Spursmál

Spursmál

By Ritstjórn MorgunblaðsinsNewsPolitics
Download on the App Store
  • Favorites

    24

    Followers

  • Typical duration

    92 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

Spursmál episodes

  • Bókaspjall: Við verðum að tala um Xi

    Hvert setur kínverski drekinn stefnuna? Er hætt við að Xi Jinping muni fyrirskipa næstöflugasta her í heimi að ráðast inn í Taívan? Þetta bar á góma á vettvangi Bókaklúbbs Spursmála.

    Í síðustu viku stóð klúbburinn fyrir samtali um bók Michaels Dillon, We need to talk about Xi, en hún var til umfjöllunar í októbermánuði.

    Þátttaka á fundinum var afar góð og voru um 80 gestir á Vinnustofu Kjarvals meðan á umræðunni stóð.

    Þar mættu til leiks þeir Guðlaugur Þór Þórðarson, fyrrverandi utanríkisráðherra og Magnús Björnsson, einn helsti sérfræðingur Íslands í málefnum Kína.

    Fór umræðan vítt og breitt og beindist meðal annars að því hvaða stöðu kínverska stórveldið hyggst taka sér á heimssviðinu á komandi áratugum.

    Telur Magnús það afar ólíklegt að Kínverjar láti til skarar skríða. Ráði þar kalt hagsmunamat en meðal annars þær ófarir sem Rússar hafa upplifað í innrásarstríði sínu í Úkraínu.

    1 hr 9 min
  • # 96. - Skipt um hjarta án snertingar

    Tæp tvö ár eru liðin frá því að Björn Zoëga tók við stjórn konunglega sjúkrahússins í Sádi-Arabíu. Þar er verið að brjóta blað í skurðaðgerðum með róbótum en einnig á sviði krabbameinslækninga.

    Björn er gestur Spursmála þennan föstudaginn og ræðir meðal annars reynsluna sem hann hefur öðlast í fjarlægu landi en einnig hvernig  staðan í íslensku heilbrigðiskerfi blasi við honum, nú þegar hann er hættur sem stjórnarformaður Landspítalans.

    Í þætti dagsins er einnig rætt við borgarfulltrúana Líf Magneudóttur hjá VG og Magneu Gná Jóhannsdóttur, sem situr í borgarstjórn fyrir Framsóknarflokkinn.

    Þær hafa afar ólíka sýn á stöðu borgarsjóðs, skipulagsmál og margt fleira. Von er á líflegri umræðu milli þeirra nú þegar styttist óðum í sveitarstjórnarkosningar.

    1 hr 35 min
  • # 95. - Ríkislögreglustjóri valtur í sessi og ríkisborgaralottóið

    Ríkislögreglustjóri kveinkar sér undan hallarekstri en sólundar fjármunum almennings í rándýrar allsherjarráðgjöf. Á sama tíma er Landspítalanum gert erfitt um vik að ráða fólk til starfa.

    Þeir mæta til leiks Árni Helgason, lögmaður, stjórnmálamaður og rithöfundur og Andrés Magnússon, blaðamaður á Morgunblaðinu og ræða helstu fréttir vikunnar. Þar bera mál ríkislögreglustjóra hátt en einnig ítarleg skýrsla um helstu embættismannakerfi veraldarsögunnar þar sem rök eru færð fyrir því að kjörnir fulltrúar eigi að hafa sem minnst með stjórn landsins að gera.

    Þá setjast þeir einnig niður á Spursmálavettvangi samstarfsmennirnir og mótherjarnir í þinginu, Víðir Reynisson, formaður allsherjar- og menntamálanefndar og Jón Pétur Zimsen, varaformaður hennar.

    Þeir komu báðir að ákvörðun í sumar sem leið sem leiddi til þess að bandaríska gjörgæsluhjúkrunarfræðingnum, Joanne Blank, var neitað um ríkisborgararétt. Hún talar íslensku og hefur haft tengsl við landið allt frá árinu 1990 þegar hún kom hingað til lands sem skiptinemi. Hún starfar á gjörgæsludeild Landspítalans í Fossvogi þar sem veikustu skjólstæðingar spítalans liggja.

    Í lok þáttar mætir svo Runólfur Pálsson, forstjóri Landspítalans og ræðir einmitt mönnunarmál á þessum stærsta og einhverjum allra mikilvægasta vinnustað landsins. Hann ræðir meðal annars um mönnunarmál á spítalanum en einnig nýja Landspítalann sem tekur á sig æ skýrari mynd við Hringbraut.

    2 hr 12 min
  • #94. - Hamfarir á Grundartanga og meint bakslag

    Í þættinum verður birt brot úr viðtali við bandarískan gjörgæsluhjúkrunarfræðing, Joanne Blank að nafni, sem starfað hefur á Landspítalanum undanfarin ár. Hún sótti um ríkisborgararétt hér á landi í fyrra en Alþingi ákvað að hafna beiðninni. Nánar verður auk þess fjallað um mál hennar í sunnudagsblaði Morgunblaðsins.

    Þá mæta á vettvang þingmennirnir Eiríkur Björn Björgvinsson, varaformaður atvinnuveganefndar þingsins og þingmaður Viðreisnar og Ólafur Adolfsson þingflokksformaður Sjálfstæðisflokksins. Þeir fara yfir stöðuna sem upp er komin á Grundartanga eftir að mikilvægur búnaður skemmdist hjá Norðuráli en bilunin mun hafa gríðarleg áhrif á afkastagetu álversins á komandi mánuðum og þar með á útflutningstekjur Íslands.

    Í samtali við þá er einnig rætt um þær skattahækkanir sem ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur hefur ráðist í og hvaða áhrif þær aðgerðir munu hafa á atvinnulífið í landinu. Þá verður einnig rætt um fyrirhugaðar breytringar á búvörulögum en þungt hljóð er í bændum víða um land vegna þeirra.

    Í fréttum vikunnar er rætt við þær Hlédísi Mareni Guðmundsdóttur, félagsfræðing og fyrrverandi blaðamanna og Elín Karlsdóttir, varaformann Sambands ungra framsóknarmanna og læknanema.

    Þær munu ræða hið meinta bakslag sem mörgum hefur orðið tíðrætt um í tengslum við jafnréttisbaráttuna hér á landi. Þá verður drepið á umræðu um íslenskukennslu í skólakerfinu hér á landi og stöðu Miðflokksins og Framsóknar.

    1 hr 28 min
  • #93. - Dæmdur saklaus og uppgjör við bensínstöðvarlóðir

    Steinþór Gunnarsson var dæmdur í fangelsi, bæði í héraði og af Hæstarétti. Framkvæmd var húsleit hjá honum og hann handtekinn fyrir framan son sinn. Að lokum kom í ljós að hann hafði engin lög brotið.

    Steinþór rekur sögu sína í dæmalausu viðtali á vettvangi Spursmála í dag þar sem ekkert er dregið undan.Listamenn og fréttir vikunnar

    Þá mæta á vettvang listamennirnir Magnús Jóhann Ragnarsson, píanóleikari og tónskáld og Kjartan Logi Sigurjónsson, grínisti. Þeir fara yfir fréttir vikunnar en ræða einnig áhugaverð verkefni sem þeir hafa unnið að á síðustu misserum.

    Þá takast þau á um hina umdeildu lóðasamninga sem Reykjavíkurborg gerði á sínum tíma við olíufélögin stóru, þau Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins í borginni og Dagur B. Eggertsson, fyrrverandi borgarstjóri og núverandi alþingismaður.

    Á sínum stað er svo auðvitað yfirferð Ásthildar Hannesdóttur á stjórnmálunum eins og þau birtast okkur á samfélagsmiðlum. Þar er engin tæpitunga töluð.

    Hvað gerði borgin við lóðirnar?

    2 hr 35 min
  • Bókaspjall á Kjarval: Hagfræði í hnotskurn

    Bók septembermánaðar í Bókaklúbbi Spursmála var Hagfræði í hnotskurn, eftir Henry Hazlitt, klassískt rit um málefni sem varðar alla. Af því tilefni settist Stefán Einar niður með Ásdísi Kristjánsdóttur hagfræðingi og bæjarstjóra í Kópavogi til að ræða um bókina og hagfræðina í víðum skilningi.

    Samtalið var hljóðritað þann 24. september í Fantasíusalnum á Vinnustofu Kjarvals.

    1 hr 5 min
  • #92. - Söguleg vika, átök í Kópavogi og gerræði utanríkisráðherra

    Í fréttum vikunnar er rætt við fjölmiðlakonuna Sunnu Sæmundsdóttur og Björn Inga Hrafnsson, aðstoðarmann formanns Miðflokksins. Þau eru öllum hnútum kunnug í íslensku þjóðlífi en ræða einnig nýjan friðarverðlaunahafa Nóbels, friðarsamninga fyrir botni Miðjarðarhafs, brottfall verka Halldórs Kiljan Laxness úr skólakerfinu og versnandi efnahagshorfur.

    Hver verður kjörinn nýr varaformaður Miðflokksins á landsþingi hans á sunnudag?

    Þá mætir Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri í Kópavogi á vettvang Spursmála og svarar gagnrýni BSRB á hið svokallaða Kópavogsmódel sem innleitt var árið 2023 og miðar að því að bæta þjónustu við leikskólabörn í bænum. Nýverið gaf Varða, rannsóknarstofnun vinnumarkaðarins út rannsókn kynjafræðingsins dr. Sunnu Símonardóttur sem varpar ljósi á óánægju 20 foreldra í Kópavogi með þær breytingar sem innleiddar hafa verið á kerfinu.Að lokum sest hæstaréttarlögmaðurinn Sigurður G. Guðjónsson í settið og ræðir hreint ótrúlega stöðu sem iðnfyrirtækið Vélfag á Akureyri er komið í vegna þvingunaraðgerða sem Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir, utanríkisráðherra hefur gripið til gegn fyrirtækinu. 

    1 hr 44 min
  • #91. - Frekari vendingar eftir fall Play

    Myndin er tekin að skýrast betur eftir fall flugfélagsins Play. Í dag er vika liðin frá gjaldþroti þess. En áhrifa fallsins gætir áfram og inngrip stjórnvalda kann að hafa ófyrirséðar afleiðingar.Viðmælendurnir þekkja vel til flugrekstrar en þó úr sitthvorri áttinni. Það eru þeir Steinn Logi Björnsson, fyrrverandi framkvæmdastjóri hjá Icelandair og forstjóri og eigandi Bluebird, auk Sveins Andra Sveinssonar, sem er annar tveggja skiptastjóra þrotabús WOW air.

    39 min
  • #90. - Umræða í ójafnvægi og enn eitt flugfélagið geispar golunni

    Gjaldþrot Play setti mikinn svip á samfélagsumræðuna í vikunni og ljóst að fall flugfélagsins er að hafa mikil áhrif á efnahagslífið í heild. Í nýjasta þætti Spursmála mæta til leiks tveir öflugir menn til að rýna í stöðuna en það eru þeir Jens Bjarnason forstöðumaður hjá Icelandair og Þórður Gunnarsson hagfræðingur.Þá verður umfjöllun um listamannalaun haldið áfram í þættinum en sú umræða hefur verið ansi lífleg í vikunni eftir að fjallað var um listamannalaunin í Spursmálum í síðustu viku. Metsöluhöfundurinn Stefán Máni Sigþórsson mætir í settið til að ræða kerfi listamannalauna sem hann hefur verið mjög gagnrýninn á, en einnig ræðir hann nærri þriggja áratugalangan feril sinn á sviðinu.

    1 hr 25 min
  • #89. - Baráttan um valdastóla í sveitarstjórnum og Evrópumálin krufin

    Margir gera sig líklega í baráttunni um valdastólana í sveitarstjórnum landsins. Nafn Katrínar Júlíusdóttur hefur verið nefnt í því sambandi. Hún mætir í Spursmál ásamt Björgu Magnúsdóttur, fyrrverandi aðstoðarmanni Einars Þorsteinssonar, þáverandi borgarstjóra. Björg er nú gengin til liðs við Viðreisn og er fastlega orðuð við oddvitaembættið í þeim flokki á vettvangi borgarinnar.Þá verða Evrópumálin rædd en þau hafa fengið byr undir báða vængi í kjölfar landsþings Viðreisnar sem haldið var um liðna helgi. Þar flutti Guy Verhofstadt, fyrrverandi forsætisráðherra Hollands mergjaða ræðu og lýsti draumsýn um sameinað ríki Evrópu, heimsveldi eins og hann nefndi það. Þeim hugmyndum var tekið með dynjandi lófaklappi fundargesta. Til að ræða þessi mál mæta þeir Sverrir Páll Einarsson, forseti Uppreisnar, og Hjörtur J. Guðmundsson alþjóðastjórnmálafræðingur.

    1 hr 37 min

About Spursmál

From the publisher's feed

Spursmál er nýr og beinskeyttur umræðuþáttur á mbl.is

Best of Spursmál

Ranked by our users in the last 21 days

More shows like Spursmál

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

470 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

92 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

18 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

17 Listeners

Grjótkastið by Björn Ingi Hrafnsson

Grjótkastið

6 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

69 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

29 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

29 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

22 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners