VIð förum og hittum hættulegustu rokkhljómsveit Reykjavíkur, Skratta. Hljómsveit sem hefur verið hampað ítrekað í Lestinni og er tilnefnd til íslensku tónlistarverðlaunanna fyrir besta rokklag ársins og bestu rokkplötuna. Það er nóg að gera hjá þeim um þessar mundir en þeir munu spila á Aldrei fór ég suður um páskana og gítarleikarinn og söngvarinn Karl Torsten Ställborn sýnir myndlist sína í Gallerí Núll komandi helgi.
Gunnar Ragnarsson, kvikmyndagagnrýnandi Lestarinnar rýnir í þrjár myndir sem hann sá á kvikmyndahátíðinni Stockfish. Stockfish kvkimyndahátíðin fer fram um þessar mundir í Bíó Paradís og myndirnar sem Gunnar fjallar um heita Drive My Car, Bacurau og Aquarius. Anna Róshildur Benediktsdóttir Bøving og Magnús Thorlacius eru á sínu þriðja og síðasta ári í Listaháskólanum. Í námi sem gengur út á tilraunir á sviði, Sviðshöfundabraut. Við spjöllum við þau um það hvernig það gekk að gera sviðslist þegar ekki mátti koma saman. Einnig ræðum við útskriftaverkin þeirra, en sýningar á þeim fara fram um helgina.