
Sign up to save your podcasts
Or


Based on Podcast App listening data
Athafnakonan Drífa Björk Linnet Kristjánsdóttir er gestur minn í þessum þætti. Hún missti manninn sinn Harald Loga Hrafnkelsson í hræðilegu slysi á Tenerife þann 6. febrúar árið 2022. Heimilið þeirra og flestar veraldlegar eignir skemmdust af völdum brunans og litlu mátti muna að tvö börn hennar yrðu eldinum að bráð. Drífa fer yfir þennan afdrifatíka sunnudagsmorgun í þessu samtali okkar. Hún segi mér frá því hvernig er að vinna sig og sína út úr þessu hræðilega áfalli og hvert hún stefnir núna í lífinu. Þá ræðum við einnig kenningar "Gróu á leiti" um það sem átti að hafa gerst og svo það sem raunverulega gerðist samkvæmt niðurstöðum lögreglu rannsóknar sem örfáum dögum eftir brunann
Ingimar Birnir Tryggvason er gestur minn í þessum þætti. Ingimar eftirsóttur upptökustjóri og framleiðandi hér heima og erlendis. Hann er upptökustjórinn á bak við Patrik Atlason eða Prettyboitjokko eins og hann er kallaður, sem hefur sett allt á hliðina í sumar með lögunum sínum. Við ræðum hvernig það er leggja allt undir fyrir tónlistina og ná beint á toppinn.
Ágúst Bjarni Garðarsson þingmaður er gestur minn í þessum þætti. Hann og konan hans eiga dreng sem greindist með CP hreyfihömlun við eins árs aldur og er því háður ýmis konar stuðningi í daglegu lífi. Ágúst Bjarni segir í samtalinu að hann hafi farið langt niður í kjölfarið og ekki höndlað það vel en nýtir nú sína innsýn í málaflokkinn til að bæta umhverfi þeirra sem takast á við sambærilegar áskoranir.
Gestir mínir í þessum sérstaka þætti af Einmitt eru Alma, Klara, Steinunn og Emilía úr Nylon flokknum. Það eru tæp tuttugu ár eru síðan að flokkurinn var stofnaður og hann steig fyrst á svið. Eftir að hafa slegið í gegn á Íslandi starfaði sveitin í Bretlandi en eftir að ein söngkonan hætti fluttust hinar þrjár til Los Angeles þar sem þær komu fram allt til ársins 2015. Í fyrsta sinn síðan árið 2007 steig hinn upprunalegi Nylon flokkurinn á svið á Tónaflóði Rásar 2 á Menningarnótt. Þar fluttu þær lagið Einu sinni enn, sem nú er hægt er að nálgast á Spotify. Við ræðum þetta ævintýri og rifjum upp skemmtilegar minningar því tengdu.
Vinur minn Hallgrímur Ólafsson eða Halli Melló var valin leikari ársins árið 2023 fyrir hlutverk sitt í Íslandsklukkunni sem sýnt var í Þjóðleikhúsinu í vetur. Hann hefur átt ótrúlega skemmtilegan og viðburðaríkan feril. Hann ákvað að fara í leiklist frekar en á sjó og við ræðum hvernig það er að vera "utangarðs" innan um listaelítuna, um klappið hjá Magnúsi Magnúsi Magnússyni og hvernig fátt í heiminum er eins fyndið og íslenskt "Wanna-be" sem þekkir alla en enginn þekkir hann.
Guðni Gunnarsson hefur í um fjóra áratugi verið frumkvöðull á sviði líkams- og heilsuræktar. Hann er stofnandi og upphafsmaður Rope Yoga og GlóMotion hugmyndafræðinnar og "Máttur" bækurnar hans hafa notið mikilla vinsælda. Í haust byrjar hann með yfirgripsmikið námskeið í Lífsfærni sem hann kallar líka Heilrækt. Ég þekki Guðna og hef setið námskeið hjá honum og lesið bækurnar hans. Hvoru tveggja hefur reynst mér vel og með þessu spjalli langar mig hreinlega til að kynna þetta verkefni fyrir ykkur.
Gestur minn í þessum þætti er Klara Ósk Elíasdóttir söngkona og góð vinkona mín til margra ára. Við ræðum um árin eftir að Charlies hættu og hvernig samstarf þeirra og vinskapur hefur þróast langt út fyrir ramma þess verkefnis. Þá ræðum við líka um nýjan kafla í lífi hennar sem tónlistarmanneskju og hvernig lagahöfundar titillinn bættist við söngkonu titilinn.
Gestur minn í þessum þætti er utanvega hlauparinn Sigurjón Ernir Sturluson. Við höfum þekkst heillengi og nálgun hans á heilsu og aðferðir hans við að koma sér í gegnum löng keppnishlaup hafa heillað mig í gegnum tíðina. Við ræðum um bakgruninn hans, aðferðafræðina bæði við þjálfun og mataræði sem oft hefur vakið mikla athygli.
Inga Kristjánsdóttir næringaþerapisti er gestur minn í þessum þætti. Hún hefur sérhæft sig í að leiðbeina fólki varðandi blóðsykurstjórnun og sykurlöngun, með það að markmiði að bæta líðan, heilsu og koma í veg fyrir þróun ýmissa bólgusjúkdóma, sem eru faraldur þessarar aldar. Þetta samtal er var nú fyrst og fremst fræðandi fyrir mig en ég vona að þið njótið og nýtið ykkur þekkingu hennar á viðfangsefninu.
From the publisher's feed
Ranked by our users in the last 21 days

466 Listeners

140 Listeners

131 Listeners

2 Listeners

26 Listeners

90 Listeners

72 Listeners

31 Listeners

20 Listeners

28 Listeners

19 Listeners

36 Listeners

6 Listeners

5 Listeners

14 Listeners