
Sign up to save your podcasts
Or


Yndislega og hæfileikaríka leikkonan hún Katla Margrét kom í spjall til okkar og vá hvað er gott að spjalla við þetta eðaleintak. Hún hefur auðvitað komið að óteljandi verkefnum, starfar sem leikkona í Borgarleikhúsinu og leikur næst hlutverk í mjöög spennandi seríu sem kemur út eftir áramót og kallast Kennarastofan. Við ræddum leiklistina, skólakerfið, áramótaskaupið, sturlað fyndna sketsa úr Stelpunum og allskonar þar á milli! Njótið elsku hlustendur ❤️
Deeejókaðu hvað þessi þáttur er mikið eyrnakonfekt. Við elskum hrá spjöll um mannlegheit sem enda samt einhvernvegin í plebbatöktum og hláturskasti.
Eyþór Ingi er auðvitað eitt mesta hæfileikabúnt landsins og var ungur þegar hann byrjaði að leyfa þjóðinni að njóta viðveru sinnar. Kæri hlustandi, við stórgræddum á því hlusta á Eyþór og það munt þú gera líka. NJÓTUM ❤️
Mörg finnum við fyrir allskonar kvíða á lífsleiðinni og okkur þótti mikilvægt að ræða aðeins heilsukvíða í samhengi við síðasta þáttinn okkar, viðtal við stofnendur Intuens. Í fyrsta skipti hefur einstaklingurinn öðruvísi vald yfir upplýsingum um eigin heilsu og þess vegna er eðlilegt að velta fyrir sér hvernig áhrif þetta hefur allt saman á manneskjuna.
Við ræddum líka félagsfælni og kvíða almennt og hvernig sé hægt að vinna í að losa sig úr vítahringnum sem myndast þegar hausinn fær að hlaupa taumlaust úr á kvíðatúnið.
Ási, eða Ásmundur Gunnarsson, starfar sem sálfræðingur hjá Kvíðameðferðarstöðinni og hans áhugasvið liggur meðal annars í þráhyggju og áráttuhegðun. Hann er ekki bara fáránlega fróður um málefnið heldur líka bara mjög skemmtileg manneskja. Úr varð þessi negluþáttur sem flestir verða að hlusta á!
Þau Torfi og Steinunn eru meðstofnendur Intuens. Þetta spennandi fyrirtæki býður upp á byltingarkenndar breytingar hvað varðar heilsu og heilbrigðiskerfi þjóðarinnar. Hjá Intuens getur þú bókað þig í heilskanna og fengið að sjá stöðuna á þínum eigin líkama, án þess að þurfa að bíða eftir samþykki annars staðar frá.
Þegar kemur að heilsunni, þá er þekking máttur. Intuens er fyrirtæki sem nýtir sér nýjustu segulómtækni, gervigreind og tölvugreiningar frá Philips til að varpa ljósi á ýmsa kvilla og sjúkdóma.
Kynntu þér málið á intuens.is eða á intuenshealth
Í þessum þætti ræðum við hvernig við getum tekist á við hátt Cortisol stig, en cortisol er auðvitað aðal streituhormónið í líkamanum. Hvernig hefur það áhrif á líf okkar í daglegu lífi?
Hvernig lítur lífið út þegar það er ekki óregla í taugakerfinu? Hér er á ferð mikilvægur þáttur fyrir þau sem að langar að taka streituna föstum tökum og mögulega finna þetta blessað jafnvægi!
Í þessum ræðum við hvernig við getum tekist á við mikið cortisol streituhormónið í líkamanum. Hvernig það getur haft áhrif á okkur, hvernig það lýtur út þegar það er óregla á taugakerfinu. Mikilvægur þáttur sem að getur vonandi hjálpað þeim sem að langar að taka streituna föstum tökum!
Tveir öðlingar mættu með okkur í stúdíóið og úr varð þessi stórkostlegi þáttur. Benedikt Valsson og Fannar Sveinsson eru þekktir fyrir að framleiða snilld og flest þekkjum við Hraðfréttir sem hristu skemmtilega upp í Kastljósinu fyrir nokkrum árum síðan.
Þessa dagana eru þeir meðal annars að vinna að því að framleiða Áramótaskaupið okkar allra - sem undirstrikar hvað þeir eru fáránlega hæfileikaríkir í sínu fagi.
Kæru landsmenn, góða skemmtun.
Skoðum hversu veruleikafirrt, eða dululu, fólk getur almennt verið. Við ræddum svokallað "girl math" og "boy math" sem er út um allt á tiktok og öðrum miðlum þessa dagana. En er mögulega sálfræðilegur ávinningur við það að vera delulu? Perhaps maybe. 😏
Svo tókum við lífeyrisrant einhversstaðar um miðjan þátt og smá flug-sköllun í lokin. Bon appetit.
*Prentmiðlar og fjölmiðlar hafa ekki leyfi til þess að skrifa upp úr þessu viðtali nema sérstakt leyfi sé gefið af Guðrúnu sjálfri
Guðrún Ýr Eyfjörð, betur þekkt sem tónlistar-töffara-sleggjan GDRN, kom til okkar í hrátt og skemmtilegt viðtal og mikið var gott að sitja með henni og spjalla um lífið. Njóttu vel kæri hlustandi, þessi er extra ljúfur.
Innri pressan, samfélagið, ramminn, reiðin, fáránleikinn... gaaaman. Af hverju förum við ekki bara í gegnum lífið í kyrrðinni og rólegheitunum?
Pressan sem við setjum á okkur er stundum svolítið fyndin og mjög oft þreytandi. Skoðum þetta.
From the publisher's feed