Normið
Download on the App Store

Normið episodes

  • 223. Einar Carl frá Primal - Tökum einföld skref í átt að heilbrigði

    Vá hvað þetta var eye opening þáttur. Hollt og gott spjall en samt smá blaut tuska. Góð blanda. 

    Einar Carl er flestum kunnugur sem stofnandi Primal. Hann lenti í snjóbrettaslysi fyrir þónokkrum árum og kennir nú fólki að taka fulla ábyrgð á eigin ástandi til þess að öðlast frelsi í eigin líkama. 

    Í Primal er hægt að nálgast einkatíma í verkjaútrýmingum, stoðkerfisvandmálum, æfingamarkmiðum tengdum líkamsþyngdarstyrk, liðleika og streitustjórnun. Auk þess kennir Einar Movement tíma, Sigrum streituna grunnnámskeið og framhald.

    1 hr 18 min
  • Upprif... ekki niðurrif. - Áskriftarþáttur

    FEBRÚAR WORKSHOP - Þú finnur þennan þátt í fullri lengd í áskriftinni á normid.is ❤️

    Skoðaðu styrkleikana þína, hættu þessu djöfulsins niðurrifi og ÁFRAM GAKK ÞÚ MIKLI SNILLINGUR.

    Án alls gríns samt þá mættum við öll vera duglegri að skoða hvað er gott við okkur. Ekki flóknara en það. Gerum það núna. 🎧

    6 min
  • Rúnturinn - Áskriftarþáttur

    Þú finnur þennan þátt í fullri lengd í áskriftinni á normid.is ❤️ Sumir segja að eitt það mikilvægasta í lífinu sé fólkið okkar.. og tengingin sem við höfum við fólkið okkar. Rúnturinn er þitt tækifæri til að taka ísrúnt eða göngutúr eða bara sófachill með þinni manneskju og styrkja sambandið ALLSVAKALEGA. Vinkonur, vinir, mæðgur, mæðgin, feðgar, feðgin, frænkur, frændur, makar... name it. Þessi þáttur er til þess að gera samböndin þín betri og sterkari. Have fuuun 👏

    7 min
  • Framkvæmdu WORKSHOP - Áskriftarþáttur

    JANÚAR WORKSHOP - Þú finnur þennan þátt í fullri lengd í áskriftinni okkar á normid.is ❤️Splúnkunútt workshop sem hjálpar okkur að framkvæma. Semsagt hætta að dvelja og ofhugsa og fresta osfrv. Þetta er fyrir öll sem langar að komast skrefinu lengra í lífinu á þessu ári. Jafnvel þessum ársfjórðungi.. er ekki alltaf betra að búta þetta niður?

    7 min
  • Hamingjumettun WORKSHOP - Áskriftarþáttur

    JANÚAR WORKSHOP - Þú finnur workshopið í fullri lengd í áskriftinni okkar á normid.is ❤️ Flest förum við í gegnum tímabil þar sem allt er í blóma og gleði.. þá hugsum við "vá ég ætla alltaaaf að vera svona".. svo gerist lífið. Áður en maður veit af er maður kominn í vesenið eina ferðina enn. Það er náttúrulega bara óraunhæft að vera alltaf í toppstandi, en það er ágætt að grípa í leiðir til þess að ná sér til baka í hamingjuna og gleðina. Hér höfum við akkúrat svoleiðis workshop. 

    8 min
  • 237. Sniglumst beinustu leið út úr hjarðhegðuninni!

    Þú finnur nýja þætti Í Normið Áskrift!

    Næææstum því síðasti þátturinn sem við gefum út kæru uppáhalds hlustendur. Við ákváðum að taka létt spin á "snail girl era" pælinguna, hjarðhegðunarvesenið sem myndast óhjákvæmilega í samfélaginu og svo kom dass af umræðu um "delayed gratification" eða seinkun á verðlaunum. Hvernig getum við í ósköpunum þjálfað með okkur smá sjálfsaga og losnað við þessa quick fix stemningu? 

    1 hr 35 min
  • 239. Kveðjustund

    Elsku hjartans bestu hlustendur. Hér líður Normið að lokum. ❤️

    Við fórum yfir farinn veg, spiluðum ógeððððslega fyndna klippu, ræddum framhaldið og svo var þarna dassss af tilfinningarússíbana. Við eigum erfitt með að skrifa lýsingu hér fyrir þennan þátt, enda hægara sagt en gert að súmma upp 5 ár af snilld með ykkur.

    Við gátum ekki alveg sleppt af ykkur takinu samt og verðum með klikkað efni í áskrift strax eftir áramót. Skottastu á normid.is og skráðu þig í áskrift með okkur elsku litli plebbaskítur. SEE YA BAYBAY

    1 hr 58 min
  • 238. Halldóra Geirharðs - "Aldrei hætta að vera forvitin"

    Þú finnur nýja þætti í Normið Áskrift!

    *Prentmiðlar og fjölmiðlar hafa ekki leyfi til þess að skrifa upp úr þessu viðtali nema sérstakt leyfi sé gefið af Halldóru sjálfri*

    Halldóra Geirharðs hefur verið á bucketlistanum okkar yfir viðmælendur í langan tíma og því er einstaklega vel við hæfi að hún sé okkar síðasti viðmælandi. Margt fólk sem hefur komið til okkar í Normið hefur haft orð á því hversu mikil fagkona og viskubrunnur hún er. Við erum hjartanlega sammála því.

    Okkur þótti óendanlega vænt um að fá að kroppa í huga Halldóru - njótið vel kæru hlustendur. Þessi fer á dýptina. 

    1 hr 20 min
  • 236. "Það er hægt að sigrast á fíkn" - Magdalena Sigurðar

    2012 þurfti Magdalena Sigurðardóttir að horfast í augu við sinn alkóhólisma. Í dag hefur hún verið edrú í 11 ár og er alþjóðavottaður fíkni og fjölskylduráðgjafi ásamt því að starfa hjá Samhjálp. Þetta viðtal hitti okkur beint í hjartað og er okkur virkilega dýrmætur. Hlustum, lærum og förum í gegnum desember með frið í hjarta. ❤️ 

    Þau sem vilja styrkja mikilvægt starf Samhjálpar geta gert það hér. 

    1 hr 35 min

About Normið

From the publisher's feed

Eva Matta og Sylvía Briem Friðjóns, þjálfarar og athafnakonur, taka hrátt plebbaspjall um mannlegheit og skoða leiðir til þess að gera lífið skemmtilegra.