Efni Lestarinnar í dag: Bandaríski rapparinn Kendrick Lamar kemur við sögu í þættinum í dag en tilkynnt var í gær að hann fengi hin virtu Pulitzer-verðlaun fyrir plötu sína Damn, sem kom út á síðasta ári. Einnig verður rætt við tónlistarmanninn Örlyg Þór Örlygsson sem kemur fram undir listamannsheitinu Ölvis. Gunnar Theodór Eggertsson fjallar um kvikmyndirnar A Quiet Place eftir bandaríska leikstjórann John Krasinski og Ghost Story eftir bandaríska leikstjórann David Lowery. Og Halldór Armand Ásgeirsson fjallar í pistli dagsins um gamla dagbókarfærslu og Zuckerberg í ameríska þinginu.
Umsjón: Anna Gyða Sigurgísladóttir og Eiríkur Guðmundsson