Þó að karlar séu með geirvörtur og mjólkurkirtla líkt og konur þá tíðkast það ekki að þeir gefi börnum sínum brjóst. Mjólkandi maður, Milking man, nefnist útskriftarverkefni Jón Sölva Walderhaug frá lIstaháskóla íslands, en þar gerði hann tilraun til að virkja mjólkurframleiðslu í brjóstum sínum.
Ungur íslenskur fatahönnuður selur hönnun sína í yfir 50 hátískuverslunum, merkið sem áður hét Arnar Már Jónsson, breytti á dögunum um nafn, og kallast nú Ranra. Hönnuðirnir leggja höfuðáherslu á sjálfbærni og lita flíkurnar með íslenskum plöntum, er það er nánast óheyrt í heimi hátískunnar. Fötin eru gerð til að klæðast úti, en eru ekki eiginleg útivistarföt að sögn Arnars, en fatamerkið sló í gegn þegar Covid skall á og útivistarföt urðu að tískuvöru.
Berglind Rós Magnúsdóttir heldur áfram að fjalla um hlutverk framhaldsskólanna í að viðhalda stéttaskiptingu í íslensku samfélagi, að þessu sinni tekur hún tvær dæmisögur.