Sunnudagssögur

Sunnudagssögur

By RÚVMusic
Download on the App Store

Sunnudagssögur episodes

  • Eyjólfur Guðmundsson rektor Háskólans á Akureyri. Hringt norðaustur
    Eyjólfur Guðmundsson, rektor Háskólans á Akureyri, sagði frá æskuárunum í norðurbænum í Hafnarfirði. Hann fór svo í Verzlunarskóla Íslands sem var á þeim tíma að flytja í nýtt húsnæði í Ofanleiti. Eyjólfur sagði einnig frá bílasölutímabili og þegar hann seldi síðasta Trabantinn hér á landi. Hann rifjaði svo upp fæðingu sona sinna, og þegar fjölskyldan fluttist til Bandaríkjanna og síðan til Akureyrar. Hann segir frá árunum sem kennari við Háskólann á Akureyri og þegar hann söðlaði um og fór að vinna sem aðalhagfræðingur CCP. Að lokum spjallaði hann um starf sitt sem rektor Háskólans á Akureyri og þau tækifæri sem hann sér á Norðurlandi í framtíðinni.
    Í seinni helmingi þáttarins var hringt á Norðausturland. Slegið var á þráðinn til Sigrúnar Vésteinsdóttur sem rekur ásamt fjölskyldunni lúxustjaldleigu á uppeldisbæ sínum Vaði við Skjálfandafljót. Einnig var heyrt í Guðmundi Ögmundssyni þjóðgarðsverði í Ásbyrgi. Hann rifjaði upp sögur úr starfinu og sagði frá hvernig þjóðgarðsverðir væru að undirbúa tjaldsvæðin svo þau uppfylli öll skilyrði Covid-takmarkana í sumar.
    Umsjónarmaður: Gígja Hólmgeirsdóttir
    2 hr 15 min
  • Kristín Aðalheiður Símonardóttir kaffihúsaeigandi. Hringt á Austurland
    Kristín Aðalheiður Símonardóttir rekur ásamt manni sínum kaffihúsið Gísla, Eirík og Helga á Dalvík. Hún kom í Sunnudagssögur og sagði frá æskuárunum á Dalvík og hvernig hún leiddist út í að reka blómabúð ásamt foreldrum sínum. Kristín Aðalheiður segir einnig frá brautargengisnámskeiði sem hún fór á hjá Nýsköpunarmiðstöð en þar lærði hún að koma hugmyndum sínum í farveg. Hún sagði líka frá erfiðum tíma í lífi fjölskyldunnar þegar þau misstu son sinn og talar um hversu mikilvægt það er að þagga ekki niður tilfinningar sínar á erfiðum tímum, heldur takast á við erfiðleikana með að tala um þá. Að lokum segir hún frá öllu því sem fram undan er hjá þeim hjónum en þau eru með margar hugmyndir sem nú stendur til að framkvæma hjá þeim á kaffihúsinu á Dalvík.
    Í seinni hluta þáttarins var hringt austur á land. Forvitnast var um sauðburð í Jökuldalnum en á línunni var dýralæknaneminn Auðna Hjarðar sem aðstoðar nú fjölskylduna í sauðburðinum á bænum Hjarðargrund í Jökuldal. Því næst var hringt í Sólveigu Eddu Bjarnadóttur á Egilsstöðum sem rekur þar ásamt manni sínum veitingastaðinn Nielsen Restaurant í elsta íbúðarhúsi bæjarins. Sólveig Edda sagði frá hvernig reksturinn hefur gengið á þessum skrýtnu tímum og hvað væri fram undan hjá þeim.
    Umsjónarmaður: Gígja Hólmgeirsdóttir
    2 hr 15 min
  • Þorbergur Ingi Jónsson últrahlaupari
    Þorbergur Ingi Jónsson mætir til okkar í Sunnudagssögur en Þorbergur Ingi hefur verið konungur utanvegahlaupanna hér á landi undanfarin ár. Hann sagði frá uppvextinum á Neskaupsstað þar sem hann æfði fótbolta og stundaði mikla útivist. Leið hans liggur síðan í hlaupin þar sem hann hefur haldið sig síðan og náð gríðarlega miklum árangri. Þorbergur segir frá hlaupaferlinum og þeim áskorunum sem fylgja últrahlaupum, þá sérstaklega þeim andlegu áskorunum sem fylgja undirbúningi og keppni í löngum hlaupum. Síðan sagði Þorbergur frá hlaupinu Súlur Vertical, sem hlaupafólk á Akureyri hefur haldin undanfarin ár um Verslunarmannahelgi, en mótið í ár mun verða sérstaklega glæsilegt.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
    2 hr 15 min
  • Dýrleif Skjóldal leikskólakennari og sundþjálfari
    Dýrleif Skjóldal, eða Dilla eins og hún er alltaf kölluð, mætti í hljóðverið á Akureyri og sagði sína sögu. Dilla sagði meðal annars frá uppvextinum á Akureyri, skiptinemadvöl sinni í Noregi, hvernig hún byrjaði með Dillusund og margt, margt fleira.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
    2 hr 15 min
  • Andrea Margrét Þorvaldsdóttir hestamaður
    Andrea Margrét Þorvaldsdóttir sagði frá uppvextinum í innbænum á Akureyri, frá öllum ævintýrunum sem einkenndu æsku hennar og hvernig hún heillaðist snemma af hestamennskunni. Hún rifjar upp þegar hún ætlaði að gerast farandbarþjónn og ferðast um allan heim, sagði frá störfum sínum í ígulkeraverksmiðu, frá árunum sem hún vann sem barþjónn á Akureyri, auk þess sem hún rekur feril sinn innan fjarskiptageirans. Andrea segir einnig frá hestamennskunni en samhliða því að sinna því áhugamáli hefur hún tekið virkan þátt í félagsmálum hestamanna, sérstaklega æskulýðsstarfinu, og var um skeið formaður hestamannafélagsins Léttis á Akureyri.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
    2 hr 15 min
  • Vilhjálmur B. Bragason vandræðaskáld
    Vilhjálmur B. Bragason, skáld og skemmtikraftur, sagði frá uppvextinum á Akureyri og þegar leikhúsáhugi hans kviknaði þegar hann fór fjögurra ára með fjölskyldunni að sjá Dýrin í Hálsaskógi í Þjóðleikhúsinu. Vilhjálmur sagði frá hvernig leikaradraumurinn byrjaði að taka á sig nýja mynd þegar hann byrjaði í Menntaskólanum á Akureyri og hann byrjar að leggja áherslu á skriftir. Hann segir frá námsárunum í ensku við Hí og síðar masternámi í London, þar sem hann kynntist Sesselíu Ólafsdóttur og saman stofnuðu þau söngdúettinn Vandræðaskáld.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
    55 min
  • Svavar Alfreð Jónsson prestur
    Sunnudagssögur voru sendar út frá hljóðveri á Akureyri. Þar spjallaði Gígja Hólmgeirsdóttir við Svavar Alfreð Jónsson, prest í Akureyrarkirkju. Hann sagði frá uppvaxtarárum sínum á Akureyri og hvernig hann leiddist út í guðfræðinám eftir að skólagöngu hans við Menntaskólann á Akureyri lauk. Hann talaði um þegar þau hjónin hófu sinn búskap í Þýskalandi og síðan þegar þau fluttust til Ólafsfjarðar, þar sem hann þjónaði sem prestur í tæpan áratug. Svavar segir einnig frá starfi sínu sem prestur við Akureyrarkirkju auk þess að gefa innsýn inn í nokkur af hans fjölmörgu áhugamálum.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
    2 hr 15 min
  • Valgerður S. Bjarnadóttir nýdoktor
    Sunnudagssögur voru að þessu sinni sendar út að norðan. Valgerður S. Bjarnadóttir, uppeldis- og menntunarfræðingur og nýdoktor við Háskólann á Akureyri, var gestur Gígju Hólmgeirsdóttur í hljóðveri á Akureyri. Valgerður sagði meðal annars frá uppvaxtarárunum í Skagafirði, námsárunum í Menntaskólanum á Akureyri, þeirri ákvörðun að fara í uppeldis- og menntunarfræði og hvernig ferill hennar sem kennari og fræðimaður hefur þróast. Valgerður fjallaði einnig um rannsókn sem hún vinnur núna að, ásamst samstarfskonu sinni við Háskólann á Akureyri, þar sem þær rannsaka áhrif Covid-19 faraldursins á heimilislíf fjölskyldna á Íslandi.
    Umsjón: Gígja Hólmgeirsdóttir
    2 hr 15 min
  • Snjólaug Ólafsdóttir umhverfisverkfræðingur og Kamilla Ingibergsdóttir
    Snjólaug Ólafsdóttir umhverfisverkfræðingur sagði frá uppvextinum á Akureyri og í Hlíðunum, frá því þegar hún skammaðist í krökkunum sem hentu karamellubréf á jörðina og hvernig hún þróaði með sér sterka meðvitund fyrir uhverfinu. Hún sagði frá MA, námi í efnafræði í háskóla íslands, síðar umverfsverkfræði og doktorsnámi. Hún sagði frá starfi sínu hjá orkuveitunni, fyrirlestrum um umverfismál og starfi sínu í dag sem ráðgjafi um umhverfismál.
    Kamilla Ingibergsdóttir sagði frá uppvestinum í Keflavík, skólagöngu, starfi sínu í tengslum við tónlist fyrst hjá Úton og Iceland Airwaves og síðar hjá Of Monsters of man. hún sagði frá því þegar hún upplifði kulnun og stafi sínu í dag sem jógakennari og tónheilari.
    2 hr 15 min

About Sunnudagssögur

From the publisher's feed

Umsjón: Ýmsir.

More shows like Sunnudagssögur

Heilsuvarpid by Ragga Nagli

Heilsuvarpid

10 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

73 Listeners

Stjörnuspeki – Orkugreining by stjornuspeki

Stjörnuspeki – Orkugreining

3 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners