Gunnar Örn Harðarson faðir drengs með þroskaskerðingu og Friðrik Sigurðsson verkefnastjóri hjá Þroskahjálp: menntunar- og atvinnutækifæri ungmenna með fötlun eða þroskaskerðingar. Pia Hansson: samfélagsleg nýsköpun og mikilvægi þess að horfa til samfélags- og umhverfisþátta í nýsköpun í dag. Sævar Hilmarsson og Hrund Sigurhansdóttir: Sævar og Hrund taka þátt í plastlausum september og leyfa hlustendum að fylgjast með gangi mála.
Ármann Jakobsson prófessor: Skipulags- og samgönguráð Reykjavíkurborgar hafnaði tillögum nafnanefndar um ný götuheiti á lóð Landspítala við Hringbraut. Af vþí tilefni er rætt við Ármann sem situr í nafnanefnd um nafngiftir nýrra gatna í Reykjavík. Heiða Björg Pálmadóttir settur forstjóri Barnaverndarstofu og Páll Ólafsson sviðsstjóri hjá Barnaverndarstofu: Rætt um málefni barna en næstu daga er haldin í Reykjavík norræn ráðstefna um velferð barna með þátttöku fjölda sérfræðinga frá ýmsum löndum. Um leið er fagnað 20 ára afmæli Barnahúss í Reykjavík sem hefur verið fyrirmynd viðlíka húsa í mörgum löndum. Friðrik Páll: Emmanuel Macron, forseti Frakklands, stendur í ströngu um þessar mundir. Fylgi hefur minnkað og nú hefur Nicolas Hulot, vinsælasti ráðherra stjórnarinnar, sagt af sér, kveðst ekki geta lengur logið að sjálfum sér.
Einar Pálsson, forstöðumaður þjónustusviðs Vegagerðarinnar: merkingar árfarvega á vegum landsins Ragnheiður Bóasdóttir, sérfræðingur í Menntamálaráðuneytinu: Menntun og fyrirhuguð fundaröð um menntun fyrir alla Þóra Hrund Guðbrandsdóttir: Þóra ætlar að venja sig af snjallsímanum og fara í samfélagsmiðlabann næstu þrjátíu dagana. Rætt var við hana um átakið ástæður þess og áskoranir. Edda Olgudóttir: áhrif skordýraáts á meltingarkerfið
Arnar Sveinn Geirsson og Valgerður Magnúsdóttir sálfræðingur og sorgarráðgjafi: Arnar segir frá því hvernig hann tók dauða móður sinnar, þá 11 ára og hvernig hann hefur á síðustu 15 árum unnið úr þeim atburði. Arnar skrifaði nýverið grein þar sem hann greindi frá því að lengi vel hafi hann bælt þær tilfinningar sem fylgdu fráfalli henna, en finni nú hversu mikilvægt það er að leyfa tilfinningum að koma fram og takast á við þær. Björn Birnir prófessor við University of California: Hvað geta loðnugöngur sagt okkur um hitabreytingar sjávar og loftslagsbreytingar? Björn segir frá rannsóknum og rannsóknarlíkönum sem hann og fleiri hafa verið að þróa. Breytingarnar á göngum loðnustofnanna verða notaðar til að reikna hitabreytinguna í Íshafinu. Það getur gefið til kynna hversu hratt hitinn eykst í Norðurhöfum og hversu hratt Grænlandsjökull gæti bráðnað sem mundi hafa alvarlegar afleiðingar fyrir loftslag á norðurhveli. Vera Illugadóttir: Alberta fylkið í Kanada er brúnrottufrítt og hefur verið áratugum saman. Þetta er einn fárra staða á byggðu bóli sem getur státað af því.
Daði Baldur Ottósson, samgönguverkfræðingur Eflu: Rætt um bílastæði, þróun þeirra og framtíð, notkun og tilgang. Gísli Már Gíslason líffræðingur: um sveppi og sveppatínslu Umhverfisspjall: Hafdís Hanna Ægisdóttir: Vistheimt og loftlagsbreytingar, ráðstefna á Íslandi.
Helga Dögg Sverrisdóttir grunnskólakennaeri Akureyri: Helga birti grein í Vikudegi þar sem hún sendi starfsfélögum sínum ábendingar um hvernig þeir geti passað uppá að vinnan rúmist innan vinnutíma. Grunnskólakennari sem vinni í mörg ár umfram lögboðinn vinnutíma brenni út. Pétur Halldórsson kynningarfulltrúi Skógræktar ríkisins: Gengið með honum um Kjarnaskóg við Akureyri og fræðst um uppbyggingu á svæðinu og nytsemi skógarins. Guðni Tómasson og Halla Oddný Magnúsdóttir: Þau segja frá Klassíkinni okkar, þar sem hlustendur hafa valið perlur til flutnings á tónleikum Sinfóníuhljómsveitarinnar nk. föstudag.
Margrét Helga Guðmundsdóttir UST: Í nýju uppgjöri staðbundins iðnaðar og flugrekenda í viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir kemur í ljós að losun gróðurhúsalofttegunda í flugi jókst um 13 prósent milli 2016 og 2017. Margrét fer yfir þróunina. Edward Huijbens prófessor HA: Ræðir um ferðamál á Íslandi, stöðu þeirra í dag og nauðsynlega þróun framundan. Friðrik Páll: Byssueign Bandaríkjamanna er gríðarleg, meira en 300 milljón byssur eru þar í umferð. Skólar eru smám saman að breytast í virki, og ekki eru allir sáttir við þá þróun.
Elín Jónasdóttir veðurfræðingur: Rætt við hana í tilefni þess að skýstrókar riðu yfir bæ á Suðurlandi um sl. helgi. Elín ræðir skýstróka, eðli þeirra og hegðun Sigmundur Guðbjarnason og Margrét Þorvaldsdóttir: Heilnæmi jurta og hollusta matar er heiti bókar sem þau hjón hafa sent frá sér. Þar er farið yfir sögu jurtalækninga og nútímarannsóknir á jurtum. Edda Olgudóttir: Í vísindaspjalli dagsins er fjallað um nýbirta rannsókn um áfengi. Edda ræðir aðferðafræðina og fleira í rannsóknarumgerðinni.
Hólmfríður Sigþórsdóttir form. Samlífs: Samtök líffræðikennara sendu nýlega frá sér ályktun þar sem bent er á, að á sama tíma og kennsla í raungreinum á framhaldsskólastigi hefur dregist saman, þá hefur kennslustundum í efstu bekkjum grunnskóla í raungreinum fækkað. Hjalti Sigmundsson byggingatæknifræðingur: Hús eru flutt af öllum stærðum. Hjalti fer yfir ferlið. Vera Illugadóttir : Hér segir af einmana leðurblökukarli, einum sinnar tegundar sem finnst nú í Bretlandi.
Katrín Sóley Bjarnadóttir, sérfræðingur Umhverfisstofnun: Rannsóknir á plastmengun á Íslandi, þær fyrstu sinnar tegundar, í fýl og krækling Sigurður Másson, deildarstjóri hjá Advandia: Rafrænar kosningar, reynsla, gengi og framtíð Stefán Gíslason: Umhverfismál, pistill
55 min
About Samfélagið
From the publisher's feed
Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.