Normið
Download on the App Store

Normið episodes

  • 213. Margrét Anna - Með áhrifamestu frumkvöðlum á heimsvísu. - Frumkvöðlaserían

    Viðmælandi þáttarins er Mar­grét Anna Ein­ars­dótt­ir, fram­kvæmda­stjóri og stofn­andi hug­búnaðarfyr­ir­tæk­is­ins Justikal. Margrét er ásamt Katrínu Jak­obs­dótt­ur for­sæt­is­ráðherra á lista  NBC yfir 23 áhrifa­mestu kven­frum­kvöðla í stjórn­mál­um og viðskipt­um á heimsvísu. 

    Virkilega áhrifaríkt, skemmtilegt og lærdómsríkt spjall við konu sem allir geta lært af. Ekki láta 4. þátt Frumkvöðlaseríunnar framhjá þér fara! 

     

    1 hr 5 min
  • 214. "Það er erfitt að breyta peningum í hamingju." Georg Lúðvíksson - Frumkvöðlaserían

    Georg Lúðvíksson, meðstofnandi Meniga, kom í virkilega skemmtilegt og fróðlegt viðtal í Frumkvöðlaseríuna! Hann hefur marga frumkvöðlafjöruna sopið og hefur mikla reynslu sem við fáum öll að læra af í þessum þætti. Við ræddum meðal annars heimilisbókhaldið, peningauppeldi, fjármálahegðun og margt fleira fáránlega nytsamlegt. Ef þú ert í veseni með sambandið þitt við peninga, eða vilt bara efla góða fjármálastöðu, þá veeerður þú einfaldlega að taka þér tíma í að hlusta.  

    1 hr 22 min
  • 215. Þórey Vilhjálms frá Empower! - Frumkvöðlaserían

    Haldið ykkur fast krakkar, þessi er negla. Síðasti þáttur Frumkvöðlaseríunnar! 

    Þórey Vilhjálmsdóttir Proppé er ein af stofnendum Empower, hugbúnaðarfyrirtæki sem snýr að alls herjar vitundavakningu í jafnréttismálum fyrir fyrirtæki og stofnanir. Við ræddum jafnréttismál, vinnustaðarmenningu, mikilvægi góðs andrúmslofts innan fyrirtækja, kvennakraft og allskonar djúsí þar á milli. 

    1 hr 29 min
  • 218. Edda Björgvins - "Húmor og gleði í lífinu er dauðans alvara"

    *Prentmiðlar og fjölmiðlar hafa ekki leyfi til þess að skrifa upp úr þessu viðtali nema sérstakt leyfi sé gefið af Eddu sjálfri* *Umræðuefnið gæti valdið óþægindum hjá einhverjum, gefum hér með trigger warning*

    Gersemin okkar allra hún Edda Björgvins kom í fallegasta viðtal sem við höfum tekið frá upphafi. Við spjölluðum um gleði, húmor, geðheilbrigðismál, fíkn, sálgæslunámið hennar Eddu og margt þar á milli. Við ræddum líka mikilvægi þess að grípa fólk sem fer í gegnum alvarleg áföll og sérstaklega þau sem missa nákominn aðila úr sjálfsvígi. 

    Það er mikið hægt að læra af Eddu og hennar sjónarhorni á lífið. Hlustum og lærum. ❤️

    1 hr 39 min
  • 216. Foreldraþrotið góða!

    Gleðilegt sumarfrí með elsku börnunum! Þessi þáttur er sérstaklega gerður fyrir foreldra landsins. Mömmur, pabba, stjúpforeldra, skáforeldra, forráðamenn, verðandi foreldra, aukaforeldra, ömmur, afa, jafnvel frænkur og frændur.. Hlustum, hlægjum, lærum og slökum. 

    1 hr 39 min
  • 217. Uppeldi - Agi eða mýkt?

    Jæja.. foreldraþrots þáttur síðustu viku fór eins og eldur um sinu og foreldrar um allt land tengdu mikið! Nú tökum við round 2 af þessari umræðu og skoðum leiðir til að sjá önnur sjónarhorn og líða betur með þetta allt saman. Sumarfríið er að fara misvel með fólk, við sendum ykkur sterka strauma! WE GOT THIS. 

    1 hr 12 min
  • 219. Aron Mola vol 2

    Einn extra hrár og dass brútal með meistara Aron Mola! Þið kæru hlustendur senduð okkur margar beiðnir um að fá Aron aftur í spjall og að sjálfsögðu skelltum við í þessa veislu. N'joy! 

    1 hr 52 min
  • 220. No F*cks Left To Give

    Þetta er allt í titli þáttarins gott fólk. Hentum í einn veeel léttan þátt og tókum lífinu extra óalvarlega. Eru ekki allir annars bara að jafna sig eftir Verzlunarmannahelgina... 🤪 

    1 hr 16 min
  • 221. Ási - "Það er svo auðvelt að sleppa því að vera leiðinlegur"

    Ásgrímur Geir Logason, eða Ási eins og við þekkjum hann flest, er frægur fyrir frábæru podcöstin sín og snillatakta á tiktok, auk þess er hann frábær leikari og yndisleg manneskja í gegn. 

    Þú kannast eflaust við podcöstin Betri Helmingurinn og Heitt á Könnunni en Ási er stjórnandi þeirra beggja. Við fórum um víðan völl með Ása og ræddum meðal annars æskuna, leiklistina, góðmennskutakta og podcast-rekstur. Hann er líka ekkert að grínast með hlaðvarpsferilinn því hann var að gefa út nýtt og spennandi podcast með kærustunni sinni nýlega!  

    Nú skulum við öll kynnast manninum sem tekur viðtal við alla aðra. Heldur betur kominn tími til.

    Þú getur fylgst með Ása og öllu brillinu sem hann framkvæmir hér. 

    1 hr 22 min

About Normið

From the publisher's feed

Eva Matta og Sylvía Briem Friðjóns, þjálfarar og athafnakonur, taka hrátt plebbaspjall um mannlegheit og skoða leiðir til þess að gera lífið skemmtilegra.