
Sign up to save your podcasts
Or


Based on Podcast App listening data
Í þetta sinn mætir til leiks Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra. Margir stórir málaflokkar heyra undir ráðuneyti hennar, allt frá innlendri matvælaframleiðslu á sjó og landi til ferðaþjónustu og iðnaðar af öðru tagi.
Í viðtalinu er Hanna Katrín meðal annars spurð út í afstöðu hennar og Viðreisnar til strandveiða sem ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur hefur gert að forgangsatriði í starfi sínu.
Viðtalið við Hönnu Katrínu var tekið upp í gær og hefur, áður en til birtingar kom, valdið nokkrum úlfaþyt í herbúðum ríkisstjórnarflokkanna. Einkum þó hjá Sigurjóni Þórðarsyni, þingmanni Flokks fólksins. Hann mun innan tíðar taka við formennsku í atvinnuveganefnd þingsins.
Titringur á ólíklegustu stöðum
Kristín Gunnarsdóttir, hlaðvarpsstjórnandi þáttarins Komið gott hefur að undanförnu verið orðuð við formannsframboð í VR en framboðsfrestur rennur út í hádeginu á mánudag. Hún mætir í nýjasta þátt Spursmála og ræðir stöðuna ásamt Þórði Gunnarssyni, bróður sínum og hagfræðingi.
Mikil tíðindavika er að baki þar sem Donald Trump tók við embætti forseta, Þórdís Kolbrún R. Gylfadóttir ákvað að víkja úr forystusveit Sjálfstæðisflokksins og handboltalandsliðið gerði allt vitlaust.
Öllu þessu sér stað í Spursmálum þar sem fréttavikan er gerð upp með þeim Bjarna Helgasyni og Hermanni Nökkva Gunnarssyni, blaðamönnum á Morgunblaðinu.
Þá mætir Hörður Arnarson, forstjóri Landsvirkjunar í þáttinn og ræðir þá þröngu stöðu sem fyrirtækið er nú komið í eftir að héraðsdómur felldi úr gildi heimildir fyrirtækisins til þess að halda áfram við gerð Hvammsvirkjunar í Þjórsá.
Landsvirkjun hefur óskað leyfis Hæstaréttar til þess að fá að skjóta málinu beint þangað og fram hjá Landsrétti en að öllum líkindum mun taka marga mánuði að leiða málið til lykta, hvernig sem fer.
Stefnir í hallarbyltingu í Framsóknarflokknum um svipað leyti og Sjálfstæðisflokkurinn velur nýja forystu? Ljóst er að alþingiskosningarnar 30. nóvember síðastliðinn draga dilk á eftir sér á mörgum vígstöðvum, ekki aðeins meðal þeirra flokka sem hreinlega hurfu út af þingi.
Magnea Gná Jóhannsdóttir, borgarfulltrúi Framsóknarflokksins rýnir í spilin á stjórnmálasviðinu ásamt Elliða Vignissyni, bæjarstjóra Ölfuss. Hann hefur á síðustu vikum verið orðaður við embætti formanns Sjálfstæðisflokksins. En hvert stefnir hugur hans?
Á sama tíma og allt leikur á reiðiskjálfi í pólitíkinni er allt í uppnámi í orkuheiminum vegna Hvammsvirkjunar. Sumir fagna dátt meðan aðrir sýta sárt í kjölfar þess að héraðsdómur komst að þeirri niðurstöðu að Umhverfisstofnun hefði ekki heimild til þess að veita undanþágu frá vatnatilskipun Evrópusambandsins.
Til þess að ræða þá stöðu sem komin er upp í tengslum við þessa fyrirhuguðu ríflega 70 milljarða framkvæmd Landsvirkjunar mæta þeir til leiks, Finnur Beck, framkvæmdastjóri Samorku og Snæbjörn Guðmundsson, formaður Náttúrugriða.
Einar Örn Ólafsson, forstjóri Play mætir til leiks og ræðir þar fréttir vikunnar. Hann þekkir vel til á vettvangi Sjálfstæðisflokksins og spáir í spilin nú þegar ljóst er að nýr formaður mun taka við flokknum á árinu. Margt bendir einnig til að formannsslagur sé í uppsiglingu í Framsóknarflokknum, hvort sem Sigurður Ingi víkur sjálfviljugur af vettvangi eða ekki.
Þorvaldur Þórðarson, eldfjallafræðingur með meiru, spáir einnig í spilin. Mun gjósa aftur nærri Svartsengi? Er Grindavík hólpin? Hvað með mögulega eldvirkni á Mýrum eða á Snæfellsnesi?
Í síðari hluta þáttarins mætir svo Ólöf Örvarsdóttir, sviðsstjóri umhverfis- og skipulagssviðs Reykjavíkurborgar í þáttinn til þess að ræða hina gríðarstóru grænu skemmu sem allt í einu reis við Álfabakka og byrgir þar íbúum sýn og sólarljóss.
Nýtt ár hefst með krafti í stjórnmálunum og Sigmundur Davíð Gunnlaugsson heldur uppteknum hætti í stjórnarandstöðu. Hvernig stóðu Halla Tómasdóttir og Kristrún Frostadóttir sig í fyrstu áramótaávörpunum?
Allt er þetta til umfjöllunar í Spursmálum dagsins.
Fyrrnefndur Sigmundur mætir til leiks og ræðir nýjan stjórnarsáttmála og fyrstu skref nýrrar ríkisstjórnar. Hvað finnst honum um nýtt þjóðarsamtal um hagsýni í ríkisrekstri?
Bjarni Benediktsson hefur verið formaður Sjálfstæðisflokksins frá 2009. Í fyrsta sinn í 11 ár er hann í stjórnarandstöðu. Mun hann halda áfram sem formaður á nýju ári og hvenær fer landsfundur fram?
Svara við þessum spurningum verður leitað á vettvangi Spursmála þar sem Bjarni er gestur.
Mistök eða óhjákvæmileg ákvörðun?
Í þættinum mun Bjarni einnig svara spurningum um þá ákvörðun sína að efna til kosninga þann 30. nóvember síðastliðinn. Voru það mistök af hans hálfu eða var ákvörðunin óhjákvæmileg.
Eins verður Bjarni spurður út í efni nýs stjórnarsáttmála Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins.
Í fyrri hluta þáttarins verður rætt við þau Björn Inga Hrafnsson, ritstjóra Viljans og Vigdísi Häsler, verkefnastjóra Kleifa fiskeldis á Siglufirði. Þar munu þau rýna í pólitíkina, bæði það sem gerst hefur en einnig hvað framundan er.
Hvaða áhrif hefur það á leikskólakerfið í heild ef lyfjarisinn Alvotech stofnar leikskóla? Kristín Dýrfjörð, dósent í leikskólafræðum varar við en Heiðrún Lind Marteinsdóttir, lögfræðingur, fagnar þróuninni.
Á vettvangi Spursmála takast þær Kristín og Heiðrún Lind á um það hvort rétt sé að heimila einkafyrirtækjum að byggja upp leikskóla sem ætlað sé að sinna þjónustu við börn starfsmanna.
Alvotech hefur hafið undirbúning að slíkum skóla í samstarfi við fasteignafélagið Heima. Önnur fyrirtæki, á borð við Arion banka, skoða aðrar leiðir sem miðað að sama marki.
Í fyrri hluta þáttarins mæta til leiks þeir Jóhannes Þór Skúlason, framkvæmdastjóri Samtaka ferðaþjónustunnar og Aðalgeir Ásvaldsson, framkvæmdastjóri SVEIT. Þeir ræða fréttir vikunnar, meðal annars þann storm sem geisað hefur milli SVEIT og Eflingar vegna nýs kjarasamnings við stéttarfélagið Virðingu.
Þá blandaði Jóhannes Þór sér í umræðuna um hatursorðræðu og fordóma gagnvart transfólki í kjölfar þess að Snorri Másson, nýkjörinn þingmaður Miðflokksins tók upp hanskann fyrir Eld Smára Kristinsson, fyrrum frambjóðanda Lýðræðisflokksins, sem haldið hefur uppi sjónarmiðum um transfólk sem eru Samtökunum 78 mjög á móti skapi.
Björn Bjarnason, fyrrverandi alþingismaður og ráðherra, er gestur Stefáns Einars Stefánssonar í nýjasta þætti Spursmála.
Líkt og þekkist hefur Björn viðurhlutamikla þekkingu og reynslu á hinu pólitíska sviði. Í þættinum spáir hann í þær stjórnarmyndunarviðræður sem nú standa yfir á meðal Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins og hvers megi vænta af því sem framvindur í viðræðunum.
Ýmis hagsmunamál þjóðarinnar eru undir í þeim efnum en haft er eftir formanni Viðreisnar, og mögulegum næsta forsætisráðherra, að slæm afkoma ríkissjóðs hafi gert viðræðurnar vandasamari en ella þrátt fyrir að almennt ríki samstaða á milli formanna flokkanna þriggja; Kristrúnu Frostadóttur, Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur og Ingu Sæland. Hafa þær ítrekað látið hafa eftir sér að viðræðunum miði vel og að vonir standi til um að myndun nýrrar ríkisstjórnar takist fyrir jól.
Einnig verður rætt við Björn um stöðuna sem nú ríkir úti í heimi. Verða nýjustu vendingar í átökunum í Úkraínu og Sýrlandi til umræðu og mat lagt á stöðuna þar í tengslum við pólitískt umrót sem stríðsátökum fylgir.
Auk Björns mæta til leiks rithöfundarnir Ragnar Jónasson og Yrsa Sigurðardóttir og rýna helstu fréttir í líðandi viku. Þar er á nógu að taka að vanda bæði hér heima en ekki síður erlendis frá. Morðið á forstjóra eins stærsta sjúkratryggingafyrirtækis Bandaríkjanna hefur verið í hámæli í vikunni. Ekki er ólíklegt að færustu glæpasagnahöfundar landsins, þó víðar væri leitað, myndu vilja tjá sig um allan þann hrylling sem daglega gerist í raunheimum og hugsanlega getur orðið kveikjan að þeirra skáldskap í einhverjum tilfellum.
Miðflokkurinn vann sigur í kosningunum en hefur þó ekki verið hleypt að borðinu við myndun ríkisstjórnar. Forsvarsmenn flokksins halla sér þó aftur og það á einnig við um formann Sjálfstæðisflokksins.
Á sama tíma velta menn vöngum yfir því hvernig ný ríkisstjórn Samfylkingar, Viðreisnar og Flokks fólksins verður samsett, ef tekst að koma henni á koppinn.
Í Spursmálum í dag er sviðsmyndum um það varpað fram. Þar er einnig rætt við þingmennina Áslaugu Örnu Sigurbjörnsdóttur, sem nú er að búa sig undir að hverfa úr ráðuneyti sínu til síðustu þriggja ára og Karl Gauta Hjaltason sem kemur að nýju inn á þing eftir nokkurra ára fjarveru.
Þau ræða mögulega stjórnarmyndun og hvort flokkar þeirra, Sjálfstæðisflokkur og Miðflokkur muni eiga aðkomu að slíkum viðræðum áður en yfir lýkur.
Áður en þau mæta til leiks ræðir Stefán Einar við varaborgarfulltrúana Söndru Hlíf Ocares, sem er í Sjálfstæðisflokki og Stefán Pálsson sem situr fyrir VG í borgarstjórn. Flokkar þeirra beggja urðu fyrir þungu áfalli í kosningunum og óvíst hvernig þeir hyggjast bregðast við.
Þeim til fulltingis við greiningarvinnuna er mættur á svæðið Valgeir Magnússon, oft nefndur Valli sport, en hann er í hópi reyndustu auglýsinga- og markaðsmanna landsins. Hvað finnst honum um kosningabaráttu flokkanna. Hann rýnir í kortin í þeim efnum.
Hátt í þrjú hundruð manns mættu á kosningauppgjör Spursmála sem efnt var til á Reykjavik Hilton Nordica tæpum sólarhring eftir að kjörstöðum lokaði hringinn í kringum landið.
Þótti við hæfi að ljúka umfjöllun um kosningabaráttuna með þessum hætti þar sem Spursmál hafa reynst einn virkasti og spennuþrungnasti vettvangur baráttunnar allt frá því að Bjarni Benediktsson, forsætisráðherra sleit ríkisstjórnarsamstarfi Sjálfstæðisflokks, Framsóknarflokks og VG um miðjan október.
Að lokum fékk Stefán Einar til skrafs og ráðagerða þá Gísla Frey Valdórsson, ritstjóra Þjóðmála og Vilhjálm Birgisson, formann Starfsgreinasambandsins. Hafði Vilhjálmur sérstaklega á orði að þeir flokkar sem hefðu barist hvað hatrammast gegn hvalveiðum væru nú dottnir út af þingi og fagnaði hann því einarðlega. Segir hann næstu stjórn eiga að snúast um verðmætasköpun sem nýtast megi þjóðinni allri.
Gísli Freyr ræddi stöðuna út frá öðrum sjónarhornum en sagði meðal annars að Vinstri grænum hefði ekki verið hafnað vegna stjórnarsamstarfsins sem nú er á enda runnið, heldur vegna þeirrar stefnu sem þeir hafa talað fyrir af mikilli einurð.
From the publisher's feed
Ranked by our users in the last 21 days

470 Listeners

139 Listeners

21 Listeners

27 Listeners

92 Listeners

18 Listeners

17 Listeners

6 Listeners

69 Listeners

29 Listeners

29 Listeners

22 Listeners

20 Listeners

27 Listeners

12 Listeners