Spursmál

Spursmál

By Ritstjórn MorgunblaðsinsNewsPolitics
Download on the App Store
  • Favorites

    24

    Followers

  • Typical duration

    92 min

    per episode

Based on Podcast App listening data

Spursmál episodes

  • #111. - Tifandi tímasprengju varpað inn í ríkisfjármálin?

    Þórarinn G. Pétursson, varaseðlabankastjóri peningamála situr fyrir svörum í Spursmálum í dag. Seðlabankanum hefur ekki tekist að hemja verðbólguna sem er 5,2%. Er hann reiðubúinn að hækka vexti? Margt bendir til þess enda hefur bankinn það verkefni samkvæmt lögum að halda verðbólgu í landinu sem næst verðbólgumarkmiði sem er 2,5%.

    Hversu hátt geta vextirnir farið?

    Seðlabankinn ákvað í síðustu viku að halda meginvöxtum bankans óbreyttum í 7,25% og í stað þess að halda áfram því vaxtalækkunarferli sem hafið var á árinu 2024 virðist margt benda til þess að bakslag sé komið í þá þróun. Getur verið að bankinn þurfi enn á ný að hækka vexti upp úr öllu valdi?

    Í þættinum verður Þórarinn einnig spurður út í þær fyrirætlanir sem ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur hefur uppi um að gera grundvallarbreytingar á almannatryggingakerfinu. Þær breytingar kallar Konráð Guðjónsson, hagfræðingur og fyrrverandi efnahagsráðgjafi ríkisstjórnar, ríkisfjármálalega tímasprengju.

    Þau Lára G. Sigurðardóttir, doktor í lýðheilsuvísindum, og Elías Blöndal Guðjónsson eigandi Santé eru einnig gestir þáttarins og takast á um sölu og neyslu áfengis í samræmi við núgildandi áfengislög.

    Þá mæta í settið þeir Jónas Már Torfason, oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi, og Andri Steinn Hilmarsson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi, og ræða það sem bar hæst í fréttum vikunnar.


    2 hr 12 min
  • #111. - Tifandi tímasprengju varpað inn í ríkisfjármálin

    Þórarinn G. Pétursson, varaseðlabankastjóri peningamála situr fyrir svörum í Spursmálum í dag. Seðlabankanum hefur ekki tekist að hemja verðbólguna sem er 5,2%. Er hann reiðubúinn að hækka vexti? Margt bendir til þess enda hefur bankinn það verkefni samkvæmt lögum að halda verðbólgu í landinu sem næst verðbólgumarkmiði sem er 2,5%.

    Hversu hátt geta vextirnir farið?

    Seðlabankinn ákvað í síðustu viku að halda meginvöxtum bankans óbreyttum í 7,25% og í stað þess að halda áfram því vaxtalækkunarferli sem hafið var á árinu 2024 virðist margt benda til þess að bakslag sé komið í þá þróun. Getur verið að bankinn þurfi enn á ný að hækka vexti upp úr öllu valdi?

    Í þættinum verður Þórarinn einnig spurður út í þær fyrirætlanir sem ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur hefur uppi um að gera grundvallarbreytingar á almannatryggingakerfinu. Þær breytingar kallar Konráð Guðjónsson, hagfræðingur og fyrrverandi efnahagsráðgjafi ríkisstjórnar, ríkisfjármálalega tímasprengju.

    Þau Lára G. Sigurðardóttir, doktor í lýðheilsuvísindum, og Elías Blöndal Guðjónsson eigandi Santé eru einnig gestir þáttarins og takast á um sölu og neyslu áfengis í samræmi við núgildandi áfengislög.

    Þá mæta í settið þeir Jónas Már Torfason, oddviti Samfylkingarinnar í Kópavogi, og Andri Steinn Hilmarsson, bæjarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins í Kópavogi, og ræða það sem bar hæst í fréttum vikunnar.


    2 hr 12 min
  • #110. - Ari yfirgefur Sjálfstæðisflokkinn

    Í morgun var tilkynnt að Ari Edwald myndi leiða Miðflokkinn í komandi borgarstjórnarkosningum. Hann segir með því skilið við Sjálfstæðisflokkinn sem hann hefur gegnt mörgum trúnaðarstörfum fyrir síðustu áratugi.

    Hann er gestur í aukaþætti af Spursmálum kl. 14.00 í dag. Þátturinn var sendur út í beinni útsendingu frá ritstjórn Morgunblaðsins í Hádegismóum.

    49 min
  • #109. - Er ríkisstjórnin að missa stjórn á hagkerfinu?

    Allt virðist stefna í mjög hraða kólnun hagkerfisins á sama tíma og verðbólga eykst hratt. Hætt er við að ríkisstjórnin missi stjórn á kerfinu við slíkar aðstæður og háir vextir verði viðvarandi.

    Þessi staða verður til umræðu í Spursmálum í dag. Þar mæta til leiks Ásdís Kristjánsdóttir, bæjarstjóri í Kópavogi og hagfræðingur og Hermann Guðmundsson, forstjóri Kemi sem lengi hefur tjáð sig um stöðu efnahagsmála hér á landi.

    Til þess að fara yfir fréttir vikunnar ætla þær að leiða saman hesta sína borgarfulltrúarnir Magnea Gná Jóhannsdóttir og Líf Magneudóttir. Þær sækjast báðar eftir endurkjöri í komandi kosningum og í flokkum þeirra beggja stefnir einnig í formannsskipti á allra næstu vikum.

    Hver er líklegri til þess að verða næsti formaður Framsóknar, Lilja D. Alfreðsdóttir eða Ingibjörg Isaksen? Og hver mun taka við keflinu af Svandísi Svavarsdóttur sem æðstráðandi Vinstrihreyfingarinnar græns framboðs?

    1 hr 37 min
  • Bókaspjall - Æviminningar Karls Sigurbjörnssonar

    Fyrir jól kom út sjálfsævisaga Karls Sigurbjörnssonar biskups, „Skrifað í sand, minningabrot“. Hann lést árið 2024 en skildi eftir sig handrit að endurminningunum. Bókin var til umfjöllunar í bókaklúbbi Spursmála í janúar. Viðmælandi er séra Hreinn Hákonarson, fyrrverandi fangaprestur, sóknarprestur og ritstjóri Kirkjublaðsins, sem er sjálfstæður fjölmiðill um málefni kirkju ogtrúar.

    59 min
  • #108. - Eru kjarasamningar í uppnámi?

    Verðbólgan er á mikilli siglingu og gæti að öllu óbreyttu sett stærstu kjarasamningana á vinnumarkaði í uppnám í haust. Sólveig Anna Jónsdóttir, formaður Eflingar, bregst við nýjustu tíðindum af hagkerfinu í Spursmálum. Það gerir hún ásamt Þórði Pálssyni, forstöðumanni fjárfestinga hjá Sjóvá.

    Þá ræða þau stöðuna í pólitíkinni, Hilmar Gunnarsson, fyrrverandi ritstjóri Mosfellings og oddvitaframbjóðandi í prófkjöri Sjálfstæðisflokksins í Mosfellsbæ, og Ólöf Skaftadóttir, fyrrverandi ritstjóri Fréttablaðsins.

    Í þættinum ræðir Stefán Einar einnig við Bjarna Helgason, fréttastjóra íþrótta á Morgunblaðinu en hann fylgir landsliðinu okkar eftir í Danmörku þar sem það mætir heimamönnum í æsispennandi leik í kvöld.

    1 hr 35 min
  • #107. - Baráttan um völdin hafin

    Ingibjörg Isaksen, þingflokksformaður Framsóknarflokksins og Lilja Dögg Alfreðsdóttir, varformaður hans, takast á um formannsstólinn í flokknum.

    Flokksþing fram undan

    Þann 15. febrúar næstkomandi verður nýr formaður kjörinn á flokksþingi Framsóknarflokksins en Sigurður Ingi Jóhannsson, sem verið hefur formaður frá því í október 2016 gaf það út fyrr í vetur að hann hygðist söðla um og láta af embætti.

    Hann tók við formennskunni á róstursömum tíma í íslenskum stjórnmálum þegar hann sigraði sitjandi formann flokksins, Sigmund Davíð Gunnlaugsson með ríflega 52% atkvæða. Í kjölfarið klauf Sigmundur Davíð flokkinn og stofnaði Miðflokkinn.

    En hvert hyggjast þær Ingibjörg og Lilja taka Framsóknarflokkinn, fái þær umboð til þess að leiða hann næstu árin?

    Svara við þeirri spurningu og mörgum öðrum verður leitað í lifandi og hispurslausri umræðu á vettvangi Spursmála.

    55 min
  • #106. - Harðir slagir framundan

    Vegna spennandi leiks Íslands og Króatíu í handknattleik karla, sem fram fer í Malmö klukkan 14:30 í dag hefur útsendingartími Spursmála verið fluttur til klukkan 12:00 í dag.Gestir þáttarins eru margir og áhugaverðir. Fyrst mæta til leiks þau Berglind Ósk Guðmundsdóttir, fyrrverandi alþingismaður og uppistandarinn og vínspekúlantinn Dóri DNA. Fara þau yfir fréttir vikunnar.

    Þá ræðir Stefán Einar við oddvitaframbjóðendur Sjálfstæðisflokksins í Reykjanesbæ, þá Ásgeir Elvar Garðarsson, Unnar Stefán Sigurðsson og Vilhjálm Árnason. Prófkjör flokksins fer fram laugardaginn 31. janúar næstkomandi.Í lok þáttar er rætt við Albert Jónsson, fyrrverandi sendiherra og sérfræðing í utanríkis- og varnarmálum. Þar verður meðal annars fjallað um mögulegar aðildarviðræður Íslands að ESB, bægslagang Donalds Trump gagnvart Grænlandi og sitthvað fleira.

    2 hr 6 min
  • #105. - Vændiskaup, verðbólguskot og einkunnagjöf í skólum

    Mikil fréttavika er að baki sem náði hápunkti í morgun þegar Guðbrandur Einarsson, þingmaður Viðreisnar sagði af sér vegna gamalla ódrýgðra synda.

    Til að ræða fréttir vikunnar á vettvangi Spursmála þennan föstudaginn mæta þau Diljá Mist Einarsdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins og Björn Brynjúlfur Björnsson, framkvæmdastjóri Viðskiptaráðs.

    Í síðari hluta þáttarins ræðir Stefán Einar við þrjá oddvitaframbjóðendur Viðreisnar í Reykjavík um áherslur þeirra, komist þau til valda að afloknum kosningum 16. maí næstkomandi.

    Þar fara þau Róbert Ragnarsson, Aðalsteinn Leifsson og Björg Magnúsdóttir.

    1 hr 28 min
  • Bókaspjall - Íslandsklukkan með Loga Einars

    Íslandsklukka Halldórs Laxness er eitt helsta stórvirki nóbelskáldsins. Bókin var tekin fyrir í desembermánuði í bókaklúbbnum og í kjölfarið settist Logi Einarsson menntamálaráðherra niður ásamt Stefáni Einari til að ræða efni og inntak bókarinnar í víðu samhengi. Ekki síst hvaða skírskotun hún hefur inn í nútímann.

    1 hr 8 min

About Spursmál

From the publisher's feed

Spursmál er nýr og beinskeyttur umræðuþáttur á mbl.is

Best of Spursmál

Ranked by our users in the last 21 days

More shows like Spursmál

Í ljósi sögunnar by RÚV

Í ljósi sögunnar

470 Listeners

Dr. Football Podcast by Hjörvar Hafliðason

Dr. Football Podcast

139 Listeners

Steve Dagskrá by Steve Dagskrá

Steve Dagskrá

21 Listeners

FM957 by FM957

FM957

27 Listeners

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars by Helgi Jean Claessen

Hæ Hæ - Ævintýri Helga og Hjálmars

92 Listeners

70 Mínútur by Hugi Halldórsson

70 Mínútur

18 Listeners

Ein Pæling by Thorarinn Hjartarson

Ein Pæling

17 Listeners

Grjótkastið by Björn Ingi Hrafnsson

Grjótkastið

6 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

69 Listeners

Teboðið by Birta Líf og Sunneva Einars

Teboðið

29 Listeners

Þjóðmál by Þjóðmál

Þjóðmál

29 Listeners

Þungavigtin by Tal

Þungavigtin

22 Listeners

Chess After Dark by Birkir Karl & Leifur Þorsteinsson

Chess After Dark

20 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners

Hlaðfréttir by Pera Production

Hlaðfréttir

12 Listeners