Helga Margrét Gunnarsdóttir samfélagsmiðlastjarna og ofurpeppari kom í stórskemmtilegt spjall um fjölbreyttan starfsferil, að elta ástríðuna og skapa sín eigin tækifæri. Við spjölluðum mikið um næringu enda er Helga Magga mikill snillingur þegar kemur að því að töfra fram girnilegan mat og hvað hreyfing getur gert lífið miklu skemmtilegra.