Skuggsjá

Skuggsjá

By Víðförli HljóðvarpArtsBooksPerforming ArtsVisual Arts
Download on the App Store

Skuggsjá episodes

  • Gegn gangi leiksins - Urtan stórsæ, alda lútir höfði á talandi stein

    Þó að Borges opni þáttinn og leiði á lendur - taka síðan við spjallandi menn sem rýna í fjórar ljóðabækur - og svo Gegn gangi leiksins. Bragi Ólafsson, Gerður Kristný, Alda Björk Vilhjálmsdóttir, Eyrún Jónsdóttir og Guðmundur Magnússon... Dr. Guðmundur reynir að ritstýra sr. Arnaldi - og þó - að þessu sinni; það eru þarna þræðir... og veruleiki Orðsins allstaðar á ferli.

    Talandi Steinar eftir Guðmund Magnússon

    Við lútum höfði fyrir því sem fellur eftir Öldu Lóu,

    Stórsæ stjarnfræðileg fyrirbrigði - og önnur málefni hjartans eftir Eyrúnu Jónsdóttur og Urta Gerðar Kristnýjar.

    „Og þessi leikur að kaupa íbúð verður líka eitthvað svo öfugsnúinn, þótt hann verði svo sem ekki öfugsnúnari en vill verða í mörgum tilfellum.

    Tíðindaleysið verður ekki bara að tíðindum hjá Braga, eins og svo oft áður, heldur að stórtíðindum. Meistaraleg bygging sögunnar þar sem líkt er eftir kappleik, raunverulegi kappleikurinn sem kemur við sögu gjörsamlega óborganleg kómedía. Persónurnar hver annari meitlaðri, furðulegar en þó svo kunnuglegar - því við verðum öll furðuleg þegar lífið snýst með okkur gegn gangi leiksins. “ - Guðmundur Brynjólfsson - Skuggsjá

    1 hr 16 min
  • Karakterar í sálmabókum og Kolaportum - Víðförli

    Þú mikli Guð ert með oss á jörðu... ...í dagsins iðu - götunnar glaumi; þann sálm Sigurbjörns hefur þjóðin sungið af hjarta síðan sál hennar komst á mölina og því ekki nema von að sá gamli hafi vinningin þegar farið er að telja sálmana í nýju sálmabókinni. En í dag tekur Víðförli þig með á ferðalag inn að kjarnaguðfræði bókarinnar... ...og jafnvel einhverjum tölulegum upplýsingum. (Það er svona metingur sem er íslenskur en alltaf dulbúin sem þekkingarþorsti.) Þar er vissulega til leiðsagnar Margrét Bóasdóttir og er þetta seinni hluti viðtalsins við hana í tilefni af útkomu nýrrar sálmabókar. Hvernig tölfræði verður á enda leiðar er annað og allir eru hólpnir sem leggja leið sína í Kolaportið til að njóta bænar og friðarsamfélags með Guði og náunganum.

    Víðförli brá sér í Kolaportið með þeim prestinum og djáknanum, Báru og Roman, þýðendum bænamáls og hugvekju á ensku og úkraínsku ásamt svo organistasyninum Sigurði Guðmundssyni sem skreytti stundina tónum og söng. Hugleiðing sr. Bjarna fær að njóta sín sem hugvekja þáttarins - en hlustendur biðjum við að biðja sinna bæna einnig í hljóði. Umsjónarmaðurinn með upptakarann er Arnaldur Máni Finnsson.

    AM

    50 min
  • Buber eða Bubbi? Nýir og gamlir sálmar og svo Vegur mannsins

    Af hverju er Lög og regla ekki í nýju sálmabókinni? Fyrir fólk sem þráir að rata réttan veg á vegi sannleikans? Dr. Guðmundur og sr. Arnaldur þreifa aðeins betur á guðfræðinni sem nýir og gamlir sálmar í hinni nýútgefnu sálmabók kirkjunnar innihalda - já bæði í gamni og alvöru - en fjalla svo einnig um stutta en þrumugóða hugvekju heimspekingsins og hasídistans Martins Buber; Veg mannsins í þýðingu Torfa Jónssonar. Slegið á létta strengi og farið útaf sporinu, eins og þeirra er von og vísa, enda enn að reyna að verða að aðeins skárri skepnum. Það er sama hvort þið hlustið eða hlýðið - það má hafa gaman af þessu.

    1 hr 9 min
  • Brakandi vínrauð sálmabók og sóknarfæri sóknanna - Víðförli

    Víðförli hefur sig á loft með nýrri sálmabók. Rætt við söngmálastjóra kirkjunnar Margréti Bóasdóttur hina vínrauðu söngbók sem helguð var til þjónustunnar í dag 13. nóvember. Fyrri hluti þáttarins inniheldur fyrri hluta viðtalsins við Margréti en síðari hlutinn er á dagskrá í næsta þætti. (Einnig bónusefni síðar meir) Í seinni hlutanum eru skoðuð sóknarfæri sóknanna - ef svo má segja - en rætt er við Dr. Bjarna Snæbjörn Jónsson sem fór fyrir stýrihópi um stefnumótun kirkjunnar á síðasta ári. Staðan tekin, horft út og suður, inná við og útavið en viðtalið fór fram eftir fyrri lotu yfirstandandi Kirkjuþings. Seinni lotan fyrir jól fer fram í næstu viku en nú mótar nýtt þing áherslurnar fyrir næstu misseri ásamt forystunni á rekstrarstofu í nýju skipuriti. Fróðlegt viðtal um sýn ráðgjafans á eitt og annað sem snýr að söfnuðum landsins og samstarfi þeirra sem leitt er af þjónustumiðstöð kirkjunnar. Sterkir punktar sem Bjarni vildi ræða frekar - svo... meira síðar!

    Umsjónarmaður Víðförla er Arnaldur Máni Finnsson en upptökur fóru fram í hljóðstofu kirkjunnar við Vonarstræti.

    1 hr 18 min
  • Spegill tíðarandans? - Ný sálmabók kirkjunnar

    Í fyrstu atrennu hinna vígðu þjóna að grúski í bókum þreifa þeir dr. Guðmundur og sr. Arnaldur á nýrri sálmabók þjóðkirkjunnar; en hún fer einstaklega vel í hendi - enda á að syngja uppúr henni en ekki hafa hana í vasanum. Umfjöllunarefnið er sístætt og í bók sem er að umfangi líkust bók bókanna, á íslenskum forsendum og því dugar þáttur dagsins ekki til - en áfram fjalla þeir félagar um guðfræði sálmabókarinnar í næsta þætti.

    Í upphafi þáttar hljómar söngur hinna vestfirsku Hljómóra þar sem Jóngunnar Biering flytur hin alþekktu kvæði Sveinbjörns Egilssonar og Matthíasar Jochumssonar við eigið lag; Ég fel í forsjá þína og Nú legg ég augun aftur. Það er innlegg ætlað til þess að minna okkur á að það er sístætt verkefni að endur-og umskapa umgjörð þeirra trúarljóða sem íslenskur bókmenntaarfur hefur fært kirkjunni.

    Umsjónarmenn Skuggsjár, sem er hluti af Hljóðvarpi Víðförla, eru þeir Arnaldur Máni Finnsson og Guðmundur Brynjólfsson. Upptökur fóru fram í hljóðstofu Víðförla á horni Vonarstrætis og Lækjargötu.

    55 min
  • Stikla: Sálmabók og framtíð hinna syngjandi... - Víðförli

    Stikla: Víðförli ræðir í fyrsta þætti við söngmálastjóra kirkjunnar Margréti Bóasdóttur um nýja sálmabók sem helguð var til þjónustunnar í dag 13. nóvember. Fyrri hluti þáttarins er helgaður því efni en síðari hluti viðtalsins við Margréti er á dagskrá í næsta þætti. Seinni hluti þáttarins er spjall við Bjarna Snæbjörn Jónsson sem fór fyrir stýrihópi um stefnumótun kirkjunnar á síðasta ári en yfirstandandi Kirkjuþing mótar nú áherslur fyrir komandi ár. Fróðlegt viðtal um sýn ráðgjafans á eitt og annað sem snýr að söfnuðum landsins og samstarfi þeirra sem leitt er af þjónustumiðstöð kirkjunnar.

    Umsjónarmaður Víðförla er Arnaldur Máni Finnsson en upptökur fóru fram í hljóðstofu kirkjunnar við Vonarstræti.

    5 min

About Skuggsjá

From the publisher's feed

Djákninn og doktorinn Guðmundur Brynjólfsson auk prestsins og pælarans Arnaldar Mána ræða um skræður í hillum og tilþrif á fjölum leikhúsanna. Í Skuggsjá er rýnt í meðferð Orðsins á meðal mannanna og…