
Sign up to save your podcasts
Or


Hannes Þór er eitt mesta toppeintak sem finnst á þessari ágætu eyju okkar. Hann er hæfileikaríkur kvikmyndagerðarmaður og flestir þekkja hann líka sem einn öflugasta markmann íslenskrar fótboltasögu. Hann einfaldlega varði skot frá Messi, say no more. Hugarfarið hans er einstakt og sjónarhornið sem hann hefur á lífið er áhrifaríkt og fallegt.
Þessi þáttur er gullmoli sem þú mátt ekki láta framhjá þér fara.
Þegar við fórum að skoða umræðu um boxin sem við setjum okkur í.. komumst við að því að við mannfólkið hreinlega ELSKUM að flokka allt og alla í box. Gaman. Skoðum annarsvegar hvaða boxum okkur líður vel í hinsvegar hvaða boxum okkur langar að stappa á að henda í ruslið. :)
Okkur langaði að aðgerðabinda hugtaki gleði, hvernig við finnum fyrir tilfinningunni, hvar við finnum hana og hvað veitir okkur almenna gleði. Þessi þáttur er ávísun á gott þakklæti í hjartað og mikilvægi þess að staldra við og eiga þessa vinnu. Það gerir lífið innihaldsríkara!
Fylgið okkur endilega inná normidpodcast á instagram og ef þið viljið vera extra nice þá væri frábært að fá stjörnur frá ykkur og subscribe inná Podcast appinu eða Spotify!
Júlíana Sara er ein skemmtilegasta manneskja sem við höfum hitt. Hún er mesta hæfileikabúnt: Leikkona, handritshöfundur og leikstýra með meiru. Margir þekkja hana úr þáttaseríunum Venjulegt Fólk og Þær Tvær. Viðtalið er virkilega innihaldsríkt, létt og djúpt í senn. Njótið kæru hlustendur!
Í þessum þætti tölum við um það að þora að stækka, hvað það þýðir fyrir okkur og hvernig þetta snýr allt saman. Hvernig bombum við okkur í að taka lífið föstum tökum!? Við urðum vel meyrar í þættinum og hlökkum mikið til að heyra hvað þið tókuð út úr þættinum.
Endilega subscribe-ið og fylgið okkur á Instagram: normidpodcast
Við fengum til okkar Söru Maríu sem er mögulega betur þekkt sem @forynja. Hún er í ótrúlega áhugaverðu námi og hefur verið í framlínu ásamt geðlæknum að ræða ávinning notkunar psilocybin í geðheilbrigðismálum. Þú verður að hlusta á þennan þátt kæri hlustandi. Við köfum ofan í allskonar spurningar og veltum fyrir okkur framhaldinu. Þú getur skoðað ráðstefnuna sem við ræðum um hér. Sjáumst vonandi þar!
Eva Ruza er ekki bara stórkostlega skemmtileg, heldur er hún ein fallegasta mannvera líka. Með hjarta úr skíragulli.. í bleikum joggara. Það þekkja Evu Ruzu langflestir en hún er alræmd fjölmiðlakona, Hollywood Expert og einn öflugasti skemmtikraftur landsins. Þessi þáttur gleður mikið og yljar hjartarótum. Biðjum ekki um meira í grámygluðu skammdeginu. <3
Gott fólk... Mugison kom í spjall til okkar. MUGISON. Living legend. Þessi þáttur er einstakur og þú verður hreinlega að hlusta, NÚNA. Gleðileg jólin segjum við bara.
Nú eru bara nokkrir dagar eftir af þessu fína ári.. og tímabært að skoða hverju við getum sleppt tökunum af fyrir nýja árið! Förum lauflétt inn í 2023 takk.
Gleeeeðilegt árið og allt það! Smá faceplant inn í nýtt ár... Það er svakaleg orka í loftinu þessa dagana og margir virðast tengja. Kynnumst nýja uppáhalds orðinu og allri þeirri snilld sem ætlar að einkenna 2023. LETSGO.
From the publisher's feed