Normið
Download on the App Store

Normið episodes

  • 204. DILJÁ - "Þú ert bara skugginn sem enginn sér"

    Diljá stórstjarna og Eurovision-negla Íslands kom í viðtal í Normið og þetta er ekkert annað en stórkostlegur þáttur gott fólk. Njótum páskanna, hlustum á viðtalið, tökum Diljá okkur til fyrirmyndar og eigum næs líf. Ekki flókið. Hún er án gríns ein mesta þruma sem við höfum hitt og við getum ekki beðið eftir að fylgjast með henni rokka Eurovision og lífið! 

    1 hr 18 min
  • 206. Anna Þóra - Haven Rescue Home

    Anna Þóra rekur Haven Rescue Home sem er heimili í Kenýa fyrir ungar mæður á aldrinum 12-18 ára og börnin þeirra. Við tökum fram að þessi þáttur er átakanlegur á köflum og mögulega trigger fyrir einhverja. 

    Það er ótrúlega margt hægt að læra af þessu viðtali og við hvetjum sem flest til að hlusta.  Anna Þóra rekur þetta fallega starf með styrkjum og þess vegna mikilvægt að hver sá sem sér sér fært um að styrkja láti verða að því. 

    Styrktarreikningur fyrir Haven Rescue Home er 0537-14-407270, kt. 450315-1760. 

    1 hr 34 min
  • 207. Glugginn inn í gleðina

    Mikið þykir okkur vænt um þennan þátt kæru hlustendur. Við óvart deildum svolítið miklu persónulegu.. Umræðuefnið var semí tilfinningaleg flatneskja og við skoðuðum AUÐVITAÐ leiðir til að finna fyrir betri og bjartari og ríkari tilfinningum. Skemmtilegur og hrár þáttur - coming right up! 

    1 hr 20 min
  • 208. Fýlustjórnun er lúmskt helvíti

    Gamla góða silent treatment. Oj. Við gerum þetta öll á einhverjum tímapunkti og við lendum líka öll í þessu einhverntíman. Það er klárlega þess virði að skoða hvernig áhrif þetta hefur og hvernig við getum losað okkur við afleiðingar af þessu lúmska helvíti. :) 

    1 hr 38 min
  • 209. Ragga Gísla - Gyðjur og Gaman!

    Lifandi goðsögnin, Ragnhildur Gísladóttir, gyðjan okkar allra, Ragga Gísla!!! kom í viðtal til okkar. Við staðfestum hér með að Ragga er algjör bucket list viðmælandi og við springum úr þakklæti fyrir góða spjallið sem við áttum. Hér er stórkostlegur þáttur á ferð - og þú, kæri hlustandi, verður að hlusta á þennan frá A-Ö. 

    1 hr 26 min
  • 210. Hvernig á að forðast dýrkeypt mistök? - Frumkvöðlaserían

    Fyrsti þáttur af Frumkvöðlaseríunni gott fólk! Þessi sería mun innihalda viðtöl við fólk sem hjálpar frumkvöðlum að ná árangi, fjárfesta og fólk sem hefur náð árangri í frumkvöðlalífinu. Við fáum að vita hvernig ferlið er, hvað þetta flotta fólk gerði til þess að ná langt með hugmyndina sína, hvað getur farið úrskeiðis og aaallt þar á milli. 

    Í þessum byrjunarþætti förum við Eva og Sylvía í gegnum okkar reynslu ásamt því að skoða 5 merki sem gefa það til kynna að þú sért tilbúin/n/ð í frumkvöðlastarf, hvað er mikilvægt að hafa í huga þegar kemur að Branding, hversu fast þarf að skrúfa hausinn á herðarnar...:) og margt annað mikilvægt. LETSGO

    1 hr 42 min
  • 211. Ertu með góða hugmynd? - Frumkvöðlaserían

    Ef þú ert með hugmynd í maganum, þarft þú að heyra þennan þátt. 

    Hér höfum við þátt 2 í Frumkvöðlaseríunni! Þátturinn er tvískiptur. Fyrst tókum við gott spjall við Unu Steinsdóttur, Framkvæmdastjóra viðskiptabanka Íslandsbanka. Við ræddum meðal annars liðsheild og hvað skiptir máli þegar sótt er um styrk í Frumkvöðlasjóð ÍSB. 

    Seinni hálfleikur þessa þáttar er spjall við þau Ástu Sóllilju Guðmunds, framkvæmdastjóra KLAK, og Frey Friðfinns, verkefnastjóra hjá KLAK. Fyrir þau sem ekki vita, er KLAK nýtt heiti Icelandic Startups. Þau Ásta og Freyr vita meira en margir þegar kemur að frumkvöðlastarfi og það er ómetanlegt að fá að heyra þeirra innsýn. 

     

    1 hr 37 min

About Normið

From the publisher's feed

Eva Matta og Sylvía Briem Friðjóns, þjálfarar og athafnakonur, taka hrátt plebbaspjall um mannlegheit og skoða leiðir til þess að gera lífið skemmtilegra.