Samfélagið

Samfélagið

Download on the App Store

Samfélagið episodes

  • Geðlæknar. Rafrænn úrgangur. Siðfræði læknastéttar
    Rætt við Óttar Guðmundsson formann stjórnar geðlæknafélags Íslands um geðlæknastarfið, eðli þess og áskoranir og hvernig bregðast eigi við fyrirséðri fækkun innan stéttarinnar á sama tíma og geðheilbrigðisfræðin þenjast út. Íris Gunnarsdóttir hjá Úrvinnslusjóði: Fjallað um rafrænan úrgang bæði á Íslandi og á svæði í Ghana sem kallað er Sodoma og geymir einn stærsta rafræna ruslahaug heimsins fyrir úrgang frá Vesturlöndum  Jón Snædal öldrunarlæknir: Alþjóðleg ráðstefna um siðfræðileg álitaefni í starfi læknastéttarinnar sem eru af ýmsum toga .
    55 min
  • Geðlækningar, rafrænn úrgangur og siðfræðileg álitaefni í læknastétt.
    Rætt við Óttar Guðmundsson formann stjórnar geðlæknafélags Íslands um geðlæknastarfið, eðli þess og áskoranir og hvernig bregðast eigi við fyrirséðri fækkun innan stéttarinnar á sama tíma og geðheilbrigðisfræðin þenjast út. Íris Gunnarsdóttir hjá Úrvinnslusjóði: Fjallað um rafrænan úrgang bæði á Íslandi og á svæði í Ghana sem kallað er Sodoma og geymir einn stærsta rafræna ruslahaug heimsins fyrir úrgang frá Vesturlöndum  Jón Snædal öldrunarlæknir: Alþjóðleg ráðstefna um siðfræðileg álitaefni í starfi læknastéttarinnar sem eru af ýmsum toga .
    55 min
  • Salatbakteríur. Græn orka. Sýklalyfjaónæmi
    Guðný Klara Bjarnadóttir lífeindafræðingur: Guðrún segir frá rannsókn á innfluttu salati og innlendu þar sem í ljós kom að bakteríur sem eru ónæmar fyrir sýklalyfjum fundust í því innflutta. Sigríður Ragna Sverrisdóttir framkvæmdastjóri Hafsins - Öndvegisseturs: Hjá Hafinu eru í gangi verkefni sem lúta að því að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda í haftengdri starfsemi. Orkuskipti í skipum og rafvæðing hafna eru meðal verkefna. Edda Olgudóttir: Í vísindaspjalli vikunnar útskýrir Edda hvernig sýklalyfjaónæmi hreiðrar um sig í bakteríum.
    55 min
  • Flakkað um vísindavöku, atferli dýra og trjákengúran sem ekki er vitað
    Vísindavaka RannÍs í Laugardalshöllinni. Samfélagið flakkaði um vísindvöku og ræddi við fólk um það sem þar bar á góma. Sandra M. Granquist, dýraatferlisfræðingur og sérfræðingur hjá Hafró: Selur slær kajakræðara utan undir með kolkrabba. Rýnt í myndband sem hefur vakið mikla athygli á vefmiðlum síðustu dagana og spáð í hvað sé þar að gerast og hvaða megi lesa fleira en bara spaugilegt úr því. Vera Illugadóttir: Sagt frá trjákengúru á Papúa Nýju Gíneu sem ekki er vitað almennilega hvort er útdauð eða ekki.
    55 min
  • Endurkoma. Grænar lóðir. Umhverfisspjall
    Hallur Hallsson íþróttasálfræðingur: Fjallað um endurkomu Tiger Woods í golfið. Hvað er það sem þarf til að gera endurkomu mögulega? Edda Ívarsdóttir borgarhönnuður: Reykjavík tekur þátt í samkeppninni Re-inventing Cities á vegum samtaka sem í eru borgir sem sækja fram í baráttunni gegn loftslagsbreytingum. Í boði eru þfjú svæði. Keppnin snýst um að þverfagleg teymi móti framtíðarsýn fyrir lóðirnar með það að meginmarkmiði að þar rísi fyrirmyndarbygging í sjálfbærni. Hafdís Hanna Ægisdóttir: Í umhverfisspjalli þessarar viku ræðir Hafdís nýútkomna skýrslu um ástand fæðuöryggis og næringarí heiminum.
    1 hr 5 min
  • Samfélagslegar áskoranir, keyrsla árið 1918, málfar og plastleysi.
    Steinunn Gestsdóttir, aðstoðarrektor HÍ: samfélagslegar áskoranir í framtíðinni. Vísinda og tækniráð leitar eftir samráði við almenning um að finna og forgangsraða þeim áskorunum sem við stöndum frammi fyrir á næstum árum og áratugum og þarf vísindi og rannsóknir til að takast á við. Sveinn Þórðarson, sagnfræðingur og sérfræðingur í samgöngusögu: Hvert var hægt að keyra árið 1918? Málfarsmínúta Hrund Sigurhansdóttir og Sævar Hilmarsson: plastlaus september. Rætt við hjón sem eru ásamt fjölskyldunni að takast á við áskorunina plastlaus september.
    55 min
  • Húsnæðismarkaðir. Nike. Japanir
    Anna Guðmunda Ingvarsdóttir aðst.forstjóri Íbúðalánasjóðs: Í samanburði Íbúðalánasjóðs kemur í ljós aðjLeiguverð er hæst í Reykjavík af höfðuborgunum en fermetraverð lægst þegar keypt er. Rætt um samanburðinn og hvaða nýju viðmið Íbúðalánasjóður vill sjá í nýrri húsnæðisstefnu. Grétar Theódórsson almannatengill: Auglýsingaherferð Nike hefur vakið mikla athygli en þar er farið inná pólitískar brautir. En er þetta feigðarflan fyrir fyrirtæki eða græða þau á þessu? Friðrik Páll: Japan er eins og tilraunastofa fyrir heiminn. Þar er öldrun þjóðarinnar meiri en annars staðar, fæðingartalan undir endurnýjunarmörkum og lítill áhugi á því að fá innflytjendur til þess að fylla í skörðin. Ef ekkert breytist fækkar Japönum um 30 prósent á næstu fimmtíu árum, og kostnaður vegna mannfjöldaþróunarinnar eykst stöðugt
    55 min
  • Falsfréttir um Kötlu, binding koltvíoxíðs, ofnæmisdómsmál og plast
    Evgenia Ilyinskaya, eldfjallafræðingur hjá háskólanum í Leeds Bretlandi: falsfréttir um yfirvofandi Kötlugos í Sunday Times Sigurður Reynir Gíslason, Háskólinn á Íslandi: Aðgerðaráætlun í loftlagsmálum og margvísleg binding á koltvíoxíð. Selma Árnadóttir, stjórnmaður í astma og ofnæmissamtökunum: dómsmál í Bretlandi vegna dauða stúlku sem lést af bráðaofnæmi við sesamfræjum úr samloku sem skorti merkingar á Edda Olgudóttir, vísindaspjall: BPA efnin og öll hin í plasti, hver er skaðlaus og hver eru skaðleg?
    1 hr 5 min
  • Áreitni. Vindorka. Þvóttabirnir
    Friðrik Friðriksson heilbrigðissérfr. hjá Vinnueftirlitinu: Af gefnu tilefni er í Samfélaginu rætt um áreitni á vinnustöðum , aðgerðir, viðhorf og stjórn starfsfólks og stjórnenda á aðstæðum. Ríkarður Örn Ragnarsson EM orku: Eigendur EM orku sem eru danskir og þýskir aðilar, hafa hug á að reissa vindorkugarð uppá Garpsdalsfjalli við Gilsfjörð. Verkefnið er á frumstigi en hugmyndin er að þarna rísi 35 vindmyllur sem nái að framleiða 110 - 120 MW. Vera Illugadóttir: Segir frá misheppnuðu stríði yfirvalda í Toronta gegn þvottabjörnum.
    1 hr 5 min
  • Orkuskipti. Áfengi og eiturlyf. Yfirdráttardagur
    Sigurður Friðleifsson, Orkusetri: Fjallað um orkuskipti í vegasamgöngum, hvaða máli þau skipta í aðgerðaráætlun í loftslagsmálum og hverjir möguleikarnir eru. Rætt r við ungt fólk og starfsmann félagsmiðstöðvar um viðhorf ungmenna til áfengis og eiturlyfjaneyslu, aðgengi og notkun. Stefán Gíslason: Í Umhverfisspjalli er fjallað um Yfirdráttardaginn. Leifur Hauksson Dagskrárgerðarmaður Sími: 5153575 GSM: 8641309 RÚV ohf. Efstaleiti 1 103 Reykjavík Fyrirvari
    1 hr 5 min

About Samfélagið

From the publisher's feed

Opin og gagnrýnin umræða um vísindi, nýsköpun, umhverfi, fréttir og samfélagsmál.

More shows like Samfélagið

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

472 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

17 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

68 Listeners

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp by Einar Bárðar og Baldur Rafn Gylfason

Menn eins og við / Einmitt hlaðvarp

4 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Eftirmál by Tal

Eftirmál

36 Listeners

Spursmál by Ritstjórn Morgunblaðsins

Spursmál

16 Listeners

Þetta helst by RÚV

Þetta helst

8 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

25 Listeners