Halldór Armand Ásgeirsson flytur að venju pistil í Lestinni á þriðjudegi og fjallar í dag um niðurskurð og hagræðingu. Meðal þess sem hann snertir á pistlinum er Jókerinn, Thomas Picketty og niðurskurður á stafrófinu.
„Kvikmyndahús eru orðin að skemmtigörðum,“ sagði hinn virti bandaríski kvikmyndaleikstjóri Martin Scorcese á dögunum og gagnrýndi bíómyndir Marvel-myndasögurisans harkalega. Orð leikstjórans hafa kveikt heitar umræður á netinu um gildi og gæði ofurhetjukvikmynda sem hafa verið áberandi í kvikmyndahúsum undanfarinn áratug. Í Lestinni í dag verður spurt hvort Scorcese hafi eitthvað til síns máls, eða hvort þetta sé bara nöldur í gömlum karli? Ásgrímur Sverrisson og Gísli Einarsson takast á um gildi og gæði Marvel-kvikmyndanna - og þeim er heitt í hamsi.
Og við höldum á söguslóðir. Hressingarskálinn við Austurstræti var reistur árið 1805 og var þá kallað „svenska húsið.“ Síðan þá hefur ýmisstarfssemi verið rekin í húsinu - það hefur verið embættisbústaður, kaffihús og McDonalds - en nú vonast nýjir eigendur til að það muni glæða íslenska tónleikamenningu lífi.