Hvað þýðir að púlla upp? Við köfum ofan í tungutak unglinga, goona og gella og gerum óformlega könnun á þekkingu starfsfólks Ríkissútvarpsins.
Nú í vikunni var tilkynnt að tæknifyrirtækið Apple ætli að hætta framleiðslu á tónlistarspilaranum iPod. Við rekjum sögu og áhrif tækisins
Og að gefnu tilefni rýnir Gunnar Ragnarsson í kvikmyndina the unbearable weight of massive talent, óbærileg þyngd mikilla hæfileika, og nýtir tækifærið til að sökkva sér ofan í höfundaverk bandaríska leikarans Nicolas Cage - sem leikur sjálfan sig í kvikmyndinni.