Spursmál

Spursmál

By Ritstjórn MorgunblaðsinsNewsPolitics
Download on the App Store
  • Favorites

    24

    Followers

  • Typical duration

    92 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

Spursmál episodes

  • #14. – Íslenskt ölæði og framtíðar stjórnarmynstur

    Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, formaður Viðreisnar, er aðalviðmælandi Stefáns Einars Stefánssonar í Spursmálum vikunnar. Þar ræðir hún útlendingamálin, ríkisstjórnarsamstarfið og möguleg stjórnarmynstur í náinni framtíð. Þorgerður hefur bent á að margt megi betur fara í málaflokki innflytjenda og flóttafólks en varasamt sé þó að gera útlendingamálin að kosningamáli.


    Í þættinum verða fréttir vikunnar að stórum hluta tileinkaðar 35 ára afmæli bjórsins. Arnar Sigurðsson, eigandi vínverslunarinnar Santé, mætir í settið ásamt bjórsérfræðingnum Kjartani Vídó Ólafssyni, markaðsstjóra HSÍ og bruggmeistara hjá The Brothers Brewery, til að ræða sögu bjórsins og rýna helstu fréttamál liðinnar viku.

    56 min
  • #13. – Fokdýr hönnunarbrú og Inga Sæland í forsetann?

    Bergþóra Þorkelsdóttir forstóri Vegagerðarinnar situr fyrir svörum um samgöngumál höfuðborgarsvæðisins í nýjasta þætti Spursmála. Framkvæmdaráætlun Fossvogsbrúar er í forgrunni þar sem knúið er á um svör við krefjandi spurningum um umfram kostnaðaráætlun og tillögu að hönnun brúarinnar. Hvort tveggja hefur hlotið mikla gagnrýni að undanförnu.


    Yfirferð á helstu fréttum vikunnar verður einnig á sínum stað í þættinum. Bragi Valdimar Skúlason, orðasnillingur, þáttagerðarmaður og textasmiður með meiru mætir í settið ásamt þingkonunni Ingu Sæland, til að fara yfir þær fréttir sem voru í eldlínunni í líðandi viku. Þar kemur margt áhugavert upp úr dúrnum. 

    1 hr 7 min
  • #12. – Rekstur Landspítala, Víkingur Heiðar, Donald Trump, RÚV og pípulagnir

    Hvað eiga rekstr­ar­töl­ur Land­spít­al­ans, Vík­ing­ur Heiðar, Don­ald Trump, RÚV og Pípu­lagn­inga­sveit Al­manna­varna sam­eig­in­legt? Jú, allt þetta og meira er til umræðu í tólfta þætti Spursmála. 

    Runólfur Pálsson forstjóri Landspítala situr fyrir svörum um rekstur spítalans í nýjasta þætti af Spursmálum. Rætt verður um stöðu spítalans í samanburði við tölur sem nýlega voru birtar úr nýju bráðabirgðauppgjöri og sýndu jákvæða afkomu.

    Fréttir vikunnar verða að vanda á sínum stað. Að þessu sinni mæta þau Steinunn Sigurðardóttir rithöfundur og Sigmar Guðmundsson alþingismaður í settið til að fara yfir það sem var efst á baugi í líðandi viku. Vænta má að allt verði látið flakka í þeirri yfirferð.

    1 hr 4 min
  • #11. - Rökrætt um orkukrísu og eldsumbrot.

    Í þessum ellefta þætti af Spursmálum situr Halla Hrund Logadóttir, orkumálastjóri hjá Orkustofnun, fyrir svörum við krefjandi spurningum um þá stöðu sem upp er komin í orkumálum hér á landi. Staðan hef­ur um hríð þótt held­ur óljós og yf­ir­vof­andi orku­skort­ur á raf­orku og heitu vatni ekki úti­lokaður. Hefur orkumálastjóri sætt harðri gagnrýni að undanförnu í ljósi stöðunnar.


    Ari Trausti Guðmundsson, jarðvísindamaður, og Helga Árnadóttir, framkvæmdastjóri sölu, rekstrar og þjónustu hjá Bláa lóninu, fara yfir helstu fréttir vikunnar sem að stórum hluta tengjast eldsumbrotunum á Reykjanesskaga.

    1 hr 10 min
  • #10. - Guðmund­ur Ingi Guðbrands­son, Bergur Ebbi og Björt Ólafsdóttir.

    Mikið hef­ur farið fyr­ir inn­flytj­enda- og flótta­manna­mál­um í sam­fé­lags­um­ræðunni síðustu daga og vik­ur. Í þætt­in­um mun Stefán Ein­ar Stef­áns­son beina krefj­andi spurn­ing­um að ráðherra í takt við þann glundroða sem virðist eiga sér stað í út­lend­inga­mál­um hér á landi. 

    Einnig má bú­ast við fjör­ugri yf­ir­ferð á frétt­um vik­unn­ar þegar þau Björt Ólafs­dótt­ir, fram­kvæmda­stjóri og fyrr­um þing­kona, og Berg­ur Ebbi Bene­dikts­son, rit­höf­und­ur og grín­isti, mæta í settið og láta skoðanir sín­ar í ljós á því sem var efst á baugi í líðandi viku.


    1 hr 15 min
  • Spursmál - Forsetakjör framundan.

    mbl.is leitaði álits lands­manna á því hvern fólk vildi helst sjá í embætti for­seta Íslands þegar Guðni Th. Jó­hann­es­son læt­ur af embætti þann 1. ág­úst næst­kom­andi.

    Ríf­lega 2.500 ábend­ing­ar bár­ust á tæp­um tveim­ur sól­ar­hring­um og kenn­ir þar ým­issa grasa.

    13 min
  • #9. - Vilhjálmur Birgisson, Dagbjört Hákonardóttir og Hermann Guðmundsson

    Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambands Íslands og Verkalýðsfélags Akraness, er aðalviðmælandi Stefáns Einars Stefánssonar í þessum níunda þætti af Spursmálum. Mikill hiti hefur færst í kjaradeilu breiðfylkingar stéttarfélaga innan ASÍ og Samtaka Atvinnulífsins (SA) en slitnað hefur upp úr viðræðum samningsaðila og var deilunni vísað til ríkissáttasemjara í vikunni.

    Dagbjört Hákonardóttir, þinkona Samfylkingarinnar, og Hermann Guðmundsson, forstjóri Kemi, fara einnig yfir helstu fréttir vikunnar undir stjórn Stefáns Einars og er svo sannarlega á nógu að taka í þeim efnum.  

    1 hr 10 min
  • #8. - Sigurður Kári Kristjánsson, Ólöf Skaftadóttir og Björn Ingi Hrafnsson

    Sigurður Kári Kristjánsson, stjórnarformaður NTÍ, situr fyrir svörum í áttunda þætti af Spursmálum. Í þættinum verður knúið á um svör við krefjandi spurningum um hlutverk náttúruhamfarasjóðsins og yfirvofandi aðgerðiráætlanir í ljósi atburðanna í Grindavík. Nístandi óvissa Grindvíkinga hefur sett mikinn svip á samfélagsumræðuna og ljóst að framtíð þeirra liggur í höndum ríkisstjórnarinnar og Náttúruhamfaratrygginga Íslands (NTÍ).

    Auk Sigurðar Kára mæta þau Ólöf Skaftadóttir, laxabóndi og fjölmiðlakona, og Björn Ingi Hrafnsson, fjölmiðlamaður, í sett til að rýna í helstu fréttir vikunnar.

     

    1 hr 2 min
  • #7. - Willum Þór Þórsson, Heiðrún Lind Marteinsdóttir og Orri Páll Jóhannsson

    Willum Þór Þórsson, heilbrigðisráðherra, situr fyrir svörum í sjöunda þætti Spursmála undir stjórn Stefáns Einars Stefánssonar. Þar er staða heilbrigðiskerfisins höfð í brennidepli og knúið á um svör með hvaða hætti hægt sé að bæta ástand heilbrigðisþjónustunnar hér á landi.

    Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri SFS, og Orri Páll Jóhannsson, þingflokksformaður VG, takast einnig á um helstu fréttir vikunnar og létu ólíkar skoðanir sínar í ljós á áliti umboðsmanns Alþingis um ákvörðun matvælaráðherra á frestun hvalveiða.

    1 hr 9 min
  • #6. - Brynjar Níelsson, Ingibjörg Isaksen, Runólfur Ágústsson og Erna Mist Yamagata

    Ingi­björg Isak­sen þing­flokks­formaður Fram­sókn­ar­flokks­ins og Brynj­ar Ní­els­son, aðstoðarmaður dóms­málaráðherra og fyrr­um þingmaður Sjálf­stæðis­flokks­ins eru viðmæl­end­ur Stef­áns Ein­ars Stef­áns­son­ar í þessum sjötta þætti af Spursmálum. Þar takast þau á um ríkisstjórnarsamstarfið sem mörgum þykir vera að líða undir lok.

    Auk Ingi­bjarg­ar og Brynj­ars ræðir Stefán Einar við Run­ólf­ Ágústs­son fram­kvæmda­stjóra og Ernu Mist Yamagata, lista­konu og pistla­höf­und um helstu frétt­ir líðandi vik­u þar sem hvort þeirra hefur sína skoðun á því sem helst bar á góma í samfélagsumræðunni.

    1 hr 1 min

About Spursmál

From the publisher's feed

Spursmál er nýr og beinskeyttur umræðuþáttur á mbl.is

Best of Spursmál

Ranked by our users in the last 21 days

More shows like Spursmál

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

470 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

92 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

18 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

17 Listeners

Grjótkastið by Björn Ingi Hrafnsson

Grjótkastið

6 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

69 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

29 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

29 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

22 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners