RUSL er lista- og hönnunarhátíð í Gufunesi, nýju skapandi hverfi Reykjavíkurborgar. Hátíðin leggur áherslu á hringrásahugsun í samhengi menninga, lista og hönnunar. Tveir af skipuleggjendum hátíðarinnar Elsa Jónsdóttir og Elín Margot koma og segja frá Ruslfest.
The Lady of Heaven heitir nýtt epísk söguleg drama sem segir upprunasögu íslamstrúar, söguna af Fatímu dóttur spámannsins Múhammeðs. Kvikmyndin hefur fengið slæma dóma en það þykir hins vegar fréttnæmt að andlit spámannsins sést greinilega í myndinni - en eins og flestir vita eru slíkar myndbirtingar almennt litnar hornauga meðal múslima. Við ræðum við Kjartan Orra Þórsson um myndabann Múhammeðs og það hvort að mögulegt sé að komast hjá því með því að tölvuteikna andlit spámannsins.
Plötusnúðurinn og umboðsmaðurinn Hu Dat, sem heitir réttu nafni Kim Hu, er rísandi stjarna í rappsenunni vestur í Bandaríkjunum. Þórður Ingi Jónsson spjallar við Kim um það hvernig dóttir íhaldsamra innflytjenda frá Tævan fór frá því að læra hótelstjórnun yfir í að þeyta skífum fyrir risastóra rappara.