Samfélagið

Samfélagið

Download on the App Store

Samfélagið episodes

  • Neytendamál, áhrif dægurmenningar á ungmenni, málfar og plastleysi
    Brynhildur Pétursdóttir Neytendasamtökunum: formannskosningar og framtíð samtakanna Ársæll Már Arnarson, prófessor í tómstunda og félagsmálafræði við HÍ: neysla og viðhorf ungmenna til áfengis og kannabisefna, áhrif samfélagsmiðla og dægurmenningar Málfar Sævar Hilmarsson og Hrund Sigurhansdóttir: plastlaus september og gangur mála hjá fjölskyldunni að fylgja átakinu eftir
    55 min
  • Iðnnám. Bílaleigur og orkuskipti. Evrópupólitík
    Sigríður Huld Jónsdóttir skólameistari VMA og Hildur Ingvarsdóttir skólameistari Tækniskólans: Rætt um um iðnám, stöðu þess og framtíð, en færri komast að en vilja í iðnám þessi misserin sem er breyting frá því sem áður var. Jóhannes Skúlason framkvst. SAF og Jón Gestur Ólafsson já Höldi, bílaleigu Akureyrar: Aðgerðaráætlun í loftrslagsmálum og bílaleigur. Rætt hversu stór hlutur bílaleiga er í bílaflotanum, hvaða máli skiptir samsetning bílaflota þeirra og hvernig orkuskipti horfa við við bílaleigum og ferðaþjónustunni. Friðrik Páll: fjallað um pólitík í Evrópu, en hefðbundnir evrópskir flokkar hafa misst marga kjósendur yfir til popúlistaflokka. Hefðbundnu flokkarnir hafa þótt seinir til að bregðast við, en það er smám saman að breytast.
    1 hr 5 min
  • Hjúkrunarfræðingar. Smalaskóli. BMI stuðull
    Guðbjörg Pálsdóttir form. félags ísl. hjúkrunarfræðinga: Mikil þörf er á fleiri hjúkrunarfræðingum í heilbrigðiskerfinu. En er verið að draga úr menntun þeirra með því að bjóða upp á styttra nám í hjúkrunarfræði? Elín Agla Briem þjóðmenningarbóndi Árneshreppi: Í Finnbogastaðaskóla í Árneshreppi er ekki rekinn grunnskóli lengur en Elín Agla og fleiri buðu þar uppá nám í smölun og fleiru og hyggjast reyna þróa námskeiðahald þar frekar. Edda Olgudóttir: Til að mæla líkamsmassa fólks er víðast hvar notaður svokallaður BMI stuðull Hann hefur verið umdeildur. Í vísindaspjalli er sagt frá rannsóknum sem liggja að baki nýs stuðuls, RMF, sem þykir nákvæmari.
    1 hr 5 min
  • Klámvæðing. Talningatækni. Ig Nobelverðlaun
    Elín Lára Baldursdóttir og Böðvar Níelsen: Sagt frá vitundarvakningu um skaðleg áhrif kláms á börn Stefán J.K. Jeppesen, TGJ ehf: Sveitafélögin á höfuðborgarsvæðinu hafa á undanförnum mánuðum unnið að því að setja upp sjálfvirkt teljara- og hraðamælingarkerfi á göngu- og hjólastígum með TGJ/Eco-Counter. Vera Illugadóttir: Rætt um Ig Nóbelverðaunin sem veitt voru í gær. Vera rifjar upp ársgamla umfjöllun um rannsókn á næringargildi mannslíkamans en sú rannsókn hlaut einmitt verðlaun.
    55 min
  • Fjölmiðlastyrkir, áfallasaga kvenna og umhverfismál
    Í Samfélaginu í dag verður rætt við Ingibjörgu Dögg Kjartansdóttur ritstjóra Stundarinnar og Maríu Björk Ingvadóttur framkvæmdastjóra N4 um aðgerðir sem menntamálaráðherra hefur kynnt um að bæta rekstrarumhverfi einkarekinna fjölmiðla á Íslandi. Þá verður fjallað nánar um vísindarannsóknina um Áfallasögu kvenna og rætt við Örnu Hauksdóttur prófessor við læknadeild. Stefán Gíslason flytur svo umhverfispistil dagsins.
    55 min
  • Kulnun, félagsleg undirboð, flegið og hamflett og plastlaus september.
    Ragnar Þór Ingólfsson formaður VR ræddi um árvekniátak um kulnun. Rannveig Gústafsdóttir, verkefnastjóri: Rýnt var í félagsleg undirboð á vinnumarkaði, sérstaklega er viðkemur konur af erlendum uppruna. Í Málfarsmínútu var fjallað um muninn á því að hamfletta og flá og svo var áfram fylgst með gangi mála hjá fjölskyldu sem reynir sitt besta til að vera plastlaus þennan septembermánuðinn.
    1 hr 5 min
  • Sláturtíð og byssueign.
    Samfélagið 11 september 2018 Ágúst Torfi Hauksson formaður landssamtaka sláturleyfishafa: sláturtíð og störf í sláturhúsi Friðrik Páll Jónsson: byssueign í bandarískum skólum *Samfélagið var í styttra lagi í dag vegna setningar Alþingis*
    55 min
  • Drápsvélar, alsjáandi auga Fiskistofu, málfar og vísindi
    Kristinn R. Þórisspn, prófessor við tölvunarfræðideild HR: Drápsvélmenni tilheyra ekki lengur eingöngu vísindaskáldskap, vitvélar eru notaðar í stríðsrekstri og verða, ef ekkert er að gert, ráðandi í framtíðinni. Þorsteinn Hilmarsson, sviðstjóri Fiskistofu: Alsjándi auga Fiskistofu: Fiskistofa safnar og miðlar upplýsingum um hvaðeina sem viðkemur nýtingu  á auðlindum hafsins. Málfarsmínúta Edda Olgudóttir í vísindaspjalli.
    55 min
  • Lýsa. Fundur fólksins
    Bein útsending frá Lýsu, rokkhátíð samtalsins í Hofi á Akureyri. Talað um tilgang og sögu Lýsu og fundar fólsksins. - Rætt við fulltrúa þeirra verkefna sem tilnefnd eru til umhverfisverðlauna Norðurlandaráðs - Fjallað um áhrif komu skemmtiferðaskipa og orkumálin sem tengjast komu þeirra - Rætt um sjúkraþjálfun , mikilvægi hennar og hvernig hún tengist heilsugæslunni - Talað við aðstandendur heimildamundarinnar UseLess - og svo aðra sem tengjast Lýsu.
    55 min
  • Þjóðminjasafnið. Sjálfvirkni. Vistheimt
    Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður: Um brunann í Þjóðminjasafni Brasilíu og öryggismál þjóðminja á Íslandi. Snæbjörn Ingi Ingólfsson, Origi: Verða til nógu mörg ný störf í framtíðinni stað þeirra sem tapast ? Rannveig Magnúsdóttir: Rannveig segir frá alþjóðlegri ráðstefnu um vistheimt sem haldin verður innan skamms á Íslandi.
    55 min

About Samfélagið

From the publisher's feed

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

More shows like Samfélagið

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

472 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

17 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

68 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

4 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

25 Listeners