Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

By Einar Bárðar og Baldur Rafn GylfasonSociety & CultureLeisure
Download on the App Store
  • Favorites

    23

    Followers

  • Typical duration

    64 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp episodes

  • 66.Hera Björk "Hjartað stækkar og heimurinn minnkar"

    Hera Björk er á leiðinni til Malmö að syngja framlag okkar í Eurovison þetta árið. Valið fór ekki fram hjá neinum. Árið 2019 heimsótti hún SOS barnaþorp bæði í Ísrael og Palestínu en hún er velgjörðasendiherra Barnaþorpanna. Við tölum um hlutverk hennar sem hennar sem velgjörðar sendiherra, hrópin sem gerð hafa verið að henni síðustu vikur og mömmu hennar sem var sveitaballa drottning suðurlands

    1 hr 21 min
  • 65.Júlí Heiðar "Eineltið eflir mann"

    Júlí Heiðar Halldórsson tónlistarmaður og lagahöfundur var að gefa út nýja plötu. Eitt af lögunum á henni, Farfuglar, vakti athygli mína núna í vetur þegar það kom út. Þar er Júlí Heiðar að syngja um tilfinningarnar og flækjurnar sem fylgja sameiginlegu forræði og umgengnisrétt samið og sungið þannig að það lætur fá sem hlusta ósnerta. Við ræðum plötuna, ferlið að verða að manni og það sem skiptir Júlí Heiðar mestu máli.

    1 hr 8 min
  • 64. Siggi Jóhannes "Lífið er leit að lækningu"

    Gestur minn í þessum þætti er Sig­urður Hólm­ar Jó­hann­es­son eða pabbi hennar Sunnu Valdísar. Sunna greind­ist með afar sjald­gæf­an tauga­sjúk­dóm aðeins 14 mánaða gömul og þá gáfu læknar henni ekki mikið meira en sex ár til viðbótar. Siggi, Ragnheiður Hjaltadóttir kona hans, læknar Sunnu og velunnarar fjölskyldunnar hafa sýnt mikla þrautseigju og eljusemi í því að leita að lækningu og bættum lífsgæðum fyrir Sunnu sem nú er orðin 18 ára gömul. Þetta er áhugaverður þáttur og upplýsandi.

    1 hr 31 min
  • 63. Herbert Guðmundsson "Can't walk away"

    Herbert Guðmundsson er gesturinn minn í þessum þætti. Ég hef alla tíð verið aðdáandi Hebba, allt frá því ég heyrði Can't Walk Away í fyrsta sinn árið 1985. Stórkostlegt lag í alla staði sem hefur fylgt honum sem sól í gegnum allt sem að á hann hefur dunið. Seinna eftir að ég kynntist honum sjálfum þá held ég áfram að vera aðdáandi hans fyrir þrautseigjuna. Hann stendur upp og heldur áfram, sama hvað gengur á með jákvæðni, einlægni og ástríðu að vopni.

    1 hr 8 min
  • 62 Magga Jónasar: Kommentakerfið fór á hliðina

    Gestur minn í þessum þætti er Magga Jónasar förðunarfræðingur og heilsumarkþjálfi. Við ræðum um heilsuna, orkuna og hvernig við höldum réttum kúrs í ólgusjó samfélagsmiðla, auglýsinga, rétttrúnaðar, öfga og hvernig við nálgumst fáum í sinni einföldustu mynd. Hvernig skríður kona upp úr margföldu burn-outi og stendur á haus á hverjum morgni af því að það er gott fyrir hvatberana. Já minna má það nú vera en þetta er frábært spjall.

    1 hr 14 min
  • 61 Logi Pedro: Eru Íslendingar rasistar?

    Logi Pedro er gestur minn í nýjasta þættinum af Einmitt. Hann er frábær tónlistarmaður og sýndi það með hljómsveitinni sinni Retro Stefson, svo undir eigin nafni og á bak við tjöldin sem upptökustjóri margra flottustu listamanna sinnar kynslóðar. Við Logi tölum um tónlistina í öllu því samhengi sem okkur dettur í hug en við ræðum líka hvernig er að vera svartur strákur, erum við Íslendingar rasistar og hvernig eigum við að fóta okkur í umræðunni um kynþætti og hvaðan við komum öll. Frábært og upplýsandi samtal.

    1 hr 3 min
  • 60 Friðrik Dór "Aldrei of flottur til að hafa ekki gaman af þessu"

    Friðrik Dór Jónsson einn afkastamesti tónlistarmaður landsins er gestur minn í þessum þætti. Hann var að gefa út plötuna Mæður sem er sjálfstætt framhald af Dætur sem kom út fyrir tveimur árum. Við ræðum hvernig hann semur tónlistina og hvaðan hann sælir innblástur í textana. Heiðarlegt og skemmtilegt samtal við Friðrik Dór um tónlistina.

    1 hr 13 min
  • 59. Snædís Xyza Mae Jónsdóttir "Sá hvítan mann í fyrsta sinn þegar ég var 4 ára"

    Snædís Xyza Mae Jónsdóttir matreiðslumaður er gestur Einars í þessum þætti. Hún er fædd á Filippseyjum en mamma hennar flutti til Íslands skömmu eftir að hún fæddist. Þegar Snædís var fjögurra ára kom móðir hennar og sótti hana og þær hófu nýtt líf á Íslandi. Það gekk aldrei sem skildi og Snædís var inn og út af fósturheimilum sem unglingur. Það var ekki fyrr en fulltrúi barnaverndar á Dalvík gekk henni í móður stað að Snædís fór að ná að fóta sig í lífinu. Í dag er hún þjálfari Íslenska Kokkalandsliðsins sem er komið til Þýskalands en ólympíuleikarnir í matreiðslu hófust þar á föstudaginn. Landsliðið keppir í tveimur af stærstu greinunum og leikunum lýkur á miðvikudag. Snædís var fyrirliði landsliðsins á heimsmeistaramótinu 2018, hún var fyrirliði á Ólympíuleikunum í Stuttgart 2020 þegar Ísland náði 3. sæti. Nú er Snædís þjálfari og hún ætlar sér stóra hluti með liðið þessa helgi og viku og á með henni er vel þjálfað lið vönu keppnisfólki. Ferðasagan hennar frá Filippseyjum alla leið á Ólympíuleikana í matreiðslu hér í þessum þætti.

    1 hr
  • 58 Bryndís Gunnlaugs "Fimm gríðarleg áföll á nokkrum vikum"

    Gestur minn í þessum þætti er Bryndís Gunnlaugsdóttir lögfræðingur og Grindvíkingur. Hún er fyrrum forseti bæjarstjórnar í Grindavík og starfaði lengi sem lögfræðingur hjá Sambandi íslenskra sveitarfélaga. Í dag starfar hún sem lögfræðingur hjá KPMG með áherslu á opinbera stjórnsýslu. Hún tók til máls á íbúafundi með ráðamönnum á þriðjudag eftir gos og vakti þar mikla athygli.

    59 min
  • 57. Gaupi "Hann var einstakur handboltamaður"

    Guðjón "Gaupi" Guðmundsson er einn reyndasti íþróttafréttamaðurinn þjóðarinnar. Áður var hann einnig þekktur sem liðsstjóri og aðstoðarmaður Bogdans Kowalczyk hjá Víkingi og landsliði Íslands í handknattleik. Núna er sonur Gaupa, Snorri Steinn þjálfari karlalandsliðs okkar í handbolta og kominn til Þýskalands á EM í handbolta. Þar situr Snorri með væntingar þjóðarinnar í fanginu og spennan er í hámarki. Í þessum þætti greinir Gaupi stöðuna eina og birtist honum í upphafi móts.

    1 hr 11 min

About Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

From the publisher's feed

Menn eins og við er hlaðvarp fyrir alla sem hafa einhvern tímann haft sterka skoðun á kaffi, grilli, garðslöngu, gallabuxum eða einhverju öðru sem skiptir nákvæmlega engu máli... en virðist samt skipta ótrúlega miklu máli.

Best of Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

Ranked by our users in the last 21 days

More shows like Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

466 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

140 Listeners

Morðcastið by Unnur Borgþórsdóttir

Morðcastið

131 Listeners

Fókus by DV

Fókus

2 Listeners

FM957 by FM957

FM957

26 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

90 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

72 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

31 Listeners

Morðskúrinn by mordskurinn

Morðskúrinn

20 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

28 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

19 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Undirmannaðar by Undirmannaðar

Undirmannaðar

6 Listeners

Sterk saman by Tinna Gudrun Barkardottir

Sterk saman

5 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

14 Listeners