.
    55 min
  • Leið 4
    Við vörðum heilum degi um borð í leið 4, strætó sem keyrir úr Mjódd niður á Hlemm um Breiðholtið. Í dag heyrum við sögur fólks sem ferðaðist með vagninum síðastliðin föstudag. Strákur á leið að fá sér drekatattú, stuðningsfulltrúi á leið heim úr vinnu, Venesúelskur söngvari á leið til sálfræðings og danskur kökuskreytingameistari situr undir stýri.
    55 min
  • Spólað til baka: Vídjóleigan kvödd
    Á föstudag fóru Lóa og Kristján í strætó-rúnt með upptökutæki meðferðis. Hugmyndin var að ræða við farþega strætó, komast að því hvert þau væru að fara, hvaðan þau voru að koma. Meðan sá þáttur verður til rifjum við upp vídjóleiguþáttinn frá því í vor.
    55 min
  • Glimmer sem mótmæli, jólatónlist, Andkristnihátið
    Á föstudag létu mótmælendur rauðu glimmeri rigna yfir Bjarna Benediktsson utanríkisráðherra til að andmæla afstöðuleysi ríkisins gagnvart framferði Ísraelshers á Gaza. Við pælum í glimmeri, eggjum, skóm og öðrum hlutum sem mótmælendur hafa kastað í stjórnmálafólk í gegnum tíðina.
    Lestin er komin í jólaskap og ætlar að velta fyrir sér nýjum og sígildum jólalögum. Iceguys, Prettyboichocco og Laddi koma meðal annars við sögu.
    Þungarokkshátíðin Andkristni hefur farið fram í kringum jólin frá árinu 2000. Við ræðum við einn aðstandendanna, Viktor Árna Veigarsson, sem tekur þátt í skipulagningunni í fyrsta skipti ár.
    55 min
  • Sniðgöngum Lestina!
    Mikil umræða um sniðgöngu um þessar mundir í tengslum við framferði Ísraelshers á gaza undanfarnar vikur. Stuðningsfólk Palestínu hér á landi hefur reynt að beita þrýstingi á fólk, fyrirtæki og stofnanir til að sniðganga Ísrael eða þá sem styðja árásir ísraelska hersins á Gaza. Þessi krafa nær inn á nánast öll svið samfélagsins: menntakerfið, íþróttir og menningu.
    Við tileinkum Lestina í dag hugtakinu sniðganga. Við fáum sjónarhorn frá Kristínu Sveinsdóttur, Ásgeiri Brynjari Torfasyni, Tómasi Þór Þórðarsyni, Oddnýju Eir Ævarsdóttur og Boris Grebenschikov.
    55 min
  • Ertu greindari en grunnskólabarn? rappað um þjóðarmorð, samísk tónlist
    40% fimmtán ára nem­enda á Íslandi búa ekki yfir grunn­hæfni í lesskiln­ingi. Þetta kem­ur fram í niður­stöðum úr PISA-könn­un­inni 2022 sem voru birt­ar í dag.
    Hvað er OECD? Hvað er PISA? Af hverju fengum við svona lága einkun í PISA? Og hverju er það að kenna? Og hverja erum við að bera okkur saman við og af hverju? Við fáum nokkra Rúvara til að taka PISA-prófið umrædda.
    Katrín Helga Ólafsdóttir heldur áfram að fjalla um listir og menningu nágrannaþjóða okkar á Norðurslóðum. Að þessu sinni fjallar hún um samíska tónlist.
    Við heyrum líka um vinsælasta lagið í Ísrael þessa stundina, Charbu Darbu með dúettnum Ness og Stilla. Umfjöllunarefnið er hefnd og hernaður. ?Í landi þar sem tónlistarmenn hafa yfirleitt nálgast átökin með skarpri greiningu, þá er óþægilegt að sjá þennan stríðsæsingasöng á toppi vinsældalistans,? skrifar blaðamaður ísraelska fréttamiðilsins Forward. Aðrir hafa gengið lengra og sagt það hvetja til þjóðarmorðs.
    55 min
  • Andkristur, hnignun Spotify, Valur fær loksins listamannalaun
    Friedrich Nietzsche er einhver alræmdasti hugsuður vestrænnar nútímasögu og alltaf virðast nýjar kynslóðir heillast af skrifum þessa þýska heimspekings, fólk verður heltekið. Nú á dögunum kom út íslensk þýðing á bókinni Andkristur frá árinu 1888, bók með ógnvænlegan titil, bók sem er skrifuð af knýjandi þörf, jafnvel heift gagnvart kristinni trú, en líka djúpu innsæi og mannskilningi. Andkristur er með því síðasta sem kom frá Nietzsche en aðeins nokkrum mánuðum síðar fékk hann taugaáfall, missti vitið, veiktist á geði. Sigríður Þorgeirsdóttir mætir í Lestina og ræðir um Jesú Krist og Andkrist Nietzsches.
    Við ræðum við Val Gunnarsson rithöfund sem fékk ánægjuleg skilaboð í gær, en hann fær ritlaun í fyrsta skipti, eftir einhverja tvo áratugi af ritstörfum og sjö útgefnar bækur.
    Nýlega var tilkynnt um þriðju hópuppsögnina í ár hjá Spotify, framleiðslu virtra hlaðvarpa hefur verið hætt, og greiðslumódeli tónlistarfólks hefur verið breytt. Fyrirtækið virðist nú gera allt til að byrja að skila hagnaði. Við ræðum við Árna Matthíasson um hagnaðarvon og hnignun Spotify.
    55 min
  • Audible, ættfræði, John Wilson, Ísraelsfáni á Breiðabliksvelli
    Við ræðum leik Breiðabliks og Maccabi Tel Aviv við Tómas Þór Þórðarson íþróttafréttamann. Hefði Breiðablik getað sniðgengið, hætt við, neitað að keppa? Og hvaða afleiðingar hefði það haft í för með sér? Og hvenær mega íþróttir og pólitík blandast, hvenær ekki?
    Eiríkur Guðmundsson fór í heimsókn í Skerjafjörðinn árið 2018 og ræddi við Odd F. Helgason, ættfræðing. Oddur og kona hans Unnur Björg Pálsdóttir féllu frá í vikunni, til stóð að fá Odd í Lestina, en við huggum okkur við þetta viðtal sem leyndist í kistu Ríkisútvarpsins.
    Kristján vill segja upp Audible áskriftinni sinni, en getur það ekki, sama hvað hann reynir. Og Hjalti Freyr Ragnarsson, tónlistarmaður og pistlahöfundur í Lestinni hefur sérstakan áhuga á sjónvarpsþáttunum How To With John Wilson. Þættirnir koma úr smiðju Bandarísku sjónvarpsstöðvarinnar HBO og eru á mörkum þess að vera vídjólist og sjónvarp.
    55 min

About Lestin

From the publisher's feed

Popp og pólitík. Umsjón: Kristján Guðjónsson og Lóa Björk Björnsdóttir.

More shows like Lestin

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

468 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

Þarf alltaf að vera grín? by Þarf alltaf að vera grín?

Þarf alltaf að vera grín?

214 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

91 Listeners

Heimskviður by RÚV

Heimskviður

22 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

18 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

67 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

30 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

16 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

15 Listeners

LANGA - hlaðvarp by Snorri Björns

LANGA - hlaðvarp

3 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

25 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

13 Listeners