
Sign up to save your podcasts
Or


Við sönkuðum að okkur allskonar heilsuráðum og pælingum - sumt er klárlega furðulegra en annað.. Setjum heilsuna í forgang, höfum gaman af, rífum upp glósubækurnar og temjum okkur góða heilsuvana!
Birgitta Líf kom til okkar í yndislegt spjall. Hún er fyrst og fremst athafnakona og mikill þúsundþjalasmiður. Hún er markaðsstjóri WorldClass, eigandi Bankastræti Club, áhrifavaldur og með raunveruleikaþættina LXS á Stöð 2. Við getum öll lært af hugarfarinu hennar, undirbúðu þig fyrir innblástur!
Heyrðu vá hvað við þurfum mörg á því að halda að heyra þennan þátt, taka upplýsingarnar til okkar og Í ALVÖRU nýta þetta allt saman í eigin lífi. Andri stendur líka fyrir virkilega flottri Heilsuráðstefnu sem verður 18. febrúar í Hörpu, þú getur lesið meira hér: https://tix.is/en/event/14492/breath-cold-stress-resilience-conference/
Það er komið að því kæru hlustendur! Fyrsti þáttur hinnar margumbeðnu ADHD seríu er kominn í loftið. Þessi umræða brennur á mörgum og við byrjuðum á því að eiga gott spjall við Harald geðlækni, en ADHD er eitt af hans helstu áhugasviðum. Hér er stútfullur þáttur af upplýsingum sem gætu breytt miklu fyrir marga. Letsgo.
Við höldum áfram með ADHD seríuna! Anna Tara Andrésdóttir doktorsnemi við Háskólann í Barcelona kom í virkilega gott símaviðtal. Í hennar námi leggur hún sérstaka áherslu á konur með ADHD en í viðtalinu fórum við um víðan völl og töluðum meðal annars um margar mýtur sem fylgja ADHD umræðunni.
Framhald á ADHD seríunni sem tröllríður öllu þessa dagana!! Sko... samskipti eru krefjandi yfir höfuð, hvað þá ef einstaklingar eru að eiga við athyglisbrest. Skoðum hvernig samskipti og sambönd geta verið með ADHD inni í jöfnunni og hvað er gott að hafa í huga! :)
Þetta var ágætlega hrátt og berskjaldað spjall hjá okkur Evu og Sylvíu. Við kunnum svo að meta ykkur elsku hlustendur. Takk fyrir að vera með okkur í þessu.. að tengja, hlægja, gráta og garga saman.
Við fengum Dóru Jóhanns leikkonu, handritshöfund og stofnanda Improv skólans í ótrúlega gott spjall. Fórum að sjálfsögðu yfir ADHD pælingar vegna þess að Dóra er greind með ADHD, en við skoðuðum líka allskonar eins og sjálfsvinnu burnout, spuna, alkóhólisma og aaallt þar á milli. Njótið vel! Þetta er laufléttur partur af ADHD seríunni, höldum áfram - fulla ferð!
ÞÁTTUR NÚMER 200 gott fólk!!! Við Eva og Sylvía tókum einn extra hráan þátt í tilefni þess og ræddum hvernig okkur finnst að það megi sprengja upp þetta blessaða norm sem mótar okkur flest. Okkur varð smá heitt í hamsi.. en hvað er það á milli vina.. :)
(Þessi þáttur er örstutt hlé á ADHD seríunni)
Að sjálfsögðu er viðeigandi að loka þessari ADHD seríu með dúndur lokaþætti með allskonar spurningum og pælingum frá YKKUR kæru hlustendur. Takk fyrir viðbrögðin við þessari seríu, þetta er greinilega eitthvað sem við þurftum flest að skoða. :) Án ykkar væri ekkert Norm.
Í þessum þætti skoðuðum við meðal annars RSD eða Rejection Sensitive Disorder, spjölluðum aðeins um ADHD barna og ræddum allskonar skipulagstækni pælingar.
Hér er einn léttur og ljúfur Glow Up þáttur um allskonar sem okkur finnst þess virði að skoða til þess að uppfæra lífið. Sökkvum okkur ofaní þennan júmmelaði þátt og finnum glow-ið.
From the publisher's feed