Samfélagið

Samfélagið

Download on the App Store

Samfélagið episodes

  • Áfallastreita og sjálfsofnæmi, áhrif aðskilnaðs við foreldra á börn og
    Hrefna Ólafsdóttir lektor HÍ: Í Bandaríkjunum, og víðar, eru börn á flótta aðskilin foreldrum sínum. Hvaða áhrif hefur slíkt á börnin? Unnur Anna Valdimarsdóttir prófessor HÍ: Unnur var önnur þeirra er stýrði rannsókn sem leiddi í ljós að fólk sem greinst hefur með áfallastreituröskun, er í aukinni áhættu með að greinast síðar með sjálfsónæmissjúkdóma. Rannsóknin byggði á heilsufarsupplýsingum frá 100 þúsund manns og spannaði 30 ár. Ingvar Haraldsson Jarðhitaskóla SÞ og Vera Knútsdóttir: Heimsmarkmið SÞ nr. 7
    1 hr 5 min
  • Áhrif hita á líkama og huga, vélþýðingar og sterk verkjalyf.
    Stefán B. Sigurðsson, lífeðlisfræðingur: Fjallað um hvaða áhrif hiti hefur á mannslíkamann- og hugann. Spáð er mikilli sól og hita þegar íslenska karlalandsliðið mætir Nígeríu á HM og jafnvel talið að hitinn eigi eftir að hafa áhrif á getu og frammistöðu leikmanna. Guðmundur Frey Magnús, hjá Skopis þýðingarstofu: Fjallað um notkun vélþýðinga og þýðingaforrita og stöðu íslenskunnar í stækkandi heimi raddskipana, þar sem notendur tala er við tækin sín. Friðrik Páll Jónsson: Erlendur pistill: Notkun sterkra verkjalyfja í BNA og áhrif þess á lífslíkur og meðalævilengd.
    1 hr 5 min
  • Hornstrandir. Markmiðasetning. Vísindi
    Kristín Ósk Jónasdóttir Umhverfisstofnun: Drög að nýrri stjórnunar- og verndaaráætlun fyrir friðlandið á Hornsttröndum hefur verið sett fram til kynningar ásamt aðgerðaráætlun 2018 - 2023. Kristín Ósk fer yfir helstu breytingar og áherslur í drögunum. Alda Sigurðardóttir ráðgjafi: Hvað þarf fólkk að hafa í huga þegar það setur sér markmið? Edda Olgudóttir: Í vísindaspjalli dagsins segir Edda frá rannsókn þar sem gerð var tilraun með lyf gegn Alzheimer í músum.
    55 min
  • Hljóðmyndir, rapp og íslenska, málfar og dýrin sem vita úrslit HM.
    Fjallað var um hljóðmyndir, hvernig umhverfishljóð eru nýtt í framleiðslu á efni, hvort sem er í sjónvarpi eða útvarpi. Rýnt í nýja kók auglýsingu í tilefni HM þar sem leiðarstefið er hljóðin sem mynda "klapp klapp húh". Rætt er við Einar Sigurðsson hljóðmann á RÚV sem hefur meðal annars unnið með útvarpsleikhúsinu í að skapa umhverfi í kring um texta. Endurflutt efni frá 11.09.2017: Rapp og íslenska, viðmælendur: Íris Edda Nowenstein og Anna Sigríður Þráinsdóttir. Efnið er endurflutt í tilefni rapphátíðar í Veröld - húsi Vigdísar þar sem samspil rapps og tungumáls er sérstaklega skoðað. Málfarsmínúta Vera Illugadóttir: Spádómsdýr HM.
    1 hr 5 min
  • Hvernig fæst aflamark, rannsóknir á breytingum ísl. náttúru og föt.
    Guðmundur Þórðarson, sviðstjóri botnsjávarlífríkissviðs Hafrannsóknarstofnunar: Ráðgjöf um aflamark næsta fiskveiðiárs, hvaða vinna og rannsóknir liggja að baki niðurstöðunum? Bjarni Diðrik Sigurðsson, prófessor við Landbúnaðarháskóla Íslands: Styrkur til að rannsaka náttúru Íslands, breytingar á henni, m.a. vegna náttúruhamfara. Brynhildur Einarsdóttir, Neytendastofu: skuggahliðar fataiðnaðarins
    1 hr 5 min
  • Fornmunir. Vegagerð. Heimsmarkmið
    Alda Stefánsdóttir sviðsstjóri Minjastofnun: Hvaða reglur og lög eru til staðar um fornminjar og sölu og eignarhald slíkra muna. Hvað beri að varast þegar verslað er með forna hluti. G.Pétur Matthíasson Vegagerðinni: Fyrirhuguð er mikil vegagerð á Vestfjörðum í tengslum við gerð Dýrafjarðaganga. Rætt er um umfangið og tímasetningar. Sólrún María Ólafsdóttir Rauða Krossinum og Vera Knútsdóttir Féllagi SÞ á Íslandi: Heimsmarkmið SÞ nr. 10 og 16 eru til umfjöllunar þennan miðvikudaginn.
    1 hr 5 min
  • Friðlýsingar. Bálfarir. Vítamín
    Sigrún Ágústsdóttir sviðsstjóri UST: Umhverfis- og auðlindaráðherra hefur kynnti áform um átak í friðlýsingum sem fylgja mun aukið fjárframlag. Sigrún fer yfir ýmis nýmæli í áformum um friðlýsingar svo sem að meta hagræn áhrif og auka samstarf við landeigendur og bændur. Pistill um bálfarir og sögu Bálfarafélagsins og í kjölfarið rætt við Þórstein Ragnsrsson forstjóra Kirkjugarðanna um bálfarir og bága stöðu kirkjugarðanna. Edda Olgudóttir: Í vísindaspjalli þennan mánudag ræðir Edda um stóra samantekt á rannsóknum um áhrif töku vítamíntaflna og ýmissa steinefna á áhættu á hjarta- og æðasjúkdómum. Niðurstaðan er að ef um heilbrigðan einstakling er að ræða virðast slíkar pillur engin áhrif hafa á þá áhættu.
    55 min
  • Starf fulltrúa í sveitarstjórnum, kolefnisjöfnun, leiðtogafundir.
    Áslaug Friðriksdóttir, fv borgarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Reykjavík, Ása Richardsdóttir, fv bæjarfulltrúi Samfylkingarinnar í Kópavogi og Karl Sigurðsson, fv borgarfulltrúi Besta flokksins í Reykjavík: Sveitarstjórnarkosningar eru afstaðnar og meirihlutar hafa verið myndaðir eða eru í burðarliðnum. Fjöldi manns tekur sæti í sveitarstjórn, sumir reynslumiklir aðrir alveg nýjir. Í Samfélaginu var rýnt í þetta starf, að vera fulltrúi í stjórn sinnar heimabyggðar og rætt við þrjár manneskjur sem hafa sinnt þessari vinnu. Rætt var um eðli starfsins, áskoaranir, væntingar og vonbrigði og góð ráð og veganesti fengin. Birna Sigrún Hallsdóttir umhverfisverkfræðingur: Kolefnisjöfnun landsliðsins Vera Illugadóttir ræðir um hvað ber að varast á opinberum fundum þjóðarleiðtoga.
    55 min
  • Líffæragjafir. Leigjendaaðstoð. Dagur Umhverfis
    Runólfur Pálsson umsjónarmaður líffæraígræðsluteymis Landspítalans: Í gær var samþykkt á Alþingi lagabreyting þar sem framvegis verður miðað við ætlað samþykki látins einstaklings fyrir líffæragjöf.Rætt við Runólf um hverju lagasetning breyti og um þróun á sviði líffæragjafa- og ígræðslna. Einar Einarsson lögfr. Neytendasamtökunum: Leigjendum sem leita til Leigjendaaðstoðar Neytendasamtakanna fjölgar jafnt og þétt og mörg málanna eru erfið og þung. Neytendasamtökin segja fjárframlag stjórnvalda til þjónustunnar þurfi að hækka til að unnt sé að sinna henni. Stefán Gíslason: Í umhverfispistli fjallar Stefán um alþjóðlegan dag umhverfisins sem haldinn er hátíðlegur 5 júní ár hvert. Þó ekki af Ísleningum sem hafa sinn eigin umhverfisdag. En á degi umhverfisins lýstu Indverjar því yfir að einnota plasti yrði útrýmt ar í landi árið 2022.
    55 min

About Samfélagið

From the publisher's feed

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

More shows like Samfélagið

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

472 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

17 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

68 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

4 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

25 Listeners