
Sign up to save your podcasts
Or


Based on Podcast App listening data
Ef Ísland hyggst undirrita varnarsamning við Evrópusambandið verður að líta til þess að það hefur ekki yfir herstjórn að ráða. Þetta bendir Björn Bjarnason, fyrrverandi ráðherra á. Hann er gestur fyrsta þáttar Spursmála á nýju ári. Þar ræðir hann stórtíðindi af alþjóðasviðinu þar sem Bandaríkjamenn hafa lýst vesturhvel jarðar sem yfirráðasvæði sitt og auk þess gripið til aðgerða til þess að tryggja það.
Aðild kann að veikja stöðu okkar
Í þættinum ræðir Björn fyrirætlanir ríkisstjórnar Kristrúnar Frostadóttur um að sækja um aðild að Evrópusambandinu en hann telur að aukin áhersla á það að leita undir verndarvæng ESB kunni að veikja stöðu okkar gagnvart Bandaríkjunum sem tryggt hafa varnir landsins í yfir 80 ár.
Einnig er rætt um stöðuna í stjórnmálunum hér heima fyrir þar sem ráðherrakapall setur svip sinn á pólitíska sviðið. Björn Ingi Hrafnsson, starfsmaður Miðflokksins og Andrea Sigurðardóttir, blaðamaður á Morgunblaðinu rýna í stöðuna.
Sterkari eða veikari með Ragnar Þór um borð?
Er ríkisstjórnin sterkari eftir að Guðmundi Inga Kristinssyni var skipt út fyrir Ragnar Þór Ingólfsson og hvaða áhrif mun það hafa á störf þingsins að Sigurjón Þórðarson skuli nú vera orðinn formaður fjárlaganefndar Alþingis?Aukinn þungi færist einnig í umræðuna um sveitarstjórnarmál en Íslendingar ganga sem kunnugt er að kjörborðinu þann 16. maí næstkomandi. Hver verður oddviti Samfylkingarinnar í Reykjavík og getur Björn Ingi eitthvað upplýst um hver leiða muni Miðflokkinn á sama vettvangi?
Hvað hefur staðið upp úr á árinu 2025? Í íþróttum, tísku og stjórnmálum. Svörin við því fást í Spursmálum dagsins þar sem öflugir blaðamenn Morgunblaðsins stinga saman nefjum fyrir framan myndavélarnar í þessum síðasta þætti ársins.
Þar mæta til leiks Marta María Winkel, sem fer fyrir hinu geysivinsæla Smartlandi, Bjarni Helgason, aðstoðarfréttastjóri íþrótta á Morgunblaðinu og Hermann Nökkvi Gunnarsson, blaðamaður og stjórnmálaspekúlant.
Hispurslaus umræða
Þau skyggnast ekki aðeins yfir stærstu og áhugaverðustu fréttir ársins heldur leyfa sér einnig að velta vöngum yfir því hvað árið 2026 muni bera í skauti sér.
Létt, hispurslaus og upplýsandi umræða þar á ferð.
Í síðari hluta þáttarins ræðir Stefán Einar við Guðmund Kristjánsson, forstjóra Brims. Hver á fiskinn í sjónum? Eða heimildirnar til þess að draga hann á land? Guðmundur hefur sterkar skoðanir á þessu og liggur ekki á þeim. Hann ræðir einnig umbúðalaust um nýjan makrílsamning en sitt sýnist hverjum um vinnubrögð stjórnvalda í aðdraganda undirritunar hans.
Hvað hefur staðið upp úr á árinu 2025? Í íþróttum, tísku og stjórnmálum. Svörin við því fást í Spursmálum dagsins þar sem öflugir blaðamenn Morgunblaðsins stinga saman nefjum fyrir framan myndavélarnar í þessum síðasta þætti ársins.
Þar mæta til leiks Marta María Winkel, sem fer fyrir hinu geysivinsæla Smartlandi, Bjarni Helgason, aðstoðarfréttastjóri íþrótta á Morgunblaðinu og Hermann Nökkvi Gunnarsson, blaðamaður og stjórnmálaspekúlant.
Hispurslaus umræða
Þau skyggnast ekki aðeins yfir stærstu og áhugaverðustu fréttir ársins heldur leyfa sér einnig að velta vöngum yfir því hvað árið 2026 muni bera í skauti sér.
Létt, hispurslaus og upplýsandi umræða þar á ferð.
Í síðari hluta þáttarins ræðir Stefán Einar við Guðmund Kristjánsson, forstjóra Brims. Hver á fiskinn í sjónum? Eða heimildirnar til þess að draga hann á land? Guðmundur hefur sterkar skoðanir á þessu og liggur ekki á þeim. Hann ræðir einnig umbúðalaust um nýjan makrílsamning en sitt sýnist hverjum um vinnubrögð stjórnvalda í aðdraganda undirritunar hans.
Blótsflaumur forseta Alþingis hefur dregið dilk á eftir sér og nú rísa stjórnmálaflokkar upp gegn fyrirhuguðu skipulagi borgarlínunnar. Þá keppa Íslendingar ekki í Eurovision meðan gyðingar taka þar þátt.Í fyrsta hluta þáttarins mæta þau Eggert Skúlason, fjölmiðlamaður með meiru og Unnur Brá Konráðsdóttir, fyrrverandi forseti Alþingis og stjórnarmaður í RÚV og ræða fréttir vikunnar.
Þar ræða þau meðal annars um hvort Þórunni Sveinbjarnardóttur, forseta þingsins, sé sætt eftir að hún kallaði stjórnarandstöðuþingmenn „djöfulsins, helvítis andskotans pakk.“Borgarlína í brennidepli
Í öðrum hlutanum ræða þau Einar Þorsteinsson, fyrrverandi borgarstjóri og oddviti Framsóknarflokksins í borgarstjórn og Hildur Björnsdóttir, oddviti Sjálfstæðisflokksins á sama vettvangi um borgarmálin.
Í morgun greindi Morgunblaðið frá því að óeining sé innan borgarstjórnar um nýja deiliskipulagstillögu vegna borgarlínu eins og henni er ætlað að liggja um Suðurlandsbraut.
Þá berst talið einnig að Brákarborg, ónýtum leikskóla en nýreistum sem kostað hefur borgarbúa 3.200 milljónir króna nú þegar og enn má búast við að kostnaðurinn færist í aukana.
Gaf skít í Spotify
Í þriðja og síðasta hluta þáttarins er svo rætt við Fannar Inga Friðþjófsson, forsprakka Hipsumhaps en hann tók afdrifaríka ákvörðun í lok nóvember þegar hann tók efni sitt út af efnisveitunni Spotify.
Sneisafullur þáttur af öflugri og upplýsandi umræðu við áhugavert fólk.
Hvert stórmálið skekur annað á vettvangi stjórnmálanna og nú er menntamálaráðherra sakaður um helbera valdníðslu. Hversu styrkum fótum situr ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur? Hefur hún stjórn á Flokki fólksins eða fara ráðherrar hans sínu fram, hvað sem tautar og raular?
Þetta er meðal þess sem stjórnmálamennirnir fyrrverandi, Össur Skarphéðinsson og Sigurður Kári Kristjánsson hyggjast kryfja inn að beini á vettvangi Spursmála í dag.
Jólaverslun og kræsingar
Þeir mæta til Stefáns Einars á óhefðbundinn upptökustað. Þátturinn er að þessu sinni sendur út frá Austurstræti, nánar tiltekið gömlu höfuðstöðvum Landsbankans. Tilefnið er tveggja ára afmæli þáttarins en honum var hleypt af stokkunum 1. desember árið 2023.
Síðan þá hefur 101 reglubundinn þáttur verið sendur út frá myndveri í Hádegismóum, auk aukaþátta sem efnt hefur verið til vegna stórtíðinda á heima- og alþjóðavettvangi.
Auk Sigurðar Kára og Össurar fær Stefán Einar til sín góða gesti úr raunhagkerfinu. Það eru þau Bergþóra Guðnadóttir, hönnuður og eigandi Farmers Market, og Jakob E. Jakobsson, eigandi Jómfrúarinnar.
Þau gefa sér tíma frá hinni miklu jólavertíð sem senn nær hámarki. Þau munu fara yfir stöðuna á miðborginni og jólaverslunina á þessu ári sem að einhverju marki gæti litast af versnandi efnahagshorfum.
Það var ekki svo að nokkrir menn í Þýskalandi hafi vaknað upp morgun einn og ákveðið að útrýma öllum gyðingum. Morðhyggjan sem heltók Evrópu var langtímaþróun sem náði hámarki í helförinni.
Þetta er meðal þess sem kemur fram í stórfróðlegu spjalli Þórs Whitehead, fyrrverandi prófessors í sagnfræði, á vettvangi Bókaklúbbs Spursmála.
Í lok nóvember komu klúbbmeðlimir saman á Vinnustofu Kjarvals þar sem bókin Helförin í nýju ljósi, eftir breska fræðimanninn Laurence Rees var til umfjöllunar. Var þátttakan með miklum ágætum og um 80 manns sem mættu til leiks.
Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður Sjálfstæðisflokksins, er gestur Stefáns Einars Stefánssonar í Spursmálum þennan föstudaginn. Flokkur hennar mælist með sögulega lítið fylgi og kurr er meðal flokksmanna. Hvað telur hún til ráða?Þá mæta sjónvarpsmennirnir knáu Fannar Sveinsson og Benedikt Valsson í þáttinn til að fara yfir helstu fréttir vikunnar. En nýverið hleyptu þeir af stokkunum þættinum Gott kvöld á Sýn. Þátturinn er sýndur á föstudagskvöldum og lofar virkilega góðu.Guðfinna Kristín Björnsdóttir, læknanemi í Danmörku, skrifaði fyrr í vikunni grein sem vakið hefur mikla athygli fyrir gagnrýni hennar á fæðingarorlofskerfið á Íslandi. Hún mætir á vettvang Spursmála og ræðir íslenska fæðingarorlofskerfið sem hún segir mjög brogað.
Mikils titrings gætir meðal menningarelítunnar vegna leikhúsdóma Símons Birgissonar sem hann hefur birt að undanförnu á Vísi. Þar lætur hann leikskáld, leikstjóra og leikara gjarnan hafa það óþvegið og hafa sumar leiksýningar endað með svo lítið sem eina stjörnu.
Hann ræðir menningargagnrýni og gildi hennar ásamt Kolbrúnu Bergþórsdóttur í Spursmálum dagsins. Kolbrún hefur lengi verið virkur þátttakandi í bókmenntagagnrýni hér á landi, ekki síst á vettvangi Kiljunnar í Ríkissjónvarpinu.
Í síðari hluta þáttarins ræðir Stefán Einar við Guðmund Fertram Sigurjónsson, stofnanda Kerecis en fyrirtæki hans hefur á undanförnum árum veitt stuðningi inn í stríðshrjáða Úkraínu og nemur hann í dag yfir milljarði króna.
Evrópusambandið situr fast við sinn keip og leggur verndartolla á íslenskan iðnað. Hvað segja fulltrúar stjórnar og stjórnarandstöðu um málið?
Það kemur fram í aukaþætti af Spursmálum sem efnt er til í ljósi nýjustu vendinga þar sem Evrópusambandið heldur fast við þá ákvörðun að leggja toll á kísilmálm sem framleiddur er á Íslandi og í Noregi.
Snorri Másson úr Miðflokki og Dagbjört Hákonardóttir frá Samfylkingu mæta á vettvang í Hádegismóum og takast á um stöðuna, ekki síst hvernig íslensk stjórnvöld hafa haldið á hagsmunagæslu fyrir hönd ríkisins.
Er íslenski ríkisfjölmiðillinn í sams konar vanda og BBC í Bretlandi sem nú sætir harðri gagnrýni fyrir vinnubrögð og hlutdrægni í fréttaflutningi sínum?
Þeir Ingvar Smári Birgisson, lögmaður og stjórnarmaður í RÚV, og Páll Magnússon, fyrrverandi útvarpsstjóri og alþingismaður mæta í settið til að fara yfir málið. Þeir þekkja vel til málavaxta í Bretlandi þar sem fréttamenn urðu uppvísir að því að afvegaleiða áhorfendur þegar kom að umfjöllun um Donald Trump, forseta Bandaríkjanna.
Þá ræða helstu fréttir vikunnar þær Bjarnheiður Hallsdóttir, fyrrverandi formaður Samtaka fyrirtækja í ferðaþjónustu, og Vigdís Hauksdóttir, lögfræðingur og fyrrverandi borgarfulltrúi.
Í þeirri umræðu ber einna hæst ástand efnahagsmála í landinu en sú ákvörðun ESB að falla ekki frá hækkun verndartolla á framleiðsluvörur Elkem á Íslandi eru nýjasta dæmið af mörgum skakkaföllum sem íslenskt efnahagslíf hefur orðið fyrir síðustu vikur og mánuði.
Í lok þáttarins verður rætt við Benedikt Gíslason, forstjóra Arion banka, en hann og samstarfsmenn hans hafa staðið í ströngu að undanförnu við að bregðast við nýjasta dómi Hæstaréttar í máli Neytendasamtakanna gegn bönkunum.
From the publisher's feed
Ranked by our users in the last 21 days

470 Listeners

139 Listeners

21 Listeners

27 Listeners

92 Listeners

18 Listeners

17 Listeners

6 Listeners

69 Listeners

29 Listeners

29 Listeners

22 Listeners

20 Listeners

27 Listeners

12 Listeners