Spursmál

Spursmál

By Ritstjórn MorgunblaðsinsNewsPolitics
Download on the App Store
  • Favorites

    24

    Followers

  • Typical duration

    92 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

Spursmál episodes

  • #43. - Djúpríkið í klandri, vaxtaþak á bankana og vika í uppgjör í USA

    Arn­ar Þór Jóns­son, er formaður hins nýja Lýðræðis­flokks. Hann vill fá umboð til þess að um­bylta pen­inga­markaðnum á Íslandi, taka á djúpríkinu og í viðtalinu kynn­ir hann leiðir til þess að draga úr verðbólgu.

    Auk hans eru þær mætt­ar í Há­deg­is­mó­ana, þing­kon­urn­ar Þór­unn Svein­bjarn­ar­dótt­ir og Lilja Rann­veig Sig­ur­geirs­dótt­ir. Flokk­ur Þór­unn­ar er á mik­illi sigl­ingu og mæl­ist trekk í trekk með 24% fylgi eða meira. Á sama tíma er Fram­sókn­ar­flokk­ur­inn, flokk­ur Rann­veig­ar, í kröpp­um dansi og í sum­um könn­un­um virðist hann á barmi þess að falla út af þingi. Það eru mik­il tíðindi fyr­ir elsta stjórn­mála­flokka lands­ins.

    Þær stöll­ur ræða stöðuna í stjórn­mál­un­um heima og Þór­unn fer meðal ann­ars yfir ný­lega uppá­komu þar sem Kristrún Frosta­dótt­ir, formaður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar, talaði niður til Dags B. Eggerts­son­ar í tölvu­póst­sam­skipt­um við kjós­anda.

    1 hr 24 min
  • #42. - Píratar sýna á spilin og hrókeringar á hægri vængnum

    Leiðtogaviðtölin halda áfram og að þessu sinni er gest­ur Spurs­mála Lenya Rún Taha Karim, sem vann fræk­inn sig­ur í próf­kjöri Pírata í Reykja­vík þar sem hún skaut reynslu­mikl­um sitj­andi þing­mönn­um aft­ur fyr­ir sig.

    Í viðtal­inu er rætt við Lenyu um stefnu Pírata í mál­um sem tengj­ast heil­brigðisþjón­ustu, skatt­heimtu, stöðu út­lend­inga og hæl­is­leit­enda og margt fleira.

    Áður en að því kem­ur mæta þeir Bergþór Ólason, þing­flokks­formaður Miðflokks­ins og Brynj­ar Ní­els­son, fyrr­um alþing­ismaður fyr­ir Sjálf­stæðis­flokk­inn á vett­vang og ræða stöðuna í stjórn­mál­un­um og glóðheit­ar töl­ur úr nýj­ustu könn­un Pró­sents. Það er könn­un sem unn­in er fyr­ir Morg­un­blaðið og mbl.is.

    1 hr 17 min
  • #41. - Sanna tekur slaginn fyrir sósíalismann og folar í framboði

    Sanna Magda­lena Mörtu­dótt­ir, borg­ar­full­trúi og leiðtogi Sósí­al­ista­flokks Íslands í kom­andi þing­kosn­ing­um, sit­ur fyr­ir svör­um í nýj­asta þætti Spurs­mála.

    AUk hennar mæta þing­fram­bjóðend­urn­ir Snorri Más­son, sem sæk­ist eft­ir odd­vita­sæti á lista Miðflokks­ins í Reykja­vík, og Guðmund­ur Ari Sig­ur­jóns­son, sem að öllu óbreyttu mun skipa annað sæti á lista Sam­fylk­ing­ar­inn­ar í Suðvest­ur­kjör­dæmi.

    Vegna kom­andi þing­kosn­inga þann 30. nóv­em­ber verða tveir þætt­ir af Spurs­mál­um í hverri viku fram að kosn­ing­um, á þriðju­dög­um og föstu­dög­um.

    Meðal ann­ars verður rætt við for­menn flokk­anna og hina ýmsu odd­vita.

    1 hr 12 min
  • #40. - Uppgjör í kraganum, ný könnun og Trump á siglingu

    Jón Gunn­ars­son, fyrr­ver­andi ráðherra, mætir Þór­dísi Kol­brúnu Reyk­fjörð Gylfa­dótt­ur, ut­an­rík­is­ráðherra og vara­for­manni Sjálf­stæðis­flokks­ins, í póli­tísku ein­vígi í nýj­asta þætti Spurs­mála. Er þetta í fyrsta sinn sem þau Jón og Þór­dís mæt­ast eft­ir að hún til­kynnti um fram­boð sitt en bæði ætla þau sér annað sætið á lista Sjálf­stæðis­flokks­ins í Krag­an­um.

    Til að ræða helstu frétt­ir vik­unn­ar og nýj­ustu vend­ing­ar á vett­vangi stjórn­mál­anna mæta þau Stefán Páls­son, sagn­fræðing­ur og vara­borg­ar­full­trúi Vinstri Grænna, og Sonja Lind Estrajher Eygló­ar­dótt­ir, aðstoðarmaður heil­brigðisráðherra, í settið.

    Þá fer Andrés Magnús­son, full­trúi rit­stjóra á Morg­un­blaðinu, yfir nýj­ustu töl­ur í skoðana­könn­un Pró­sents sem benda til mik­ill­ar fylg­is­breyt­ing­ar eft­ir að upp úr rík­is­stjórn­ar­sam­starf­inu flosnaði síðustu helgi.


    1 hr 7 min
  • #39. - Ríkisstjórnin í andarslitrunum

    Gest­ir þátt­ar­ins að þessu sinni eru þau Áslaug Arna Sig­ur­björns­dótt­ir, há­skóla-, iðnaðar- og ný­sköp­un­ar­ráðherra, Bergþór Ólason, þing­flokks­formaður Miðflokks­ins, og Íris Ró­berts­dótt­ir, bæj­ar­stjóri í Vest­manna­eyj­um.

    49 min
  • #38. - Viðreisn Jóns, örkin hans Óla og skvettugangur í Móunum

    Hvaða áherslu­mál hyggst Jón Gn­arr setja á odd­inn í stjórn­mála­starfi inn­an Viðreisn­ar? Er stefnu­skrá flokks­ins leiðar­vís­ir­inn eða hyggst hann fara sín­ar eig­in leiðir. Þetta kem­ur í ljós í viðtali á vett­vangi Spurs­mála.

    Ný­verið lýsti Jón því yfir að hann hygðist hasla sér völl í lands­mál­un­um á vett­vangi Viðreisn­ar.

    Hann mun taka þátt í próf­kjöri og sækj­ast eft­ir leiðtoga­sæti flokks­ins í Reykja­vík. Þar sitja nú á fleti fyr­ir þær Hanna Katrín Friðriks­son og Þor­björg Gunn­laugs­dótt­ir. Sú fyrr­nefnda í Reykja­vík suður og hin í norður.

    Líkt og und­an­farn­ar vik­ur hafa mörg stórtíðindi rekið önn­ur á frétta­vett­vangi. Til þess að ræða þau mál mæta þau Áslaug Hulda Jóns­dótt­ir, aðstoðarmaður ráðherra og fyrr­um bæj­ar­full­trúi Sjálf­stæðis­flokks­ins í Garðabæ og sr. Ólaf­ur Jó­hann Borgþórs­son, sókn­ar­prest­ur í Selja­kirkju sem nú hef­ur verið ráðinn fram­kvæmda­stjóri Herjólfs, sem sigl­ir milli lands og æsku­stöðva prests­ins, Vest­manna­eyja.

    1 hr 27 min
  • #37. - Spangólandi ráðherra og ósvífinn stjórnandi

    Sig­urður Ingi Jó­hanns­son, fjár­mála- og efna­hags­ráðherra, sit­ur fyr­ir svör­um í nýj­asta þætti Spurs­mála. Auk hans mæta þau Krist­ín Gunn­ars­dótt­ir einn þátta­stjórn­andi hlaðvarps­ins Komið gott og Björn Ingi Hrafns­son rit­stjóri Vilj­ans til að rýna helstu frétt­ir líðandi viku.


     

    1 hr 19 min
  • #36. - Rugby-rimma, remúlaðislys og umdeildur kjörþokki

    Sigmundur Davíð Gunnlaugsson formaður Miðflokksins situr fyrir svörum. Fylgi Miðflokks­ins hef­ur sjald­an eða aldrei mælst hærra en ný­leg­ar skoðanakann­an­ir gefa sterk­lega til kynna að fylgi flokks­ins fari nú með him­inskaut­um en enn er óvíst hvenær til kosn­inga kem­ur. Að svo stöddu virðist svo vera að út­hald rík­is­stjórn­ar­inn­ar sé sleitu­laust þrátt fyr­ir að gustað hafi um rík­is­stjórn­ar­sam­starfið á kjör­tíma­bil­inu.

    For­ingj­ar stjórn­mála­flokk­anna hafa nú tekið sér stöðu á vett­vangi stjórn­mál­anna. Enda ekki seinna vænna því inn­an árs munu lands­menn ganga að kjör­borðinu á nýj­an leik og velja sér nýja for­ystu sem kann að hugn­ast land­an­um bet­ur. 

    Lagðar verða ýms­ar spurn­ing­ar fyr­ir Sig­mund Davíð um stjórn­ar­sam­starfið og hvers sé að vænta í póli­tík­inni á kom­andi miss­er­um.

    Fjör­leg yf­ir­ferð á frétt­um vik­unn­ar

    Margt hef­ur dregið til tíðinda í vik­unni. Verður það í hönd­um þeirra Ingu Sæ­land, for­manns Flokks fólks­ins, og Jón Gunn­ars­son­ar, þing­is­manns Sjálf­stæðis­flokks­ins og fyrr­ver­andi dóms­málaráðherra, að fara yfir helstu frétt­ir í líðandi viku. Bú­ast má við að mikið fjör fær­ist í leik­ana þegar þessi tvö mæta í settið og rýna helstu frétt­ir með sín­um eig­in skoðanagler­aug­um.


    1 hr 23 min
  • #35. - Misheppnuð mótmæli og sjávarútvegurinn pakkar í vörn

    Heiðrún Lind Marteinsdóttir, framkvæmdastjóri Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi, situr fyrir svörum  í nýjasta þætti Spursmála. Lagabreytingatillögur Bjarkeyjar Olsen Gunnarsdóttur matvælaráðherra hafa að undanförnu hlotið mikla gagnrýni af hálfu forsvarsmanna SFS og verður Heiðrún Lind meðal annars krafin svara um rétt og sanngjörn afgjöld fyrir sjávarauðlindina við strendur Íslands.

    Þau Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir, þingkona Viðreisnar, og Vilhjálmur Birgisson, formaður Starfsgreinasambandsins, mæta einnig í settið og rýna í það sem helst bar á góma í fréttum líðandi viku; setningu þingsins, stefnuræðu forsætisráðherra, mótmæli launafólks á Austurvelli og margt fleira. 

    1 hr 12 min
  • #34. - Tik Tok eitraðra en filterslaus Camel og ráðaleysi í Valhöll

    Grím­ur Atla­son, fram­kvæmda­stjóri Geðhjálp­ar, og Tryggvi Hjalta­son, formaður hug­verkaráðs og höf­und­ur ný­legr­ar skýrslu um stöðu drengja í ís­lensku mennta­kerfi, sitja fyr­ir svör­um í nýj­asta þætti Spurs­mála.

    Í kjöl­far hnífa­árás­ar­inn­ar í miðborg Reykja­vík­ur á Menn­ing­arnótt þar sem ung stúlka týndi lífi sínu og fleiri ung­menni særðust hafa marg­ar spurn­ing­ar vaknað um hvers kon­ar sam­fé­lags­breyt­ing­ar eru að eiga sér stað hér á landi.

    Í þætti dags­ins ræða þeir Grím­ur og Tryggvi tæpitungu­laust um af­leiðing­ar stór­auk­ins vopna­b­urðar, óör­yggi og van­líðan barna og með hvaða hætti hægt sé að sporna við þess­ari vá­legu þróun. Enda um risa­vaxið mál að ræða sem snert­ir allt sam­fé­lagið í heild.

    Pírat­inn Björn Leví Gunn­ars­son fer yfir helstu tíðindi í líðandi viku ásamt Teiti Birni Ein­ars­syni, þing­manni Sjálf­stæðis­flokks­ins, og á nógu er að taka.

    Storma­sam­ur kosn­inga­vet­ur virðist vera í vænd­um. Sjálf­stæðis­flokk­ur­inn á nú und­ir högg að sækja eft­ir að í ljós kom að fylgi flokks­ins mæl­ist í sögu­legu lág­marki.

    1 hr 22 min

About Spursmál

From the publisher's feed

Spursmál er nýr og beinskeyttur umræðuþáttur á mbl.is

Best of Spursmál

Ranked by our users in the last 21 days

More shows like Spursmál

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

470 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

92 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

18 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

17 Listeners

Grjótkastið by Björn Ingi Hrafnsson

Grjótkastið

6 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

69 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

29 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

29 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

22 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners