Eiríkur Guðmundsson, þjóðskjalavörður: Einkasöfn ráðamanna og almennings, varðveisla og vinna. Arnar Þór Jóhannesson, sérfræðingur hjá rannsóknarmiðstöð HA: Stytting vinnuvikunnar, rannsókn á áhrifum á jafnrétti kynjanna og stöðu fjölskyldunnar. Magnús Már Guðmundsson, verkefnisstjóri hjá Reykjavíkurborg: Stytting vinnuvikunnar og hvað svo? Edda Olgudóttir í vísindaspjalli.
Emil Lárus Sigurðsson, forstöðumaður þróunarmiðstöðvar íslenskrar heilsugæslu: Hlutverk og helstu áskoranir heilsugæslunnar. Ragný Þóra Guðjohnssen, lektor við Menntavísindasvið HÍ: Samkennd, er hægt að kenna ungu fólki í nútímasamfélagi slíkt? Friðrik Páll Jónsson, pistill um erlend málefni: Hvarf sádi arabíska blaðamannsins Jamals Khashoggis.
Karl Andersen yfirlæknir Hjartagátt Landspítalans: Karl ræðir um starfsemi Hjartagáttarinnar, fyrirhugaðar breytingar á henni varðandi bráðaþjónustu og áskoranir. Einar Eysteinsson yfirleiðbeinandi leitartækni hjá Björgunarskólanum: Íslendingar eru þátttakendur í gerð gagnagrunns sem í eru skráð hegðurnarmunstur týnds fólks. Víðir Reynisson verkefnisstjóri Almannavarna Suðurlands: Eru vegirnir hættulegasti ferðamannastaðurinn?
Samfélagið var í dag að mestu sent út frá Menntakviku , ráðstefnu Menntavísindasviðs HÍ. Rætt við nokkra fyrirlesara á ráðstefnunni. Viðmælendur: Kolbrún Þ. Pálsdóttir forseti menntavísindasviðs HÍ Berglind Rós Magnúsdóttir, dósent, MVS, HÍ Magnús Þorkelsson, skólameistar, Flensborgarskólinn í Hafnarfirði Vera Illugadóttir: Vera fjallar um rottugang í New York.
Guðríður Helgadóttir, garðyrkjufræðingur: Strá í tísku. Eðli stráa, notkun og tilgangur. Svein Margeirsson, Matís: Örsláturhús og bændur. Hverjir mega slátra og hverjir ekki. Hafdís Hanna Ægisdóttir flytur umhverfispistil um loftlagsmál.
Daði Már Kristófersson, prófessor í hagfræði: Hagfræði og loftlagsmál, hvernig eiga þau saman? Rætt við Daða í tilefni þess að nóbelsverðlaunin í hagfræði fóru í ár til Bandaríkjamannanna William Nordhaus og Paul Romer fyrir að samþætta tækninýjungar, loftslagsmál og hagvöxt. Pia Hansson, forstöðumaður Alþjóðastofnunnar og Auður Örlygsdóttur, Snjallræði: Ungt fólk á flótta og viðskiptahraðall fyrir samfélagslega nýsköpun. Jón Stefánsson kennari: Mælingar á Sólheimajökull með nemendum í Hvolsskóla sem í dag fagnar 110 ára afmæli.
Jón Björn Skúlason framkv.stj. Íslenskrar Nýorku: Hvernig mun vetni nýtast sem orkugjafi? Jón Björn segir frá nýtingarmöguleikum á vetni sem orkugjafa í í stærri farartækjum, skipum og bátum og hversu langt aðrar þjóðir eru komnar á þeirri vegferð. Hermundur Sigmundsson prófessor í lífeðlislegri sálfræði HR: Framúrskarandi fólk. Hvaða eiginleikar og hæfileikar þarf til að skara fram úr öðrum. Friðrik Páll: Hvellur varð í Frakklandi nýlega þegar franskur rithöfundur, eindreginn andstæðingur fjölmenningar og einkum múslima, gagnrýndi franska konu í sjónvarpsþætti fyrir að bera ekki hefðbundið franskt nafn. Ummælin þóttu dónaleg og særandi.
Ingibjörg Svala Jónsdóttir prófessor í vistfræði: Heimskautatúndran og loftlagsbreytingar Gyða Dröfn Tryggvadóttir lýðheilsufræðingur og Guðrún Björg Ágústsdóttir áfengis- og vímuefnaráðgjafi hjá Foreldrahúsi: vímuefnaforvarnir og valdefling foreldra Edda Olgudóttir, vísindaspjall: DNA og áföll
Óttar Guðmundsson form. félags áhugamanna um sögu læknisfræðinnar: Ófrjósemisaðgerðir voru tíðkaðar hér á síðustu öld án samþykkis viðkomandi. Oftar en ekki vour þær aðgerðir framkvæmdar á þroskaheftu fólki eða fólki með geðræna sjúkdóma. Óttar rekur þá sögu í tilefni málþings um efnið. Hlédís Sveinsdóttir : REKU hugmyndafræðin kemur frá Svíþjóð og gengur út á milliliðalaus viðskipti milli bænda eða framleiðenda matvæla og neytenda. Facebook er vettvangur viðskiptanna og varan síðan afhent á tilteknum stað. Í bígerð er að hefja þessa starfsemi hér á landi. Vera Illugadóttir: Vera segir frá árlegri kosningu á fugli ársins í Nýja- Sjálandi.
Jónas Guðmundsson Landsbjörg: Jónas segir frá björgunaraðgerð í Kirkjufelli í gærkvöldi en það er þriðja slysið þar á þessu ári. Rætt um Hálendisvakt Landsbjargar sl. sumar sem virðist hafa verið aðeins rólegri en áður m.a. vegna þess hve seint leiðir opnuðust. Einar Magnússon lyfjamálastjóri Velferðarráðuneyti: Allt stefni í að gerð verði tilraun með að lyfjaupplýsingar verði ekki eingöngu á pappir heldur á rafrænu formi. Breytir miklu fyrir þá sem ekki skilja viðkomandi tungumál og gefur betri möguleika á sameiginlegum innkaupum ríkja á lyfjum. Stefán Gíslason: Í umhverfisspjalli er rætt um sænska rannsókn þar sem mannárin sem nagladekk bjarga eru vegin móti þeim mannárum sem það kostar að framleiða og nota nagladekk .
55 min
About Samfélagið
From the publisher's feed
Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.