Spursmál

Spursmál

By Ritstjórn MorgunblaðsinsNewsPolitics
Download on the App Store
  • Favorites

    24

    Followers

  • Typical duration

    92 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

Spursmál episodes

  • #88. - 1.607 milljarðar, olíuævintýri og misgóðir lífeyrissjóðir

    Gæti ríkissjóður hagnast um þúsundir milljarða á því ef olíuvinnsla hefst á Drekasvæðinu?

    Það fullyrða þeir Heiðar Guðjónsson og Haukur Óskarsson en þeir hafa í nærri tvo áratugi unnið að því að koma olíuleit og -vinnslu af stað á svæðinu. Þeir eru gestir Spursmála að þessu sinni og segja verkefnið að öllu óhættulaust fyrir ríkissjóð.

    En hver er hættan á umhverfisslysi og hversu langan tíma tæki að koma verkefni af þessu tagi á koppinn. Svara við þessu öllu verður leitað í þættinum.

    Áður en þeir mæta til leiks etja kappi þær Arna Lára Jónsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar og Sigríður Á. Andersen, þingmaður Miðflokksins. Arna Lára er formaður efnahags- og viðskiptanefndar þingsins og hún situr sömuleiðis í fjárlaganefnd.

    Sigríður situr í velferðarnefnd þar sem kostnaðarþyngstu þættir fjárlaga liggja. Og það er einmitt af þeirri ástæðu sem þær eru kvaddar á vettvang. Til þess að ræða fjárlögin sem nú gera ráð fyrir því að útgjöld ríkissjóðs muni nema ríflega 1.600 milljörðum króna á næsta ári.

    Í lok þáttar verður farið yfir nýja fjártæknilausn fyrirtækisins Aurbjargar þar sem almenningi gefst kostur á að skilja betur en áður hvernig lífeyriskerfið virkar og hvað það þýðir að greiða iðgjöld sín í þennan sjóð fremur en annan. Gríðarlega miklu getur munað á ávinnslunni eftir sjóðum og breyturnar eru margar.

    Það eru þau Ásdís Arna Gottskálksdóttir, framkvæmdastjóri fyrirtækisins og Baldvin Egill Baldvinsson fjártæknisérfræðingur, sem fara yfir málið.

    1 hr 40 min
  • Manifestó eins áhrifamesta manns 20. aldarinnar

    Stefán Einar og Einar Sveinbjörnsson veðurfræðingur ræða um bók ágústmánaðar í Bókaklúbbi Spursmála: Líf á jörðinni okkar eftir David Attenborough. Í bókinni eru lofstlagsbreytingar og þau áhrif sem mannfólkið hefur á lífríki jarðar í stóru hlutverki.

    Einar er einn af okkar reyndustu veðurfræðingum og hefur mikla og góða yfirsýn yfir málaflokkinn.

    41 min
  • # 87. - Yfirvofandi stríðsátök, aftaka í Utah, Skatturinn sér um sína og Vinnslustöð í vanda

    Heimur á heljarþröm myndu einhverjir segja þegar stjórnmálamenn eru teknir af lífi í beinni útsendingu og Rússar herða tökin gagnvart Evrópu allri. Móta þarf nýja varnarmála stefnu fyrir Ísland.

    Þetta er meðal þess sem rætt er á vettvangi Spursmála í dag þar sem tveir fyrrverandi utanríkisráðherrar, þær Lilja D. Alfreðsdóttir og Þórdís Kolbrún Reykfjörð Gylfadóttir mæta og ræða nýlegan yfirgang Rússa gagnvart Pólverjum, morðið á Charlie Kirk og tillögur þingmannahóps að mótun nýrrar varnarmálastefnu fyrir Ísland.

    Þá mæta þeir Skafti Harðarson og Róbert Bragason frá Samtökum skattgreiðenda og kynna nýtt mælaborð sem samtökin hafa komið á laggirnar. Það varpar ljósi á útgjöld ríkissjóðs tvo áratugi aftur í tímann. Þar kennir sannarlega ýmissa grasa og segja þeir félagar að mikil og augljós tækifæri séu til þess að bæta ríkisreksturinn.

    Að því viðtali loknu sest Sigurgeir Brynjar Kristgeirsson, Binni í Vinnslustöðinni niður með Stefáni Einari og fer yfir þá stöðu sem nú er komin upp í Vestmannaeyjum í kjölfar þess að fyrirtæki hans sagði upp 50 starfsmönnum í fiskvinnslu. Segir Binni að það sé afleiðing af hækkun veiðigjalda á útgerðarfyrirtæki landsins en Daði Már Kristófersson, fjármálaráðherra og Hanna Katrín Friðriksson, atvinnuvegaráðherra hafa sagt ástæðurnar allt aðrar.

    1 hr 50 min
  • # 86. - Snorri í gapastokknum og skólakerfi og laxeldi í lamasessi?

    Sí­fellt færri ung­menni geta lesið sér til gagns og veiðirétt­ar­haf­ar eru farn­ir að stífla laxveiðiár af ótta við slysaslepp­ing­ar lax­eld­is­ins. Hvar er í gangi í ís­lensku sam­fé­lagi? Þetta og fleira verður til umræðu í nýj­asta þætti Spurs­mála.

    Þegar horft er yfir umræðuna um ís­lenska mennta­kerfið mætti halda að allt hafi farið úr­skeiðis á síðustu árum. Magnús Þór Jóns­son, formaður Kenn­ara­sam­bands­ins er ekki sam­mála því en hann viður­kenn­ir þó að margt hefði mátt bet­ur fara.

    Hann mæt­ir á vett­vang Spurs­mála og ræðir nýja mennta­stefnu og aðal­nám­skrá seg­ir einn af pró­fess­or­um Há­skóla Íslands seg­ir að sé upp­full af lyg­um.

    Þá mæt­ir Daní­el Jak­obs­son, for­stjóri Arctic Fish á Ísaf­irði í þátt­inn og svar­ar fyr­ir slysaslepp­ing­ar fyr­ir­tæk­is­ins í Dýraf­irði sem urðu til þess að veiðirétt­ar­haf­ar í Hauka­dalsá brugðu á það ráð að stífla ána í því skyni að koma í veg fyr­ir óæski­lega fisk­gengd þar upp.

    Tel­ur Jakob að fisk­eldið, sem hef­ur vaxið gríðarlega á síðustu árum, bæði á Vest­fjörðum og fyr­ir aust­an, eigi sér framtíð á Íslandi?

    Áður en Magnús Þór og í kjöl­farið Daní­el mæta á vett­vang ætla þau Andrea Ró­berts­dótt­ir, fram­kvæmda­stjóri Fé­lags kvenna í at­vinnu­líf­inu og Ein­ar Þor­steins­son, fyrr­ver­andi borg­ar­stjóri og nú borg­ar­full­trúi Fram­sókn­ar­flokks­ins að ræða frétt­ir vik­unn­ar. Þar er víst að margt for­vitni­lega muni bera á góma.

    2 hr 32 min
  • #85. - Vendingar í njósnamáli og þinginu þjófstartað

    Spurs­mál hefja nú göngu sína á mbl.is að nýju eft­ir stutt sum­ar­leyfi. Í upp­hafi fyrsta þátt­ar verður upp­lýst um nýj­ar vend­ing­ar í njósna­máli PPP ehf. sem teyg­ir sig djúpt inn í ís­lenskt stjórn­kerfi.

    Í frétt­um vik­unn­ar er rætt við þau Hjörv­ar Hafliðason eða dr. Foot­ball eins og hann er gjarn­an nefnd­ur og Maríu Sigrúnu Hilm­ars­dótt­ur, frétta­konu á Rík­is­sjón­varp­inu.

    Í síðari hluta þátt­ar­ins er rætt við þing­flokks­for­menn þriggja stærstu flokk­anna sem sæti eiga á Alþingi. Þau Guðmund Ara Sig­ur­jóns­son, frá Sam­fylk­ingu, Sig­mar Guðmunds­son, frá Viðreisn og Hildi Sverr­is­dótt­ur frá Sjálf­stæðis­flokki.

    Spurs­mál verða á dag­skrá alla föstu­daga kl. 14 í vet­ur og þar verður farið vítt og breitt yfir sviðið og Ísland í brenni­depli.

    1 hr 48 min
  • Fullveldið dýrmætt á ögurstundu: Bókaspjall

    Það reynd­ist afar mik­il­vægt fyr­ir ís­lenska ríkið að nýta full­veld­is­rétt sinn þegar kröfu­haf­ar föllnu bank­anna sóttu á yf­ir­völd. Þetta seg­ir Sig­urður Már Jóns­son í viðtali á vett­vangi Bóka­klúbbs Spurs­mála.

    Í liðnum mánuði var bók­in Af­nám haft­anna - samn­ing­ar ald­ar­inn­ar? eft­ir Sig­urð Má tek­in fyr­ir á vett­vangi klúbbs­ins. Til­efnið var það að ný­lega voru 10 ár liðin frá því að risa­vaxn­ir samn­ing­ar náðust við slita­bú föllnu viðskipta­bank­anna sem leiddu til af­náms fjár­magns­hafta hér á landi. Samn­ing­arn­ir urðu einnig til þess að lækka skuld­ir rík­is­sjóðs um hundruð millj­arða króna.

    42 min
  • Persónunjósnir og aftökur Stóra bróður nútímans - Samtal við Kára Stefánsson um 1984.

    Hús­fyll­ir var á Vinnu­stofu Kjar­vals á dög­un­um þegar ríf­lega 150 klúbbmeðlim­ir mættu til leiks á þriðja viðburð Bóka­klúbbs Spurs­mála.

    Þar sett­ist Kári Stef­áns­son, stofn­andi Íslenskr­ar erfðagrein­ing­ar, niður með Stefáni Ein­ari Stef­áns­syni, ásamt klúbbmeðlim­um, og ræddi efni bók­ar­inn­ar 1984 eft­ir Geor­ge Orwell á hisp­urs­laus­an og líf­leg­an hátt eins og hans er von og vísa.

    Viðraði Kári til að mynda hug­mynd­ir um hvar hægt sé að sjá birt­ing­ar­mynd­ir af Stóra bróður í heim­in­um í dag. Er hann sann­færður um að víða glitti í það fyr­ir­bæri með bein­um eða óbein­um hætti.

    Bók­in var bók mánaðar­ins í Bóka­klúbbi Spurs­mála í júní­mánuði.

    Sjálf­ur las Kári bók­ina fyrst fyr­ir nærri hálfri öld síðan en efni henn­ar hafði áhrif á Kára, eins og fleiri, enda um eina áhrifa­mestu bók 20. ald­ar bók­mennta að ræða. Hef­ur hún frá fyrstu út­gáfu haft mót­andi áhrif á hug­mynd­ir manna um sam­spil rík­is­valds og ein­stak­lings­frels­is sem vel er hægt að heim­færa á sam­tím­ann sem við lif­um nú. 

    Að mati Kára er bygg­ir saga Orwells á ýkj­um. Raun­ar þykir hon­um sag­an að mörgu leyti frá­leit því hún geng­ur eins langt og hugs­ast get­ur í því að lýsa sam­fé­lagi sem er í helj­ar­greip­um alræðis og svipt sjálf­stæðri hugs­un og frels­inu um leið. Sem í margra eyr­um kann reynd­ar að hljóma kunnu­lega. 

    Það bar þó margt á góma í sam­tali þeirra Kára og Stef­áns Ein­ars. Má þar helst nefna upp­lif­un hans og reynslu af alræðis­sam­fé­lög­um dags­ins í dag, kór­ónu­veirufar­ald­ur­inn, stjórn­ar­farið í Kína, rík­is­valdið hér á landi og lýs­ing­ar hans af sam­skipt­um sem hann átti við þáver­andi heil­brigðisráðherra, Svandísi Svavars­dótt­ur. Sagði hann að þar hafi stál­in stinn mæst en ein­hverj­ir myndu kannski frek­ar segja að þar hafi skratt­inn hitt ömmu sína - dæmi nú hver fyr­ir sig. 

    Á annað þúsund manns hafa skráð sig í klúbb­inn á þeim fjór­um mánuðum sem hann hef­ur verið starf­andi og fjölg­ar þar enn. Nú í júlí­mánuði sitja klúbb­fé­lag­ar við og lesa bók Sig­urðar Más Jóns­son­ar, Af­nám haft­anna: samn­ing­ar ald­ar­inn­ar? sem er bók þessa mánaðar á vett­vangi klúbbs­ins. Af því til­efni fæst hún á sér­stöku til­boði í versl­un­um Penn­ans Ey­munds­son. 

    Hægt er að skrá sig í klúbb­inn með því að smella hér.

    Sam­starfsaðilar Bóka­klúbbs Spurs­mála eru Sam­sung, Kerec­is, Brim og Penn­inn.

    1 hr 29 min
  • #84. - Kjarnorkuástand á þinginu

    For­seti Alþing­is hef­ur beitt kjarn­orku­ákvæði þing­skap­ar­laga gegn minni­hlut­an­um á þingi. Starf­semi þess er í upp­námi í kjöl­farið. Aukaþátt­ur af Spurs­mál­um fer í að greina hina al­var­legu stöðu.

    Átök milli meiri­hluta og minni­hluta á þingi tóku nýja og óvænta stefnu í kjöl­far þess að Hild­ur Sverr­is­dótt­ir, þing­flokks­formaður Sjálf­stæðis­flokks­ins og einn af vara­for­set­um Alþing­is, frestaði þing­fundi á tólfta tím­an­um síðastliðið miðviku­dags­kvöld.

    Í kjöl­farið flutti Kristrún Frosta­dótt­ir, for­sæt­is­ráðherra, for­dæma­laust ávarp þar sem hún lýsti því yfir að meiri­hluti þing­heims hefði tek­ist á hend­ur það hlut­verk að verja ís­lenska lýðveldið gegn minni­hlut­an­um.

    Hild­ur Sverr­is­dótt­ir mæt­ir í Spurs­mál og ræðir aðdrag­and­ann að þess­ari at­b­urðarás og eft­ir­leik henn­ar.

    Reynslu­bolt­ar kallaðir á vett­vang

    Að loknu sam­tali við Hildi mæta þeir Guðmund­ur Árni Stef­áns­son, vara­formaður Sam­fylk­ing­ar­inn­ar og fyrr­ver­andi ráðherra og Ein­ar K. Guðfinns­son fyrr­ver­andi ráðherra og for­seti Alþing­is.

    Þeir hafa marga fjör­una sopið í hinni ís­lensku póli­tík og þekkja sög­una langt aft­ur.

    Fróðlegt verður að heyra þeirra álit á þeim at­b­urðum sem nú hafa orðið og virðast ætla að móta alla stjórn­má­laum­ræðu í land­inu á kom­andi miss­er­um.

    Kristrúnu Frosta­dótt­ur var boðið í þátt­inn og gerð til­raun til þess að hafa sam­band við hana sjálfa og aðstoðarmann henn­ar. Það bar eng­an ár­ang­ur.

    1 hr 27 min
  • #83. - Allt í hers höndum við Austurvöll

    Það er í meira lagi raf­magnað and­rúms­loftið á Alþingi þessa sól­ar­hring­ana. Rík­is­stjórn­in er ekki að koma sín­um mik­il­væg­ustu mál­um í gegn og óvíst er hvenær þing get­ur farið í sum­ar­frí.


    Í nýjasta þætti Spurs­mál­a, og jafnframt þeim síðasta fyrir sumarfrí, er rætt við þrjá þing­menn stjórn­ar­and­stöðunn­ar og ljósi varpað á það hvernig staðan gæti þró­ast næstu sól­ar­hring­ana. En einnig hvernig þing­vet­ur­inn, sem teygðist inn á mitt sum­ar, hef­ur þró­ast.


    Guðrún Haf­steins­dótt­ir, formaður Sjálf­stæðis­flokks­ins, mæt­ir á vett­vang ásamt Bergþóri Ólasyni þing­flokks­for­manni Miðflokks­ins og Ingi­björgu Isak­sen, formanni þing­flokks Fram­sókn­ar­flokks­ins.


    Spursmál verða aftur á dagskrá á mbl.is föstudaginn 15. ágúst klukkan 14.

    1 hr 3 min
  • #82. - Heimsstyrjöld ólíkleg, borgin skrefuð og allir á Swingers club

    Ólík­legt er að átök­in milli Írans og Ísra­els breiðist út í Mið-Aust­ur­lönd­um. Fyrr­nefnda ríkið virðist ein­angrað og án vina. Hins veg­ar er Banda­ríkja­for­seta vandi á hönd­um heima fyr­ir í ljósi þeirra yf­ir­lýs­inga sem hann hef­ur áður gefið um að hann vilji forðast að Banda­rík­in drag­ist inn í átök í fjar­læg­um álf­um. 

    Þetta er mat Al­berts Jóns­son­ar, fyrr­ver­andi sendi­herra Íslands í Banda­ríkj­un­um. Hann er gest­ur Spurs­mála þenn­an föstu­dag­inn og ræðir hin skæðu átök sem nú standa yfir milli Ísra­els og Íran.

    Í þætt­in­um er einnig rætt við Sig­urð Boga Sæv­ars­son, blaðamann á Morg­un­blaðinu, sem fyr­ir þrem­ur árum tók að ganga göt­ur Reykja­vík­ur og skrá hjá sér um­ferð þá. Fyrr í júní lauk hann svo við að ganga þær all­ar. Í viðtal­inu upp­lýs­ir Sig­urður Bogi hversu marg­ar göt­urn­ar eru og er ekki ólík­legt að ein­hverj­um komi á óvart hversu marg­ar göt­ur prýða land Reykja­vík­ur.

    Frétt­ir vik­unn­ar eru svo ekki langt und­an og á vett­vang mæta þau Sig­mar Vil­hjálms­son, at­hafnamaður í Minig­arðinum og víðar, og Áslaug Arna Sig­ur­björns­dótt­ir, alþing­ismaður Sjálf­stæðis­flokks­ins. Hún legg­ur senn í vík­ing til Banda­ríkj­anna þar sem hún hyggst setj­ast á skóla­bekk. Þrátt fyr­ir það er póli­tík­in ekki langt und­an og umræðurnar fóru um víðan völl. Meðal annars að skemmtilegum stað í NY sem ber nafnið Swingers club.

    1 hr 38 min

About Spursmál

From the publisher's feed

Spursmál er nýr og beinskeyttur umræðuþáttur á mbl.is

Best of Spursmál

Ranked by our users in the last 21 days

More shows like Spursmál

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

470 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

92 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

18 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

17 Listeners

Grjótkastið by Björn Ingi Hrafnsson

Grjótkastið

6 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

69 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

29 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

29 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

22 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners