Sunnudagssögur

Sunnudagssögur

By RÚVMusic
Download on the App Store

Sunnudagssögur episodes

  • Guðmundur Rafnkell Gíslason tónlistarmaður og Aðalsteinn Ásberg rithöf
    Guðmundur Rafnkell sagði frá uppvextinum á Norðfirði, lífinu þar sem strákur, skólagöngu tónlist og ýmsu fleiru. Hann sagði frá kennaranámi, hvernig hann var lokkaður inn í pólitíkina fyrir austan, hljómsveitinni Sú Ellen og sólóferlinum og nýju plötunni sem er nýkomin út.
    Aðalsteinn Ásberg sagði frá uppvextinum fyrir norðan á húsavík og í Reykjadal. Hann sagði frá ritstörfunum, fjölmörgum verkefnum sem hann hefur fengist við, fjölskyldunni og áhugamálunum.
    2 hr 15 min
  • Þorbjörg Hafsteinsdóttir heilsufrumkvöðull og Einar Torfi Finnsson lei
    Þorbjörg Hafsteinsdóttir Ingveldardóttir sagði frá lífi sínu og starfi. Hún ólst upp í miðbæ reykjavíkur en flutti til Danmerkur 19 ára gömul. Hún hefur búið þar og starfað í yfir 40 ár en Þorbjörg á þrjár dætur sem allar búa í Danmörku. Hún sagði frá lífi sínu þar, ferðalögum á framandi slóðir, áhuganum á næringu og heilsu og starfinu sínu í því fagi. Hún hefur gefið út fjölmargar bækur og í dag býr hún bæði hér á landi og í Danmörku heldur námskeið og fyrirlestra, skrifar bækur og hjálpar fólki að ná betri heilsu.
    Einar Torfi Finnsson leiðsögumaður sagði frá uppvextinum í Kópavogi, gönguskíðamennsku, björgunarsveitarstörfum og starfi sínu sem leiðsögumaður. Hann sagði frá fjölskyldunni og áhugamálunum sem eru tengd útivist.
    2 hr 15 min
  • Sigtryggur Baldursson tónlistarmaður og Alda Karen markaðskona og fyri
    Sigtryggur Baldursson sagði frá lífi sínu og starfi, uppvöxt í Kópavogi og Bandaríkjunum. Hann sagði frá fótboltanum og tónlistarbröltinu, Hann sagði frá hljómsveitarlífinu, fjölskyldunni starfinu hjá Útón, Bogomil Font og ýmsu fleiru .
    Alda Karen Hjaltalín sagði frá uppvextinum á Akureyri, fótboltanum þar sem hún átti sér stóra drauma, því þegar hún barðist fyrir því að fá söngvakeppni framhaldsskóla færða norður til Akureyrar, starfinu hjá Sagafilm, markaðsmálum, fjölskyldunni, fyrirlestrunum og ýmsu fleiru.
    2 hr 15 min
  • Sigríður Pétursdóttir kvikmyndafræðingur og Snorri Engilbertsson leika
    Sigríður Pétursdóttir kvikmyndafræðingur sagði frá uppvextinum á Húsavík, árunum þar og síðar á Akureyri en hún fór í Menntaskólann á Akureyri. Hún sagði frá námi í textíldeild KHÍ, síðar kennslu og leikarastörfum sem hún elskaði. Hún ræddi kvikmyndaáhugann, fjölskylduna en ýmislegt hefur gengið á og Sigga hefur sjálf algerlega skipt um kúrs í lífinu og borðar nú sérstakt fæði og hugar vel að hreyfingu og heilsu almennt. Hún ræddi líka Óskarsverðlaunahátíðina sem hún hefur fylgst með í fjöldamörg ár ásamt Alexander syni sínum og hún fór yfir magnaðan feril Hildar Guðnadóttur.
    Snorri Engilbertsson leikari sagði frá uppvextinum í Hafnarfirði, dansinum sem hann stundaði um árabil, fjöldkyldunni, fráfall móður hans sem hafði mikil áhrif á líf hans. Hann sagði frá leiklistinni, mótorhjólaáhuganum og ýmsu fleiru.
    2 hr 15 min
  • Bergrún Íris Sævarsdóttir rithöfundur og Arnar Sveinn Geirsson fótbolt
    Bergrún íris Sævarsdóttir hlaut nýverið íslensku bókmenntaverðlaunin í flokki barnabóka en hún sagði frá uppvextinum í Kópavogi, fjölskyldunni, lúðrasveit Kópavogs og Kársneskórnum og ýmsu öðru. Hún sagði frá áhugamálunum, náminu í Kvennó og síðar Hí og myndlistarnámi sem hún stundaði frá unga aldri. Hún sagði frá kvíðanum sem hún fann alltaf fyrir, ADHD greiningu, strákunum sínum og ýmsu öðru.
    Arnar Sveinn Geirsson sagði frá uppvexti en rætur hans liggja bæði í heimi íþrótta og lista. Hann sagði frá því þegar mamma hans dó, hvernig að hann gróf tilfinningarnar niður en ákvað svö löngu síðar að stíga fram og tjá sig um þær. Hann ræddi íþróttaferlininn, áhugamáli, og störfin sem hann hefur fengist við, fjölskylduna og ýmislegt fleira.
    2 hr 15 min
  • Einar Þór Jónsson og Unnur Birna Karlsdóttir
    Einar Þór jónsson sagði frá uppvextinum í Bolungarvík, góðum æskuárum í faðmi vestfiskra fjalla. Hann sagði frá veikindum móður sem mótaði líf fjölskyldunnar sem endaði með því að móðir hans lést langt um aldur fram. Hann sagði frá árinu á Laugarvatni, síðar í trésmíðanámi, og í framhaldinu dvöl í Bretlandi þegar Einar leitaði að sjálfum sér. Þar kom hann út úr skápnum, hann sagði frá árunum í framhaldi fordómum og öðru sem samkynhneigðir þurftu að glíma við á þessum árum. Hann sagði frá HIV og baráttunni við þennan alvarlega sjúkdóm, sínum veikindum og því að missa nána vini og kærasta. Hann sagði frá bróðurmissi sem tók mikið á alla fjölskylduna og hvernig er hægt að lifa af slíka reynslu. Hann sagði frá árunum í Svíþjóð, eiginmanninum Stig og góða tímanum þeirra saman, veikindum Stig, baráttunni hjá aðstandendum heilabilaðra og ýmsu fleiru.
    Unnur Birna Karlsdóttir sagnfræðingur sagði frá uppvextinum í sveitinni í Glæsibæjarhreppim, skólaheimavistinni í Þelamörk og síðar MA. Hún sagði frá sagnfræðinni, fjölskyldunni, og því hvernig það kom til að hún hefur nú sent frá sér bók um hreindýrin á Íslandi sem ber heitið Öræfahjörðin.
    2 hr 15 min
  • Ólafur Haukur Ólafsson í Draumasetri og Þóra Jóhanna Jónasdóttir dýral
    Ólafur Haukur Ólafsson framkvæmdastjóri Draumasetursins sagði frá uppvexti sínum á Seltjarnarnesi, námi í matreiðslu, störum á hinum ýmsu veitingastöðum bæði hérlendis og í Svíþjóð. Hann sagði frá glímunni við Bakkus, fjölskyldunni og starfi sínu í Draumasmiðjunni sem hann lítur á sem mikið ævintýri.
    Þóra Jóhanna Jónasdóttir dýralæknir og björgunarsveitarkona sagði frá lífi sínu og starfi, ævintýrum þegar hún starfaði sem dýralæknir á Vestfjörðum en þar glímdi hún oft við mikið fannfergi, hálku og annað tengt vondu veðri. Hún ræddi björgunarsveitarstörfin, fjölskylduna og hundana og hestana og ýmislegt fleira.
    2 hr 15 min
  • Hermundur Sigmundsson og Halla Hrund Logadóttir
    Hermundur Sigmundsson prófessor sagði frá lífi sínu og starfi en hann hefur búið og starfað í Noregi um langt árabil. Hann ræddi æskuna, námið í sálfræði, rannsóknir og samspil ólíkra þátta sem móta hegðun barna. Hann ræddi um Pisa kannanir, áskoranir sem við íslendingar stöndum frammi fyrir í þeim efnum og ýmislegt fleira.
    Halla Hrund Logadóttir stýrir miðstöð norðurslóða við Harvard háskóla í Cambridge í Boston. Hún ræddi uppeldið, sveitastörfum sem mótuðu hana fyrir lífstíð, störf sem hún hefur fengist við á lífsleiðinni, fjölskylduna, umhverfismál og ýmsilegt fleira.
    2 hr 15 min
  • Una Margrét Jónsdóttir og Bragi Páll Sigurðarson
    Una Margrét Jónsdóttir dagskrárgerðarmaður og rithöfundur sagði frá uppvextinum í reykjavík, sumrunum á Akureyri og ýmsu fleiru tengdu bernskunni. Hún sagði frá óperuáhuganum, einelti sem hún varð fyrir í grunnskóla, árunum í MR og síðar frönsku í Háskóla íslands. Hún sagði frá starfi sínu hjá ríkisútvarpinu, bókunum sem hún hefur skrifað, fjölskyldunni og sjúkdómi sem hún hefur glímt við frá unga aldri sem er áráttustreituröskun.
    Bragi Páll Sigurðarson rithöfundur sagði frá uppvextinum í hólminum og í Mosfellssveitinni, árunum í lúðrasveitinni, síðar MR og FB. Hann sagði frá sjómennskunni, ljóðaskrifum, Skútusiglingum fjölskyldunni og nýju bókinni Austur.
    2 hr 15 min

About Sunnudagssögur

From the publisher's feed

Umsjón: Ýmsir.

More shows like Sunnudagssögur

Heilsuvarpid by Ragga Nagli

Heilsuvarpid

10 Listeners

Podcast með Sölva Tryggva by Sölvi Tryggvason

Podcast með Sölva Tryggva

73 Listeners

Stjörnuspeki – Orkugreining by stjornuspeki

Stjörnuspeki – Orkugreining

3 Listeners

Komið gott by Komið gott

Komið gott

27 Listeners