Í síðustu viku fjallaði Lestin um baráttu raunveruleikastjörnunnar Kim Kardashian í þágu fanga í Bandaríkjunum. Tilefnið var heimsókn hennar á dauðadeild Kaliforníu en í kjölfar hennar lýsti hún því yfir að hún teldi fangan sem hún heimsótti saklausan. En er hann það? Í dag, kafar lestin í sönnunargögnin með og á móti Kevin Cooper.
Davíð Roach Gunnarsson segir frá Primavera Sound tónlistarhátíðinni sem fór fram í Barcelona um síðustu helgi.
Marta Sigríður Pétursdóttir kvikmyndagagnrýni segir frá myndunum Beautiful Boy og Rocket Man.
Við hringjum norður til Hjalteyrar og fræðumst um nýja sýningu á kvikmyndum og myndbandsverkum í Verksmiðjunni þar í bæ. Sýning sem nefnist "Hvernig hefurðu það? og tekur nafn sitt og innblástur frá kvikmynd eftir franska framúrstefnuleikstjórann Jean-Luc Godard. Gústaf Geir Bollason, annar sýningarstjóra sýningarinnar, verður við símann.
Umsjón: KG og AMC