Bárður Hafsteinsson, skipatæknifræðingur: Fjorvik ströndunin, árekstur norskrar freigátu og olíuskips og þróun í skipasmíði. Brynhildur Pétursdóttir, Neytendasamtökunum: Hvað ber að varast í jólaverslun og innkaupum. Málfræðimínútan Edda Olgudóttir: kvef og örveruflóra
Óli Halldórsson, formaður nefndar um miðhálendisþjóðgarð: störf nefndarinnar og gangur mála, mörk þjóðgarðsins og samráð við hagsmunaaðila. Óskar Haffjörð Gunnarsson formaður Matvís og Viktor Ragnar Þorvaldsson, yfirþjónn hjá Bláa Lóninu: Áhrif ferðaþjónustunnar á þjónustustörf, fagmennsku, stöðu og álag. Friðrik Páll Jónsson, erlendur pistill um dauðarefsingar í Pakistan vegna guðlasts.
Oddný Anna Björnsdóttir bóndi og ráðgjafi: Lífræn vottun - til hvers, hvernig og hvað? Sigurður Helgi Jóhannsson, 16 ára nemi í Tækniskólanum segir frá göngu sinni og vina sinna eftir Laugarveginum síðastliðið sumar, Málfarsmínúta Eva Dögg Rúnarsdóttir: umhverfisvænar og ódýrar heimagerðar snyrtivörur í jólapakkann.
Dóra S. Gunnarsdóttir forstöðumaður neytendmála hjá Matvælastofnun og Rakel Garðarsdóttir hjá Vakandi: Fjallað um umbúðalausan lífstíl, en samkvæmt tillögum í plastmálum á að auðvelda neytendum að koma með sín eigin ílát undir vörur og matvæli sem þau kaupa hjá verslunum og fyrirtækjum. Vigdís Eva Líndal, lögfræðingur Persónuvernd: persónuvernd barna Anna Kristjánsdóttir, framkvæmdastjóri Spalar: yfir hundrað miljónir eru enn ósóttar af fólki sem á veglykla, inneignir og miða í Hvalfjarðargöng. Spölur hvetur fólk til að drífa í því að skila inn og fá endurgreiðslu því frestur rennur út eftir þrjár vikur.
Alma Möller, landlæknir: fjölmiðlar og fréttir þeirra af heilbrigðiskerfinu, eru þetta raunsannar lýsingar? Erla Ósk Guðjónsdóttir og Sigrún Garcia Thorarensen hjá fagráði eineltismála: Dagurinn í dag er helgaður baráttunni gegn einelti í skólum, jákvæð samskipti höfð í fyrirrúmi og skólasamfélagið hvatt til að taka höndum saman gegn einelti. Rannveig Magnúsdóttir vistfræðingur: Í umhverfisspjalli dagsins var fræðst um tilnefningar og verðlaun umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs.
Finnur Sveinsson og Þórdís Jóna Hrafnkelsdóttir hafa byggt fyrsta umhverfisvottaða íbúðarhús Íslands. Þau fóru yfir ferlið, áskoranirnar og ávinninginn. Anna Sigríður Ólafsdóttur, prófessor við Deild heilsueflingar, íþrótta og tómstunda við Menntavísindasvið og Dóra Guðrún Guðmundsdóttir, sálfræðingur og sviðsstjóri áhrifaþátta heilbrigðis hjá Embætti landlæknis: Rannsóknateymi við Menntavísindasvið Háskóla Íslands hefur hlotið hartnær 100 milljóna króna styrk frá Evrópusambandinu til að þróa námsefni og bæta námsumhverfi í grunnskólum. Ætlunin er að stuðla að aukinni vellíðan og seiglu íslenskra ungmenna. Sævar Helgi Bragason: sólmyrkvi verður á Íslandi árið 2026, pantanir eru byrjaðar að berast, mörgum ferðaþjónustuaðilum að óvörum. Sævar Helgi segir mikilvægt að byrja að undirbúa móttöku og aðstöðu fólks sem kemur hingað til lands vegna þessa sem fyrst.
Anton Örn Karlsson, Hagstofa Íslands og Karl Sigurðsson, Vinnumálastofnun: Um mannafla og færniþörf á íslenskum vinnumarkaði. Hvernig eru slíkar spár gerðar og hverjum gagnast þær? Halldór Sigurðsson eigandi hjá ráðgjafafyrirtækinu McKinsey Company í Danmörku: um internet hlutanna og 5G og hvort Ísland sé tilbúið fyrir þessa tæknibyltingu. Stefán Friðrik Páll Jónsson: kosningar í Bandaríkjunum og innflytjendamál
Hlynur Stefánsson og Eiríkur Ingi Ásgeirsson, dósentar við tækni og verkfræðideild HR: áhrif rafbílavæðingar á losun gróðurhúsaloftegunda Elfa Þöll Grétarsdóttir hjúkrunarfræðingur og sérfræðingur í öldrun: Namaste umönnun, hvernig virkar hún. Málfræðimínútan Edda Olgudóttir: vísindaspjall um Henriettu Lack
Helgi Hjörvar, fv. formaður Íslandsdeildar Norðurlandaráðs: Norrænt samstarf, gildi þess og ávinningur Laufey Helga Guðmundsdóttir, formaður samráðsvettvangs um aðgerðaáætlun í plastmálefnum: Rýnt í tillögurnar og innihald þeirra. Málfarsmínúta Erna Reynisdóttir framkvæmdastjóri Barnaheilla og Orri Elíassen, 7. bekk: Símalaus sunnudagur
Margrét Lilja Guðmundsdóttir, aðjúnkt við íþrótasvið HR: rafrænn útivistartími og skjánotkun barna og ungmenna Guðmundur Valur Guðmundsson, forstöðumaður hönnunardeildar Vegagerðarinnar: lengsta brú yfir sjó opnuð í Kínu, hönnun hennar, bygging og sérkenni. Stefán Gíslason: Umhverfisspjall: hvaða kolefnisfótspor fylgir matvælum og er óumhverfisvænt að eiga börn?
55 min
About Samfélagið
From the publisher's feed
Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.