Spursmál

Spursmál

By Ritstjórn MorgunblaðsinsNewsPolitics
Download on the App Store
  • Favorites

    24

    Followers

  • Typical duration

    92 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

Spursmál episodes

  • #72. - Trump og Kristrún setja allt í uppnám

    Þjóðir heims hafa brugðist ókvæða við þeirri ákvörðun Trumps að leggja vernd­artolla á þjóðir heims. Sveit­ar­fé­lög­in er í sama gír gagn­vart aðgerðum rík­is­stjórn­ar Kristrún­ar Frosta­dótt­ur.

    Þetta er meðal þess sem rætt er á vett­vangi Spurs­mála þenn­an föstu­dag­inn. Í frétt­um vik­unn­ar er sann­ar­lega vikið að ákvörðun for­set­ans í Washingt­on og til sam­tals um það mæta fyrr­um ráðherr­ar Fram­sókn­ar­flokks­ins, þau Will­um Þór Þórs­son og Lilja Dögg Al­freðsdótt­ir.

    Þau ræða einnig gosið á Sund­hnúkagígaröðinni sem varði stutta stund og gerði minni óskunda en í fyrstu virt­ist stefna.

    Þegar yf­ir­ferð á frétt­um vik­unn­ar slepp­ir mæta þeir beint frá Ísaf­irði og Fjarðabyggð þeir Gylfi Ólafs­son, formaður bæj­ar­ráðs Ísa­fjarðar og Ragn­ar Sig­urðsson, formaður bæj­ar­ráðs Fjarðabyggðar.

    Sveit­ar­stjórn­ar­menn í fjöl­mörg­um sveit­ar­fé­lög­um hring­inn í kring­um landið hafa brugðist ókvæða við þeim fyr­ir­ætl­un­um rík­is­stjórn­ar Kristrún­ar Frosta­dótt­ur að tvö­falda veiðigjöld á út­gerðir lands­ins. Ljóst er að sú gríðarlega skatt­lagn­ing mun hafa áhrif á miklu fleiri en fá­menn­an hóp út­gerðarmanna.

    Að loknu því spjalli sest Flóki Ásgeirs­son, lögmaður Blaðamanna­fé­lags Íslands niður með Stefáni Ein­ari og ræðir þann mögu­leika sem nú er uppi um að stjórn­skip­un­ar- og eft­ir­lits­nefnd þings­ins setji á lagg­irn­ar rann­sókn­ar­nefnd til þess að fara ofan í saum­ana á aðkomu Rík­is­út­varps­ins að hinu svo­kallaða byrlun­ar­máli.Flóki kem­ur fyr­ir hönd fé­lags­ins í viðtalið þar sem formaður þess, Sig­ríður Dögg Auðuns­dótt­ir, treyst­ir sér ekki á vett­vang til þess að ræða fyrri yf­ir­lýs­ing­ar sín­ar um málið.

    1 hr 33 min
  • #71. - Sykurpabbar í stuði og ráðherra sakaður um ósannindi

    Fram­kvæmda­stjóri Sam­taka fyr­ir­tækja í sjáv­ar­út­vegi seg­ir fjár­málaráðherra og at­vinnu­vegaráðherra halda fram ósann­ind­um í fram­setn­ingu sinni á fram­lögðum til­lög­um um hækk­un veiðigjalda.Millj­arðar á millj­arða ofan

    Seg­ir hún með ólík­ind­um að ráðherr­arn­ir haldi því fram að út­gerðin muni halda eft­ir óskert­um hlut af hagnaði sín­um eft­ir breyt­ing­arn­ar. Við blasi að það geti ekki verið þegar gjöld eru hækkuð um millj­arða á millj­arða ofan.

    Í viðtal­inu fer Heiðrún Lind einnig yfir það hvaða áhrif þess­ar áætlan­ir rík­is­stjórn­ar­inn­ar geta haft á fisk­vinnslu vítt og breitt um landið. Seg­ir hún að verið sé að færa kerfið í átt að því sem gert hef­ur verið í Nor­egi. Þar er fisk­vinnsl­an rík­is­styrkt, hún víða rek­in með tapi og gjaldþrot eru al­geng. Þá er stór hluti afl­ans sem að landi berst send­ur rak­leitt til ríkja á borð við Pól­land og Kína þar sem hann er full­unn­inn.

    Ásamt Heiðrúnu var fjölda stjórn­arþing­manna og ráðherra boðið til þátt­töku í umræðunni um vænt­an­leg­ar breyt­ing­ar á auðlinda­gjöld­um í sjáv­ar­út­vegi. Eng­inn þeirra átti hins veg­ar tök á því að mæta til leiks.

    Auk Heiðrún­ar Lind­ar mæta í þátt­inn þau Pat­rik Atla­son tón­list­armaður og Tinna Gunn­laugs­dótt­ir, leik­ari, leik­stjóri og fyrr­um þjóðleik­hús­stjóri. Þau ræða frétt­ir vik­unn­ar, Eddu-verðlaun­in þar sem Tinna hlaut heiður­sverðlaun ásamt eig­in­manni sín­um, Agli Ólafs­syni. Þá gaf Pat­rik út nýtt lag í morg­un sem ber hina virðulegu yf­ir­skrift, Syk­urpabbi.

    Í lok þátt­ar­ins mæt­ir á svæðið Jón Gunn­ar Jóns­son, fyrr­um for­stjóri Banka­sýslu rík­is­ins. Í liðinni viku voru þrjú ár frá því að ís­lenska ríkið losaði um ríf­lega 50 millj­arða hlut í Íslands­banka í útboði sem átti eft­ir að draga dilk á eft­ir sér. Svo stór­an raun­ar að Bjarni Bene­dikts­son sagði af  sér embætti fjár­mála- og efna­hags­ráðherra.

    Jón Gunn­ar vill meina að þarna hafi farið fram far­sæl­asta útboð Íslands­sög­unn­ar. En í þætt­in­um er sag­an að baki því rak­in, einnig rætt um nú­ver­andi fyr­ir­ætlan­ir stjórn­valda um að ljúka sölu á eft­ir­stæðum hlut sín­um í Íslands­banka. Þá er Jón Gunn­ar einnig spurður út í at­b­urðarás­ina sem leiddi til þess að Lands­bank­inn keypti trygg­inga­fé­lagið TM í heilu lagi, í trássi við vilja lang­stærsta eig­anda bank­ans, rík­is­sjóðs Íslands.

    1 hr 28 min
  • #70. - Fellir mál Ásthildar Lóu ríkisstjórnina? Ögurstund hjá Framsókn

    Ekk­ert kemst á dag­skrá þenn­an frétta­dag­inn annað en af­sögn barna- og mennta­málaráðherra. En hver verður eft­ir­leik­ur máls­ins? Er rík­is­stjórn­in í hættu? Hef­ur orðspor Íslands skaðast á er­lend­um vett­vangi?

    Svara við þess­um spurn­ing­um verður leitað á vett­vangi Spurs­mála þenn­an föstu­dag­inn. Til þess að ræða póli­tík­ina í mál­inu mæta þau til leiks, Diljá Mist Ein­ars­dótt­ir, þingmaður Sjálf­stæðis­flokks­ins og Snorri Más­son, þingmaður Miðflokks­ins.

    Lög­menn rýna í stöðuna

    Að lok­inni þeirri umræðu eru þeir vænt­an­leg­ir á vett­vang lög­menn­irn­ir Sig­urður G. Guðjóns­son og Árni Helga­son, sem einnig er varaþingmaður.

    Þeir ætla að ræða annað stórt mál sem skekið hef­ur ís­lenskt sam­fé­lag síðustu vik­ur og varðar einnig Ásthildi Lóu Þórs­dótt­ur, frá­far­andi ráðherra. Í ljós hef­ur komið að Ari­on banki af­henti henni og eig­in­manni henn­ar fast­eign í Garðabæ árið 2019 langt und­ir markaðsvirði. Hvaða áhrif hafa þær upp­lýs­ing­ar, meðal ann­ars á af­stöðu skatta­yf­ir­valda?

    Á Fram­sókn sér viðreisn­ar von?

    Í lok þátt­ar mun Guðni Ágústs­son, fyrr­ver­andi formaður Fram­sókn­ar­flokks­ins, mæta á vett­vang en þann 13. mars skrifaði hann grein þar sem hann kall­ar eft­ir end­ur­reisn Fram­sókn­ar­flokks­ins. Miðstjórn hans mun funda á Ak­ur­eyri um helg­ina og í viðtal­inu mun Guðni upp­lýsa hvað hann telji að þurfi að gera til þess að þessi elsti stjórn­mála­flokk­ur nái vopn­um sín­um að nýju.

    1 hr 33 min
  • #69. - Er Trump með plan? Er heimsstyrjöld í aðsigi?

    Á sama tíma og Don­ald Trump legg­ur tolla á ná­granna­ríki Banda­ríkj­anna, Kína og Evr­ópu­sam­bandið reyn­ir hann að toga Úkraínu­menn og Rússa að samn­inga­borðinu. Hann kall­ar eft­ir friði í Evr­ópu.

    Er Trump í rugl­inu?

    Tryggvi Hjalta­son nam hernaðar- og varn­ar­mála­fræði í Banda­ríkj­un­um og þá lauk hann einnig þriggja ára liðsfor­ingjaþjálf­un hjá Banda­ríkja­her. Hann hef­ur teiknað upp ólík­ar sviðsmynd­ir um það hvað Trump hygg­ist fyr­ir og hvaða ár­angri hann hef­ur í hyggju að ná þegar kem­ur að mál­efn­um Úkraínu, NATO en ekki síst bar­átt­unni um hernaðarlega yf­ir­burði á heims­sviðnu. Þar gera Kín­verj­ar sig sí­fellt lík­legri til þess að skáka Banda­ríkj­un­um.

    Dr. Ragn­ar Árna­son, pró­fess­or emer­it­us í hag­fræði við Há­skóla Íslands hef­ur að und­an­förnu fjallað ít­ar­lega um kosti og galla þess að Ísland gengi í Evr­ópu­sam­bandið. Hef­ur hann t.d. bent á að það sé tómt mál að tala um eina til­tekna hús­næðis­vexti á evru­svæðinu. Þar muni miklu milli ólíkra hag­kerfa.

    Hef­ur hann tek­ist nokkuð hart á við Dag B. Eggerts­son um þessi mál. Var þeim báðum boðið í þátt­inn, bæði í þess­ari viku og hinni fyrri og þáði Ragn­ar boðið. 

    Í frétt­um vik­unn­ar er rætt við tvo alþing­is­menn sem bera sitt­hvorn heiðurstitil­inn. Jón­ína Björk Óskars­dótt­ir er elsti nú­ver­andi þingmaður­inn en hún sit­ur á þingi fyr­ir Flokk fólks­ins. Ingvar Þórodds­son er þingmaður Viðreisn­ar og er hann yngst­ur þing­manna sem nú sitja.

    1 hr 34 min
  • #68. - Mega blaðamenn brjótast inn á heimili fólks?

    Hvar liggja mörk friðhelgi einka­lífs­ins og hvar tek­ur rétt­ur al­menn­ings til upp­lýs­inga­gjaf­ar við? Eva Hauks­dótt­ir, lögmaður Páls Stein­gríms­son­ar ræðir það í Spurs­mál­um. Og margt fleira er á dag­skrá.

    Rósa Guðbjarts­dótt­ir, alþing­ismaður og fyrr­um bæj­ar­stjóri í Hafnar­f­irði ræðir frétt­ir vik­unn­ar ásamt Birni Brynj­úlfi Björns­syni, fram­kvæmda­stjóra Viðskiptaráðs. Rósa hafði aðkomu að gerð kjara­samn­inga við kenn­ara og í þætt­in­um verður hún spurð út í meinta aðkomu Ásthild­ar Lóu Þór­halls­dótt­ur, mennta­málaráðherra að gerð samn­ing­anna og eins fram­göngu Heiðu Bjarg­ar Hilm­is­dótt­ur, for­manns Sam­taka ís­lenskra sveit­ar­fé­laga.

    Sú síðast­nefnda ein­angraði sig frá allri stjórn sam­tak­anna þegar hún sagðist reiðubú­in fyr­ir hönd Reykja­vík­ur að ganga til samn­inga við kenn­ara, jafn­vel þótt öll önn­ur sveit­ar­fé­lög lands­ins væru ekki til í að bjóða upp í þann dans. 

    Björn Brynj­ólf­ur kynnti fyrr í vik­unni ásamt sam­starfs­fólki sínu skýrslu um fjöl­miðlamarkaðinn og það hvernig Rík­is­út­varpið gín yfir öðrum fyr­ir­tækj­um á þeim markaði.

    Þá verður tali einnig vikið að nýj­um hagræðing­ar­til­lög­um sem rík­is­stjórn­in er kom­in með á sitt borð. Þar er stefnt að því að spara 70 millj­arða á næstu fimm árum. Það eru inn­an við 1% aðhaldsaðgerðir á hvert ár.

    Í þætt­in­um er einnig rætt við Álf­hildi Leifs­dótt­ur, sveit­ar­stjórn­ar­konu í Skagaf­irði og framá­konu í Vinstri­hreyf­ing­unni grænu fram­boði. Hún er afar ósátt við þær fyr­ir­ætlan­ir meiri­hlut­ans í sveit­ar­fé­lag­inu að selja tvö af tíu fé­lags­heim­il­um héraðsins. Hún ræðir þau mál og stöðu VG sem virðist rúst­ir ein­ar eft­ir það af­hroð sem flokk­ur­inn galt í síðustu alþing­is­kosn­ing­um.

    1 hr 26 min
  • #67. - Stjórnarskrárbrot, kjaraklípa og Trumpað ástand

    Svo virðist sem nýir kjara­samn­ing­ar við kenn­ara­stétt­ina muni draga al­var­leg­an dilk á eft­ir sér. Risa­samn­ing­ar sem gerðir voru við 85% vinnu­markaðar­ins í fyrra gætu kom­ist í upp­nám.

    Þetta má ráða af viðbrögðum aðila vinnu­markaðar­ins í kjöl­far þess að það spurðist út að kostnaður við kenn­ara­samn­ing­ana fyrr­nefndu væri met­inn á allt að 24% yfir fjög­urra ára tíma­bil. Í fyrra náðist sátt á vinnu­markaði með jafn löng­um samn­ingi sem skila átti ríf­lega 14% hækk­un að meðaltali.

    Sól­veig Anna Jóns­dótt­ir, formaður Efl­ing­ar hef­ur sterka skoðun á stöðunni sem kom­in er upp og er hún gest­ur Spurs­mála að þessu sinni. Einnig heyr­ist þungt hljóð í at­vinnu­rek­end­um en full­trúi þeirra, Sig­ríður Mar­grét Odds­dótt­ir, fram­kvæmda­stjóri Sam­taka at­vinnu­lífs­ins mun setj­ast við Spurs­mála­borðið ásamt Sól­veigu Önnu og greina stöðuna sem er í meira lagi viðkvæm.

    Að því loknu mun Helgi I. Jóns­son, fyrr­um hæsta­rétt­ar­dóm­ari ræða við Stefán Ein­ar um fram­kvæmd hinn­ar svo­kölluðu sam­fé­lagsþjón­ustu sem verið hef­ur hluti af refsi­vörslu­kerf­inu hér á landi allt frá ár­inu 1995. Seg­ir hann al­var­leg­ar brota­lam­ir á kerf­inu.

    Þá mun Al­bert Jóns­son, fyrr­um sendi­herra og alþjóðamálaráðgjafi for­sæt­is­ráðherra mæta til leiks og ræða stöðuna í Úkraínu­deil­unni og hvað Trump hygg­ist fyr­ir í því afar viðkvæma, og eld­fima máli.

    1 hr 39 min
  • #66. - Valdatafl í Valhöll og Jakob vísar í dularfullan klúbb

    Tvær fylk­ing­ar berj­ast um völd­in í Sjálf­stæðis­flokkn­um. Önnur að baki Áslaugu Örnu Sig­ur­björns­dótt­ur og hin að baki Guðrúnu Haf­steins­dótt­ur. Þær til leiks í Spurs­mál­um og svara krefj­andi spurn­ing­um.

    Sú stærsta þeirra hlýt­ur að vera hvernig þær telji sig geta aukið fylgi flokks­ins sem er nú áhrifa­laus, bæði á Alþingi Íslend­inga og í borg­ar­stjórn Reykja­vík­ur. Hvað munu þær gera öðru­vísi en Bjarni Bene­dikts­son, nái þær kjöri.

    Stefán Ein­ar ræðir við þær stöll­ur í sitt­hvoru lagi í afar áhuga­verðum þætti Spurs­mála þenn­an föstu­dag­inn. Þar eru þær einnig spurðar út í gagn­rýni sem komið hef­ur upp inn­an flokks og utan á störf þeirra á fyrri tíð.

    Í frétt­um vik­unn­ar er margt og mikið helst. Frétta­hauk­arn­ir Jakob Bjarn­ar Grét­ars­son og Jón G. Hauks­son fara yfir helstu frétt­ir, sam­ein­ing­ar ­hug­mynd­ir Ari­on banka og Íslands­banka, stöðuna í borg­ar­stjórn og á stjórn­ar­heim­il­inu þar sem Kristrún Frosta­dótt­ir ræður ríkj­um.

    2 hr 6 min
  • #65. - Tækifæri á Grænlandi og Jens Garðar í varaformanninn?

    Liggja stór tæki­færi fyr­ir Íslend­inga á Græn­landi. Því svar­ar gull­leit­armaður­inn Eld­ur Ólafs­son í nýj­asta þætti Spurs­mála en hann ritaði afar áhuga­verða grein um málið sem birt var á miðopnu Morg­un­blaðsins nú í morg­un.

    Mun Jens Garðar bjóða sig fram?

    Jens Garðar Helga­son verður einnig spurður út í mögu­legt vara­for­manns­fram­boð í Sjálf­stæðis­flokkn­um sem hann hef­ur títt verið orðaður við að und­an­förnu en í lok mánaðar­ins skunda Sjálf­stæðis­menn í Laug­ar­dals­höll og kjósa þar nýja for­ystu fyr­ir flokk­inn.

    Ásamt Jens Garðari ræðir frétt­ir vik­unn­ar Brynja Dan Gunn­ars­dótt­ir, odd­viti Fram­sókn­ar­flokks­ins í Garðabæ. Hún er eig­andi Extra-lopp­unn­ar sem síðustu sjö árin hef­ur gert það gott á markaði með notaðan fatnað.

    Í lok þátt­ar ræðir Stefán Ein­ar við lög­fræðing­inn Ein­ar Geir Þor­steins­son sem sér ým­is­legt at­huga­vert við þau mála­lok sem nú blasa við í hinu svo­kallaða styrkja­máli þar sem Flokk­ur fólks­ins fékk greidd­ar 240 millj­ón­ir króna í trássi við lög. Hann tel­ur lög­fræðiálit sem fjár­mála- og efna­hags­ráðherra fékk í hend­ur ekki rétta leið til að út­kljá málið.

    1 hr 25 min
  • #64. - Sjallar í sjálfheldu og afarkostir innan ríkisstjórnarsamstarfs

    Hild­ur Björns­dótt­ir, leiðtogi Sjálf­stæðis­flokks­ins í borg­ar­stjórn virðist eiga fáa kosti í til­raun til að mynda nýj­an meiri­hluta. Hún er til svars á vett­vangi Spurs­mála.

    Um liðna helgi var til­raun gerð til þess að mynda nýj­an meiri­hluta Sjálf­stæðis­flokks, Fram­sókn­ar­flokks, Flokks fólks­ins og Viðreisn­ar.

    Þær hug­mynd­ir runnu út í sand­inn þegar ljóst varð að Flokk­ur fólks­ins hef­ur úti­lokað sam­starf við Sjálf­stæðis­flokk­inn.

    Hvaða meiri­hluta­mynst­ur er þá í mynd­inni?

    Hild­ur fer yfir stöðuna í Spurs­mál­um í dag.

    Áður en kem­ur að viðtal­inu við hana mæta þeir á svæðið, álits­gjaf­arn­ir og reynslu­bolt­arn­ir, Björn Ingi Hrafns­son, fyrr­um odd­viti Fram­sókn­ar í borg­ar­stjórn og nú­ver­andi aðstoðarmaður for­manns Miðflokks­ins og Gísli Freyr Val­dórs­son, stjórn­andi Þjóðmála. Þeir eru gjörkunn­ug­ir því völ­und­ar­húsi sem valda­menn í borg­inni reyna nú að feta í átt að nýj­um meiri­hluta.

    51 min
  • #63. - Lífshættuleg byrlun og stormar í vatnsglasi

    Í þættinum fer Páll yfir at­b­urðarás­ina sem nærri dró hann til dauða en hann rek­ur einnig hina tor­sóttu leið sem hann hef­ur þurft að feta til þess að fá úr því skorið hverj­ir það voru sem brut­ust inn í sím­ann og komu í kjöl­farið gögn­um úr inn­brot­inu á Þórð Snæ Júlí­us­son, þáver­andi rit­stjóra Kjarn­ans og Aðal­stein Kjart­ans­son, blaðamann á Stund­inni.

    Áður en Páll mæt­ir til leiks fer Stefán Ein­ar yfir frétt­ir vik­unn­ar með þeim Ólöfu Skafta­dótt­ur, stjórn­anda hlaðvarps­ins Komið gott, og Þorgrími Sig­munds­syni, þing­manni Miðflokks­ins.

    Þar er af mörgu að taka, meðal ann­ars vær­ing­ar inn­an borg­ar­stjórn­ar og nú heyr­ist víða pískrað í horn­um að verið sé að máta sam­an nýja meiri­hluta til þess að stýra borg­inni fram á vorið 2026 en þá verður að nýju gengið til sveit­ar­stjórn­ar­kosn­inga.

    1 hr 36 min

About Spursmál

From the publisher's feed

Spursmál er nýr og beinskeyttur umræðuþáttur á mbl.is

Best of Spursmál

Ranked by our users in the last 21 days

More shows like Spursmál

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

470 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

92 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

18 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

17 Listeners

Grjótkastið by Björn Ingi Hrafnsson

Grjótkastið

6 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

69 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

29 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

29 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

22 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners