Kona, móðir, bumba. Mæðratips, facebook hópur þar sem þú getur spurt íslenskar mæður að hverju sem er. Innleggin eru fjölbreytt og þar skapast líflegar umræður. Í hópnum eru tæplega 25 þúsund meðlimir og þar eru öll hugsanleg vandamál mæðra borin á borð.
Síðbúna framhaldsmyndin Top Gun Maverick virðist ætla að verða einhver helsti bíósmellur sumarsins. Tom Cruise aftur á orrustuþotu í háloftunum eftir 35 ára hlé. Gunnar Ragnarsson rýnir í Top Gun 2 í þætti dagsins, og dregur saman hinar ýmsu túlkanir á fyrri myndinni, sem hefur ekki bara verið túlkuð sem áróðurstæki bandaríska hersins.
Við sökkvum okkur svo ofan í heim crypto-víkinga og ræðum við stofnendur Valhalla Vacation Club sem var eitt fyrsta íslenska NFT verkefnið þar sem reynt var að búa til samfélag utan um hálfgerðar stafrænar skiptimyndir.